Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 28. október 2016 09:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
U-21 árs þjálfari Man Utd gæti tekið við Wigan
Warren Joyce
Warren Joyce
Mynd: Getty Images
Warren Joyce, þjálfari U-21 árs liðs Manchester United þykir líklegur sem næsti þjálfari Wigan en félagið leikur í Championship deildinni.

Gary Caldwell var rekinn frá félaginu í síðustu viku eftir slæma byrjun á nýju tímabili þar sem liðið hefur aðeins unnið tvo af fyrstu 14 leikjum sínum en Caldwell kom Wigan upp um deild á síðustu leiktíð.

Joyce er í miklum metum á Old Trafford og hefur hann hjálpað leikmönnum eins og Paul Pogba, Jesse Lingard og Adnan Januzaj á ferlinum.

Hinn 51 árs gamli Joyce þjálfaði áður belgíska félagið Royal Antwerp en hann hefur unnið Englandsmeistaratitil U-21 árs liða tvö ár í röð.
Athugasemdir
banner
banner