Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. maí 2017 16:29
Kristófer Kristjánsson
2. deild kvenna: Hrafnhildur tryggði Gróttu sigur
Grótta hefur unnið síðustu tvo leiki sína
Grótta hefur unnið síðustu tvo leiki sína
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Einherji 0 - 1 Grótta
0-1 Hrafnhildur Fannarsdóttir ('33)

Hrafnhildur Fannarsdóttir setti þrennu í síðasta leik Gróttu og hún var aftur á skotskónnum í dag er hún gerði eina mark leiksins í sigri á Einherja.

Markið kom á 33. mínútu og tryggði Gróttu sinn annan sigur í röð í fjórðu umferð 2. deildar kvenna en liðið hafði tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.

Með sigrinum er Grótta nú í 4. sæti, stigi frá toppliði Fjölnis sem á leik til góða.

Einherji situr í næst neðsta sæti með 1 stig en liðið hefur spilað þrjá leiki.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner