Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 28. ágúst 2015 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Real og Barca eiga heimaleiki
Atletico Madrid heimsækir Sevilla í stórslag helgarinnar.
Atletico Madrid heimsækir Sevilla í stórslag helgarinnar.
Mynd: Getty Images
Tveir leikir verða sýndir í beinni á Stöð 2 Sport í 2. umferð spænska boltans um helgina.

Fjörið byrjar strax í kvöld þegar Villarreal mætir Espanyol og svo eiga David Moyes og lærisveinar hans fyrsta leik morgundagsins gegn Sporting Gijon.

Barcelona mætir Malaga í beinni útsendingu og Real Madrid fær Real Betis í heimsókn skömmu síðar.

Á sunnudaginn fær Eibar heimsókn frá Athletic Bilbao áður en Sevilla og Atletico Madrid eigast við í stórslag á sama tíma og Valencia fær heimsókn frá Deportivo La Coruna.

Föstudagur:
18:30 Villarreal - Espanyol

Laugardagur:
16:30 Real Sociedad - Sporting Gijon
18:30 Barcelona - Malaga (Stöð 2 Sport)
20:00 Celta Vigo - Rayo Vallecano
20:30 Real Madrid - Real Betis (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
16:30 Eibar - Athletic Bilbao
18:30 Sevilla - Atletico Madrid
18:30 Valencia - Deportivo La Coruna
20:30 Getafe - Granada
20:30 Las Palmas - Levante
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner