Kópavogsvöllur
laugardagur 28. september 2019  kl. 14:00
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Blíðskapaveður. Teppið iðagrænt.
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 1032
Maður leiksins: Kennie Chophart
Breiðablik 1 - 2 KR
0-1 Kennie Chopart ('24)
0-2 Kristján Flóki Finnbogason ('26)
1-2 Thomas Mikkelsen ('89, víti)
Byrjunarlið:
1. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
6. Alexander Helgi Sigurðarson
8. Viktor Karl Einarsson ('66)
9. Thomas Mikkelsen
10. Guðjón Pétur Lýðsson ('66)
11. Höskuldur Gunnlaugsson ('84)
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson
26. Alfons Sampsted

Varamenn:
12. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
7. Gísli Eyjólfsson ('66)
17. Þórir Guðjónsson
18. Arnar Sveinn Geirsson
35. Kristian Nökkvi Hlynsson ('84)
45. Brynjólfur Darri Willumsson ('66)
62. Ólafur Guðmundsson

Liðstjórn:
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Guðmundur Steinarsson
Ólafur Pétursson
Þorsteinn Máni Óskarsson
Aron Már Björnsson
Marinó Önundarson
Jón Magnússon

Gul spjöld:
Viktor Örn Margeirsson ('50)
Davíð Ingvarsson ('85)

Rauð spjöld:
@kristoferjonss Kristófer Jónsson
93. mín Leik lokið!
Þá flautar Jóhann Ingi til leiksloka. 2-1 sigur KR staðreynd.

Viðtöl og skýrsla koma síðar.
Eyða Breyta
92. mín
VÁÁÁÁ BLIKAR SVO NÁLÆGT ÞVÍ AÐ JAFNA!!!!

Gísli Eyjólfsson hleypur hér framhjá fjórum KR-ingum og setur boltann inná Thomas Mikkelsen sem að nær ágætis touchi en skot hans er beint á Beiti í markinu. Frábær undirbúningur hjá Gísla.
Eyða Breyta
91. mín
Kristian Nökkvi reynir hér skot af vítateigshorninu en það er víðsfjarri.
Eyða Breyta
90. mín
Þremur mínútum bætt við.
Eyða Breyta
89. mín Mark - víti Thomas Mikkelsen (Breiðablik)
Beitir fer í rétt horn en spyrnan er alltof föst fyrir hann. Fáum við dramatík?
Eyða Breyta
88. mín
HAAA!? JÓHANN DÆMIR VÍTI Á BEITI!!!

Thomas Mikkelsen fær langan bolta innfyrir frá Alfons og fer í 50/50 baráttu við Beiti. Beitir virðist vera með boltann en Mikkelsen fellur. Mjög undarlegt.
Eyða Breyta
87. mín
Spyrnan ratar beint á kollinn á Brynjólfi Darra en skalli hans fer beint í Arnór Svein og yfir. Ekkert verður úr næstu hornspyrnu.
Eyða Breyta
86. mín
Blikar fá hornspyrnu. Alexander Helgi ætlar að taka.
Eyða Breyta
85. mín Gult spjald: Davíð Ingvarsson (Breiðablik)
Davíð gerir sig sekan um pirringsbrot og fær réttilega gult spjald.
Eyða Breyta
84. mín Kristian Nökkvi Hlynsson (Breiðablik) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)
Kristian Nökkvi Hlynsson að koma inná í sínum fyrsta Pepsi Max-deildarleik. Fæddur árið 2004.
Eyða Breyta
81. mín Ægir Jarl Jónasson (KR) Pablo Punyed (KR)
Síðasta skipting KR í leiknum.
Eyða Breyta
79. mín
USSSS!!!!

Alfons með geggjaða fyrirgjöf sem Höskuldur hittir ekki nánast einn fyrir opnu marki. Blikar eru ekki búnir að gefast upp.
Eyða Breyta
78. mín
Nú reynir Davíð Ingvarsson skot eftir hornspyrnu Alexanders en eins og svo oft áður fer það hátt yfir.
Eyða Breyta
77. mín
Klaufaleg mistök hjá Elfari Frey leiða til þess að Tobias Thomsen sem að á laflaust skot af vítapunktinum sem að Gulli á í engum erfiðleikum með.
Eyða Breyta
73. mín
Spyrna Alexanders fer beint í vegginn.
Eyða Breyta
72. mín Gult spjald: Aron Bjarki Jósepsson (KR)
Aftur brýtur Aron Bjarki rétt fyrir utan teig og fær gult að launum.
Eyða Breyta
70. mín
Alexander Helgi tekur spyrnuna á nærstöng en Beitir slær hann afturfyrir.
Eyða Breyta
69. mín
Aron Bjarki dæmdur brotlegur við vítateigshornið.
Eyða Breyta
66. mín Brynjólfur Darri Willumsson (Breiðablik) Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Tvöföld skipting hjá Blikum.
Eyða Breyta
66. mín Gísli Eyjólfsson (Breiðablik) Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðablik)

Eyða Breyta
66. mín
Viktor Karl Einarsson reynir enn eitt skotið en sem fyrr er það langt framhjá.
Eyða Breyta
62. mín Aron Bjarki Jósepsson (KR) Kennie Chopart (KR)
Kennie búinn að vera flottur í dag en var aðeins farinn að haltra. Aron Bjarki, sem að nýverið skrifaði undir nýjan samning, kemur inn í hans stað.
Eyða Breyta
61. mín
Guðjón Pétur með góða spyrnu inná teiginn þar sem að Thomas Mikkelsen kastar sér á eftir boltanum en skot hans fer yfir markið.
Eyða Breyta
60. mín
Arnór Sveinn brýtur hér á Thomas Mikkelsen sem er við það að sleppa í gegn. Sleppur við spjald.
Eyða Breyta
55. mín
Hér dettur boltinn fyrir Viktor Örn eftir góða pressu Höskuldar en skot hans er framhjá markinu.
Eyða Breyta
52. mín
Óskar Örn nær hér góðri fyrirgjöf sem að Tobias skallar aftur fyrir markið. Þar laumar Kennie Chophart sér en skot hans af markteigslínunni er yfir markið.
Eyða Breyta
50. mín Finnur Orri Margeirsson (KR) Arnþór Ingi Kristinsson (KR)
Arnþór fær fimm mínútur í seinni hálfleik.
Eyða Breyta
50. mín Gult spjald: Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)
Fyrsta gula spjald leiksins.
Eyða Breyta
46. mín
Þá er leikurinn hafinn að nýju. KR-ingar byrja með boltann.
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Þá flautar Jóhann Ingi til hálfleiks. Leikurinn verið heldur bragðdaufur ef að ég á að vera hreinskilinn. Íslandsmeistararnir leiða 2-0.
Eyða Breyta
45. mín
Einni mínútu bætt við.
Eyða Breyta
44. mín
Voðalega lítið að gerast þessa stundina. KR-ingar mest megnis að halda boltanum innan liðsins.
Eyða Breyta
38. mín
Kennie með fasta fyrirgjöf sem að Pálmi tekur í fyrsta en skotið er hátt yfir.
Eyða Breyta
35. mín
Alfons reynir skot fyrir utan teig en það fer hátt yfir.
Eyða Breyta
33. mín
Usss Breiðablik í góðu færi!

Guðjón Pétur með draumabolta úr aukaspyrnu utan af kanti en bæði Thomas Mikkelsen og Viktor Örn eru sentímeter frá að ná að pota boltanum inn.
Eyða Breyta
27. mín
Hér hinum meginn er Viktor Karl kominn í teiginn og fellur eftir viðskipti sín við Kristinn Jónsson. Jóhann Ingi sér hins vegar ekkert athugavert og dæmir markspyrnu við litla hrifningu Blika.
Eyða Breyta
26. mín MARK! Kristján Flóki Finnbogason (KR), Stoðsending: Óskar Örn Hauksson
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA!?!?!?

Óskar Örn fær boltann lengst utan á vinstri kanti og setur baneitraðan bolta fyrir. Þar kemur Kristján Flóki á sprettinum og þrumar boltanum inn með enninu.
Eyða Breyta
24. mín MARK! Kennie Chopart (KR), Stoðsending: Tobias Thomsen
DÖNSK SAMVINNA EINS OG HÚN GERIST BEST!!!

Kennie rennir boltanum á Tobias úr hornspyrnunni sem að setur hann aftur á vítateigshornið á Kennie. Kennie ýtir á R1 og hring og smyr boltanum í fjærhornið. Geggjað mark.
Eyða Breyta
23. mín
KR-ingar fá hornspyrnu. Kennie tekur.
Eyða Breyta
21. mín
Netið hér á Kópavogsvelli í einhverju tómu rugli. En sem betur fer hefur ekkert markvert gerst á þeim tíma.
Eyða Breyta
16. mín
Höskuldur með góðan sprett upp vinstri kantinn og rennir honum svo út á Alexander Helga sem að skýtur yfir markið. Fín sókn hjá Blikum.
Eyða Breyta
12. mín
Finnur er staðinn upp og getur haldið leik áfram.
Eyða Breyta
10. mín
Finnur Tómas missir hér boltann klaufalega frá sér og fer á fullu í návígi í Thomas Mikkelsen sem að svarar í sömu mynt. Finnur liggur eftir og þarf að fá aðhlynningu. Vonandi er þetta ekkert alvarlegt.
Eyða Breyta
9. mín
Thomas Mikkelsen við það að sleppa hérna í gegn en Arnór Sveinn gerir gríðarlega vel og kemst fyrir hann. Mikkelsen brýtur síðan á Arnóri og réttilega dæmdur brotlegur.
Eyða Breyta
6. mín
Pablo Punyed reynir hér skot lengst utan af velli en það er víðfjarri.
Eyða Breyta
5. mín
Boltinn dettur fyrir Óskar Örn rétt fyrir utan teig og reynir hann skot en það fer beint í bossann á Pálma Rafni og útfyrir.
Eyða Breyta
3. mín
Blikar fá horn sem að Guðjón Pétur tekur. Óskar Örn skallar hana frá út á Alfons sem að reynir skot í fyrsta. Það er hins vegar hátt yfir.
Eyða Breyta
1. mín
KR-ingar komast hér í fínt færi strax í upphafi. Kristinn Jónsson með stórhættulegan bolta inní teig á Tobias Thomsen sem að er flaggaður rangstæður.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Þá er leikurinn hafinn. Blikar byrja með boltann.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Allskonar hyllingar hér í upphafi leiks. Viktor Örn, Gulli og Damir fá allir hér blóm fyrir þeirra framlag til íslenska boltans. Damir spilar sinn 200. leik fyrir Breiðablik í dag og óskum við honum til hamingju með það.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þá ganga liðin inná völlinn. Blikar standa heiðursvörð og "Við erum KR" með Bubba Morthens spilað í græjunum. Virðingavert hjá Blikunum.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Thomas Mikkelsen, framherji Breiðabliks, er í harðri baráttu um markakóngstitilinn og mun hann því mjög líklega láta mikið fyrir sér fara í dag. Hann er með 12 mörk í deildinni líkt og Gary Martin, framherji ÍBV. Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, er hins vegar markahæstur sem stendur með 13 mörk. Takist Mikkelsen að skora í dag á meðan að Gary Martin og Hilmari Árna mistekst það verður Daninn markakóngur í ár vegna fjölda spilaðra leikja.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þá eru byrjunarliðin klár. Ágúst Gylfason gerir eina breytingu á liði sínu frá síðasta leik Blika gegn ÍBV. Gísli Eyjólfsson kemur út og inn í hans stað kemur Viktor Karl Einarsson.

KR-ingar gera eina breytingu á liði sínu frá síðasta leik gegn FH. Skúli Jón Friðgeirsson er í leikbanni og hefur því spilað sinn síðasta leik fyrir KR en hann ætlar að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Inn í hans stað kemur Arnþór Ingi Kristinsson.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Blikar vilja hins vegar pottþétt ekki missa KR svona langt frammúr sér og geta minnkað forskotið niður í 8 stig. Þá er þetta einnig síðasti leikur Ágústs Gylfasonar við stjórnvölinn hjá Breiðablik en honum var sagt upp í vikunni. Gústi vill væntanlega sanna sig í dag með því að vinna Íslandsmeistaranna fyrir verðandi vinnuveitendur sína, hverjir sem að það nú verða.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þrátt fyrir að leikurinn í dag skipti þannig séð engu máli þá er ekki þar með sagt að það sé ekkert undir. KR-ingar vilja væntanlega klára mótið með stæl. Vinni þeir í dag klára þeir mótið með 14 stigum meira en Breiðablik og jafna stigametið sem að sett hefur verið í efstu deild á Íslandi. Þetta met settu þeir sjálfir árið 2013 þegar að þeir fengu 52 stig, en Stjarnan jafnaði metið árið eftir.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hér er um að ræða leik tveggja efstu liðanna og sama hvað gerist í dag mun þeim ekki vera haggað úr sínum sætum. KR-ingar tóku við Íslandsmeistara bikarnum eftir síðasta leik gegn FH á Meistaravöllum á meðan að Breiðablik situr sem fastast í öðru sæti.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Jú komiði sæl og blessuð og veriði hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Breiðabliks og KR í lokaumferð Pepsi Max-deildar karla.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Arnþór Ingi Kristinsson ('50)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart ('62)
16. Pablo Punyed ('81)
19. Kristinn Jónsson
20. Tobias Thomsen
21. Kristján Flóki Finnbogason
22. Óskar Örn Hauksson (f)
25. Finnur Tómas Pálmason

Varamenn:
13. Sindri Snær Jensson (m)
6. Gunnar Þór Gunnarsson
8. Finnur Orri Margeirsson ('50)
9. Björgvin Stefánsson
14. Ægir Jarl Jónasson ('81)
18. Aron Bjarki Jósepsson ('62)
23. Atli Sigurjónsson

Liðstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Bjarni Eggerts Guðjónsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Alex Freyr Hilmarsson
Jón Hafsteinn Hannesson
Friðgeir Bergsteinsson
Valgeir Viðarsson

Gul spjöld:
Aron Bjarki Jósepsson ('72)

Rauð spjöld: