Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 25. september 2016 07:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
„Meiðsli Harry Kane er frábært tækifæri fyrir Janssen"
Harry Kane er meiddur
Harry Kane er meiddur
Mynd: Getty Images
Mark Lawrenson, fyrrum leikmaður Liverpool og sparkspekingur mikill segir að meiðsli Harry Kane sé frábært tækifæri fyrir Vincent Janssen, hollenska framherja liðsins.

Kane er frá vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í 1-0 sigrinum á Sunderland um síðustu helgi.

Janssen kom frá AZ Alkmaar fyrir leiktíðna en hann skoraði 27 mörk í 33 leikjum fyrir hollenska félagið.

„Meiðsli Harry Kane er augljós hausverkur fyrir Tottenham, sérstaklega þar sem enginn veit hversu alvarleg þau eru, þetta er hins vegar frábært tækifæri fyrir Vincent Janssen, sem þeir keyptu fyrir háa fjárhæð."

Janssen skoraði fyrsta markið sitt fyrir Tottenham gegn Gillingham í bikarkeppninni en hann á enn eftir að skora sitt fyrsta deildarmark á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner