Real Madrid 4 - 1 Real Sociedad
0-1 Aritz Elustondo ('1 )
1-1 James Rodriguez ('3 )
2-1 Sergio Ramos ('37 )
3-1 Karim Benzema ('52 )
4-1 Karim Benzema ('76 )
0-1 Aritz Elustondo ('1 )
1-1 James Rodriguez ('3 )
2-1 Sergio Ramos ('37 )
3-1 Karim Benzema ('52 )
4-1 Karim Benzema ('76 )
Ronaldo-lausir Madrídingar fengu Real Sociedad í heimsókn á Santiago Bernabeu í dag.
Það blés ekki byrlega fyrir heimamönnum því gestirnir komust yfir strax á fyrstu mínútu leiksins. James Rodriguez var þó fljótur að leiðrétta þessa byrjun og jafnaði með góðum skalla eftir fyrirgjöf Marcelo á 3.mínútu.
Sergio Ramos kom heimamönnum í forystu á 37.mínútu og í síðari hálfleik var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda.
Franski markahrókurinn, Karim Benzema, bætti við tveim mörkum og þriggja marka sigur toppliðsins staðreynd. Alfreð Finnbogason sat allan tímann á varamannabekk Real Sociedad.
Athugasemdir