Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 26. júní 2015 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Árlegt mót Tindastóls fyrir stelpur um helgina
Mynd: Aðsend
Nú um helgina 27. - 28.júní heldur Tindastóll sitt árlega Landsbankamót á Sauðárkróki fyrir stelpur í 6. og 7. flokki.

Mótið er haldið við bestu aðstæður og munu um 130 lið spreyta sig um helgina, eða um 1000 keppendur.

Það er mikil spenna, búið að mála vellina, pumpa í boltana og allt að verða klárt á Króknum fyrir eitt stærsta stúlknamót landsins.

Velkomin á Krókinn um helgina.

Frekari upplýsingar á www.landsbankamot.wordpress.com.
Athugasemdir
banner
banner