Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 26. nóvember 2016 19:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Rooney: Gerrard einn sá besti
Rooney ber mikla virðingu fyrir Gerrard
Rooney ber mikla virðingu fyrir Gerrard
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney fyrirliði Manchester United og enska landsliðsins hrósar Steven Gerrard í hástert eftir að sá síðarnefndi lagði skóna á hilluna

Eins og flestir ættu að vita lagði Steven Gerrard skóna sína á hilluna frægu í vikunni og hafa margir samherjar sem og andstæðingar hrósað þessum fyrrverandi fyrirliða Liverpool og Englands.

Nú hefur Rooney bæst við í hópinn og en hann tók einmitt við fyrirliðabandinu hjá Englandi eftir að Gerrard hætti að leika með landsliðinu.

„Einn sá besti sem ég hef spilað með. Einn sá besti sem ég hef spilað á móti. Einn sá besti sem uppi hefur verið!" sagði Rooney um Gerrard á Instagram síðu sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner