Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   sun 28. ágúst 2016 23:11
Ívan Guðjón Baldursson
Andri Adolphsson: Þetta var klárt víti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Adolphsson var í byrjunarliði Vals sem sigraði KR 2-0 fyrr í kvöld. Fyrsta mark leiksins kom á 73. mínútu þegar Andri fékk dæmda vítaspyrnu sem Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði úr.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  0 KR

„Frábær leikur fyrir áhorfendur og mjög gaman að spila hann, það voru allir klárir í leikinn og mikið barist," sagði Andri áður en hann var spurður út í hvort hann hafi átt skilið að fá umdeilda vítaspyrnu dæmda sér í hag á lokakaflanum.

„Ég er bara að fara að skalla boltann og svo keyrir einhver aftan í mig, þannig ég held að þetta sé klárt víti. Hann sparkaði mig niður held ég og ég náði ekki að skalla boltann."

Andri sagðist svo ekki hafa hugmynd um hvers vegna Skúli Jón Friðgeirsson hafi verið rekinn af velli og talaði um markmið Vals á tímabilinu.

„Að sjálfsögðu náum við Evrópusæti með að vera bikarmeistarar þannig að við ætlum að fara í hvern leik til að vinna og hafa gaman af þessu. Ég er búinn að sjá alla leikmennina brosandi allan daginn í dag, þetta er ógeðslega gaman."
Athugasemdir
banner
banner