Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 26. nóvember 2016 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sky Sports 
Remy þarf að bíða lengur eftir fyrsta leik með Palace
Remy meiddist strax aftur
Remy meiddist strax aftur
Mynd: Crystal Palace
Franski framherjinn Loic Remy þarf að bíða eitthvað lengur eftir fyrsta leik sínum með Crystal Palace. Hann meiddist á kálfa og verður frá næstu þrjár vikurnar hið minnsta.

Remy gekk til liðs við Palace í ágúst á eins árs lánssamningi frá Chelsea, en hann hefur ekki enn náð að spila leik fyrir nýja félagið sitt.

Hann meiddist á læri aðeins níu dögum eftir að hann skrifaði undir hjá Palace og núna er hann var að snúa aftur þá meiddist hann strax aftur, en núna er um kálfameiðsli að ræða.

Það verður því smá bið á endurkomunni hjá honum þar sem hann verður frá í þrjár vikur að minnsta kosti.

Það hefur ekki gengið vel hjá Crystal Palace á þessu tímabili, en liðið er í 16. sæti með 11 stig að 12 leikjum loknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner