Blaðamaðurinn Kris Voakes segir að Wayne Rooney eigi að hætta að spila með enska landsliðinu. Lionel Messi tilkynnti að hann væri hættur að spila með landsliði Argentínu eftir tap í úrslitum Copa America en Voakes telur að Rooney ætti frekar að hætta með enska landsliðinu.
„Eftir að hann skaust á sjónarsviðið með landlsiðinu 17 ára gamall töldu margir að hann yrði einn besti leikmaður sem England hefur alið af sér. Nú er hann á heimleið eftir niðurlæginguna gegn Íslandi á EM. Hann er orðinn enn einn leikmaðurinn sem náði ekki að standa sig á stórmótum." sagði Voakes í pistli sínum í morgun.
„Þetta var stór stund á ferlinum hans. Eftir að hafa ekki náð að fylgja eftir frábæru gengi sínu á EM árið 2004 var þetta hans tækifæri til að ssína að hann hafi enn eitthvað fram að færa."
„Það er mikill synd að Messi sé hættur í alþjóðafótbolta en það sama verður ekki sagt um Rooney. Hann ætti að hætta fyrr en seinna."
Athugasemdir