Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 26. júní 2017 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Karembeu: Ronaldo verður áfram hjá Real Madrid
Mynd: Getty Images
Christian Karembeu, fyrrum leikmaður Real Madrid, telur að ofurstjarnan Cristiano Ronaldo verði áfram hjá félaginu.

Margir virtir fjölmiðlar hafa að undanförnu greint frá því að Ronaldo vilji yfirgefa spænska boltann.

Ronaldo er sakaður um umfangsmikil skattsvik á Spáni, en hann hefur sjálfur neitað sök í málinu.

Karembeu telur að Ronaldo fari ekki frá spænsku höfuðborginni.

„Ég held að hann muni ekki fara," sagði Karembeu.

„Við þurfum að vera raunsæir. Riftunarverð hans er 1 milljarður punda og ekkert lið getur borgað það. Ég held að Cristiano verði áfram, þeir munu finna lausn á málinu."

„Við munum sjá til hvað gerist, en ég held að hann verði áfram."
Athugasemdir
banner
banner
banner