Chievo 0-0 AC Milan
AC Milan heimsótti Chievo í eina leik dagsins í Serie A.
Þetta mikla stórveldi í evrópskum fótbolta hefur engan heillað á tímabilinu og á því varð engin breyting í kvöld þegar liðið náði ekki að skora gegn Chievo en Chievo er í 16.sæti deildarinnar.
AC Milan hefði með sigri getað komist uppfyrir erkifjendur sína í Inter sem eiga leik á morgun en þrátt fyrir að vera meira með boltann tókst lærisveinum Filippo Inzaghi ekki að ógna marki heimamanna af neinu viti.
Liðið því í 9.sæti með 34 stig eftir 25 leiki.
Athugasemdir