Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 26. nóvember 2016 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Klopp: Matip hefur ekki komið okkur á óvart
Matip hefur spilað virkilega vel í vörn Liverpool
Matip hefur spilað virkilega vel í vörn Liverpool
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að það komi sér lítið sem ekkert á óvart hversu vel varnarmaðurinn Joel Matip hefur spilað í upphafi tímabils.

Matip kom á frjálsri sölu frá Schal­ke 04 í sumar og hann hefur smollið gríðarlega vel inn í lið Liverpool, sem er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

„Ef þetta hefði komið mér á óvart þá hefði ég verið að búast við einhverju neikvæðu frá honum, sem er alls ekki raunin," sagði Klopp.

„Frá byrj­un vissum við af stöðu mála, við viss­um við að hann væri tilbúinn að koma til Liverpool og taka þetta hlut­verk á sig."

„Það hvernig hann hefur staðið sig hefur ekki komið okkur á óvart. Við héldum að þetta myndi ganga svona og það er þess vegna sem ég kaupi leikmenn."
Athugasemdir
banner
banner