Sebastian Kehl, reynsluboltinn hjá Borussia Dortmund, segir lítið mál að gíra sig upp í leiki gegn Bayern München.
Dortmund hefur gengið hrikalega illa í upphafi tímabils en liðið heimsækir topplið Bayern á morgun. Guli kafbáturinn hefur tapað fimm af síðustu sex deildarleikjum og er í fimmtánda sætinu.
Dortmund hefur gengið hrikalega illa í upphafi tímabils en liðið heimsækir topplið Bayern á morgun. Guli kafbáturinn hefur tapað fimm af síðustu sex deildarleikjum og er í fimmtánda sætinu.
„Gegn Bayern höfum við oft litið vel út. Það er möguleiki á morgun ef við verðum þéttir, þá eigum við möguleika," sagði Kehl við Kicker.
„Við þurfum að hafa heppnina með okkur í liði en umfram allt þurfum við að rétt stöðu okkar í deildinni."
SkjárSport sýnir Bayern - Dortmund á morgun klukkan 17:30.
Athugasemdir