Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 29. apríl 2017 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skilur ekki Mourinho - „Ferguson hefði aldrei gert þetta"
Shaw hefur fengið á sig gagnrýni frá Mourinho.
Shaw hefur fengið á sig gagnrýni frá Mourinho.
Mynd: Getty Images
Teddy Sheringham, fyrrum leikmaður Manchester United, efast um aðferðir Jose Mourinho, stjóra liðsins, í garð ungra leikmanna eins og Luke Shaw og Antony Martial.

Mourinho hefur gagnrýnt bæði Shaw og Martial opinberlega, hann hefur kraftist þess að sjá meira frá þeim.

Sheringham er efins og segir að Sir Alex Ferguson, sem var stjóri United í áraraðir, myndi ekki nota sömu aðferðir.

„Ég spilaði fyrir marga af bestu knattspyrnustjórum heims og ég fékk aldrei gagnrýni frá þeim í fjölmiðlum," sagði Sheringham.

„Sir Alex Ferguson hefði aldrei gert þetta, Terry Venables hefði klárlega aldrei gert og fyrir mér voru þeir tveir af bestu stjórum heims."

„Þeir sögðu þér í búningsklefanum hvað þú værir að gera rangt, eða á skrifstofunni, en þeir stóðu alltaf við bakið á þér í fjölmiðlum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner