Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 26. júní 2016 18:45
Arnar Geir Halldórsson
Þjálfari Þýskalands heldur áfram að þefa af sér
Þefvís
Þefvís
Mynd: Getty Images
Joachim Löw, þjálfari heimsmeistara Þýskalands, hefur vakið athygli fyrir að vera sífellt að þefa af sjálfum sér á varamannabekknum á EM í Frakklandi.

Það náðist á myndband þegar hann fór með hönd inn á punginn sinn meðan hann sat á varamannabekk Þjóðverja í leik gegn Úkraínu í riðlakeppninni.

Löw þefaði svo af höndinni sinni og gerði þetta aftur nokkru síðar, nema að í seinna skiptið þefaði hann af eigin rassi.

„Ég sá myndböndin daginn eftir. Auðvitað gerir maður stundum eitthvað ómeðvitað og ég ætla að passa mig að láta þetta ekki gerast aftur." sagði Löw þegar hann var spurður út í áráttu sína.

Eitthvað virðist hann þó hafa gleymt sér því skjáskotið hér að neðan er úr leik Þýskalands og Slóvakíu í dag.



Athugasemdir
banner
banner
banner