Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. mars 2015 14:35
Arnar Geir Halldórsson
Falcao: Einbeiti mér bara að Man Utd
Falcao vonast eftir stærra hlutverki
Falcao vonast eftir stærra hlutverki
Mynd: Getty Images
Radamel Falcao segist bara einbeita sér að því að klára tímabilið með Man Utd af krafti.

Þessi 29 ára framherji hefur verið mikið á milli tannanna á fólki en hann hefur ekki fundið sig á Old Trafford í vetur og þykir ólíklegt að enska stórliðið muni kaupa kappann sem er á láni hjá félaginu.

Falcao hefur verið orðaður við Juventus undanfarið og herma fregnir að ítalska liðið hafi náð samkomulagi við Monaco um kaup á Falcao. Kólumbíumaðurinn hefur engan áhuga á að spá í því.

,,Er Juventus að leita að mér? Þeir tala mikið en ég einbeiti mér 100% að Manchester United. Það eru nokkrir mikilvægir leikir eftir áður en tímabilið klárast og ég vonast til að fá stærra hlutverk í þeim",

Þetta lét Falcao hafa eftir sér í útvarpsviðtali en hann er í landsliðsverkefni með Kólumbíu og skoraði tvö mörk í 6-0 sigri á Barein síðastliðinn fimmtudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner