Næsta þriðjudag 28. apríl kl. 08:30 halda VÍB og Fótbolti.net afar áhugaverðan fund í Hörpu um fjármál í fótbolta.
Björn Berg Gunnarsson var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net og ræddi um fundinn en upptöku má heyra í spilaranum hér að ofan.
Björn Berg Gunnarsson var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net og ræddi um fundinn en upptöku má heyra í spilaranum hér að ofan.
Nils Skutle, formaður norska félagsins Rosenborgar árin 1998 - 2011, heldur framsögu um ótrúlegt Evrópuævintýri og uppbyggingu félagsins og tekur þátt í umræðum um möguleika íslensku liðanna. Með Nils í panel verða þeir Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH og Baldur Stefánsson, varaformaður knattspyrnudeildar KR.
Þessum fundi má áhugafólk um knattspyrnu alls ekki missa af, en meðal umræðuefna verða tekjumöguleikar, fjárfestingarþörf og möguleikar íslensku liðanna á að komast í riðlakeppnir Evrópudeildar og Meistaradeildar.
Frítt er á fundinn og skráning stendur yfir.
SKRÁNING
Athugasemdir