Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Ísland U21
1
0
Írland U21
Sveinn Aron Guðjohnsen '30 , víti 1-0
Lee O'Connor '88
15.10.2019  -  15:00
Víkingsvöllur - Heimavöllur hamingjunnar
Undankeppni EM U21
Aðstæður: 10 gráðu hiti og gola. Dropar aðeins úr lofti.
Dómari: Dumitri Muntean (Moldavía)
Maður leiksins: Alex Þór Hauksson
Byrjunarlið:
13. Patrik Sigurður Gunnarsson (m)
2. Alfons Sampsted
5. Ísak Óli Ólafsson ('79)
6. Alex Þór Hauksson
9. Stefán Teitur Þórðarson ('76)
11. Jón Dagur Þorsteinsson ('91)
16. Hörður Ingi Gunnarsson
17. Sveinn Aron Guðjohnsen ('76)
18. Willum Þór Willumsson
20. Kolbeinn Birgir Finnsson
23. Ari Leifsson (f)

Varamenn:
1. Elías Rafn Ólafsson (m)
7. Jónatan Ingi Jónsson
7. Finnur Tómas Pálmason ('79)
8. Daníel Hafsteinsson ('76)
8. Kolbeinn Þórðarson
9. Brynjólfur Willumsson (f) ('91)
15. Valdimar Þór Ingimundarson ('76)
19. Guðmundur Andri Tryggvason
21. Þórir Jóhann Helgason

Liðsstjórn:
Arnar Þór Viðarsson (Þ)
Eiður Smári Guðjohnsen (Þ)

Gul spjöld:
Jón Dagur Þorsteinsson ('26)
Ísak Óli Ólafsson ('34)
Sveinn Aron Guðjohnsen ('42)
Patrik Sigurður Gunnarsson ('94)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
GLÆSILEGT!

Flottur sigur Íslands en Írarnir höfðu ekki tapað leik í riðlinum fyrir daginn í dag. Þeir eru enn á toppi riðilsins með 10 stig en Ísland er með 9 stig.
94. mín Gult spjald: Patrik Sigurður Gunnarsson (Ísland U21)
Fyrir tafir
94. mín
Ísland fær aukaspyrnu... þetta er að landast.
93. mín
Hlutirnir ekki að ganga upp hjá Írunum.
91. mín
Inn:Brynjólfur Willumsson (f) (Ísland U21) Út:Jón Dagur Þorsteinsson (Ísland U21)
90. mín
5 mínútur í uppbótartíma.
88. mín Rautt spjald: Lee O'Connor (Írland U21)
Fær sitt annað gula spjald! Sparkar Jón Dag niður!

Þetta eru góðar fréttir.
86. mín
Valdimar að komast í dauðafæri... flaggaður rangstæður.
85. mín
Írar með skot hátt yfir markið. Ekki mikið eftir!
83. mín
Nokkuð hættuleg sóknarlota Íra en boltinn endar í öruggu fangi Patriks í markinu. Það er farið að rigna í Fossvoginum.
81. mín
Alex Þór með stórhættulegt skot sem Kelleher varði vel!
79. mín
Inn:Finnur Tómas Pálmason (Ísland U21) Út:Ísak Óli Ólafsson (Ísland U21)
Skipti í miðverðinum. Ísak, sem hefur átt frábæran leik, þarf að fara meiddur af velli. Finnur Tómas kemur inn í sínum fyrsta U21 landsleik.
78. mín
Jón Dagur kemur sér í skotfæri en skot hans fer yfir markið.
76. mín
Inn:Daníel Hafsteinsson (Ísland U21) Út:Stefán Teitur Þórðarson (Ísland U21)
76. mín
Inn:Valdimar Þór Ingimundarson (Ísland U21) Út:Sveinn Aron Guðjohnsen (Ísland U21)
76. mín
Írar með skot sem Patrik ver.
74. mín
Inn:Gavin Kilkenny (Írland U21) Út:Michael Obafemi (Írland U21)
74. mín
Stefán Teitur þarf aðhlynningu. Leikurinn stopp.
73. mín
Ísland fékk aukaspyrnu úti vinstra megin. Jón Dagur renndi boltanum á Alex Þór sem var í flottu skotfæri fyrir utan teig en hitti boltann illa.
68. mín
Sveinn Aron með skot yfir. Skotið fyrir utan teig.
67. mín
Dara O'Shea með kraftlítinn skalla eftir hornspyrnu. Patrik ver þetta örugglega.
65. mín
Ísland fékk hornspyrnu. Willum nálægt því að komast í boltann og ná skalla á marki en rétt missti af honum.
62. mín
DAUÐAFÆRI ÍRA!!!

Dara O'Shea aleinn á fjærstönginni en skýtur í hliðarnetið. Þarna var okkar liið heppið.
60. mín
Stórhættuleg sending og Adam Idah kemur sér í hörkufæri fyrir Íra en gerir þetta ekki nægilega vel, fer í þrönga stöðu og skýtur hátt yfir.
59. mín
Sveinn Aron með skot hátt yfir. Jón Dagur ósáttur við að fá ekki boltann, var aleinn í góðri stöðu vinstra megin.
57. mín
Kolbeinn með skottilraun af löngu færi. Framhjá.
56. mín
Hættuleg sókn Íra! Mandroiu með fyrirgjöf sem Patrik náði að slá frá!
55. mín
Sóknarleikur Íra verið mjög tilviljanakenndur. Megi það halda þannig áfram.
53. mín
Eftir hættulega sókn Íslands á Stefán Teitur skot framhjá. Boltinn af varnarmanni og Ísland fær hornspyrnu. Ekkert kemur út úr horninu.
47. mín
Jón Dagur með lipur tilþrif, gefur fyrir og Sveinn Aron skallar í varnarmann og framhjá. Hornspyrna.

Jón Dagur með hornið en Kelleher handsmar boltann af fádæma öryggi.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn

Blástur þvert yfir völlinn og vel kuldalegt þegar Moldóvinn flautar til seinni hálfleiks. Engar breytingar á liðunum.
45. mín
Hálfleikur
Flottur fyrri hálfleikur hjá okkar strákum og forystan verðskulduð. Nú þarf bara að halda uppteknum hætti í seinni hálfleik.

Írarnir voru reyndar nálægt því að lauma inn jöfnunarmarki í lok fyrri hálfleiksins en Adam Idah átti þá skalla yfir eftir að Patrik hitti ekki boltann.

Líf og fjör í Fossvoginum!
44. mín
Obafemi með skot fyrir utan teig en beint í fangið á Patrik. Fyrsta skot Írlands á rammann.
42. mín Gult spjald: Sveinn Aron Guðjohnsen (Ísland U21)
Sparkaði leikmann Íra niður á miðjum vellinum.
41. mín
Ari Leifsson brotlegur og Írar fá aukaspyrnu þremur metrum fyrir utan teiginn. Mandroiu tekur aukaspyrnuna en rennur í skotinu og yfir fór boltinn.
40. mín
Gestirnir fá hornspyrnu. Það er búið að bæta aðeins í vindinn hérna í Fossvogi, jæja þá kemur hornið en Patrik gerir vel og slær boltann í burtu.
36. mín
Sveinn Aron með skalla en varnarmaður Írlands náði að komast fyrir.
35. mín
Þessi forysta Íslands svo sannarlega verðskulduð. Okkar strákar verið betri og átt fimm marktilraunir en írsku gestirnir aðeins eina.
34. mín Gult spjald: Ísak Óli Ólafsson (Ísland U21)
Fyrir brot á miðjum vallarhelmingi Íslands.
30. mín Gult spjald: Lee O'Connor (Írland U21)
30. mín Mark úr víti!
Sveinn Aron Guðjohnsen (Ísland U21)
ÞARNA!

Annað mark Sveins Arons af vítapunktinum í þessari undankeppni. Skoraði af miklu öryggi. Sendi Kelleher í rangt horn á meðan hann skaut niðri hægra megin (séð frá sér).
29. mín
ÍSLAND FÆR VÍTASPYRNU!

Ari Leifsson með skot eftir hornspyrnu, boltinn í hendina á leikmanni Írlands.
29. mín
Hörður Ingi með hættulega fyrirgjöf en því miður nær enginn af okkar mönnum að komast í boltann. Stuttu seinna á Willum skot sem fer af varnarmanni og Ísland fær hornspyrnu.
26. mín Gult spjald: Jón Dagur Þorsteinsson (Ísland U21)
Spjald fyrir leikaraskap!

Jón Dagur fellur í teignum í baráttu við Dara O'Shea en Muntean dómari spjaldar fyrirliða Íslands fyrir dýfu!
25. mín
Mandroiu með hættulega sendingu inn í teiginn en Ísak Óli nær að verjast þessu. Írar að eflast.
22. mín
Hörður Ingi Gunnarsson brýtur á Michael Obafemi rétt við vítateigsbogann. Írland fær aukaspyrnu á STÓRhættulegum stað!

Daniel Mandroiu tekur spyrnuna en nær ekki að hitta á rammann.
20. mín
Hætta í teig Íslands eftir fyrirgjöf frá Elbouzedi en á endanum ná okkar menn að hreinsa boltann í burtu.
18. mín
Jon Dagur með virkilega lúmskt skot úr þröngu færi! Kelleher náði að kýla boltann frá.
15. mín
Kolbeinn vinnur hornspyrnu frá hægri. Tekur spyrnuna sjálfur. Kelleher grípur fyrirgjöfina af öryggi.
13. mín
Írland fær hornspyrnu. Fín spyrna fyrir en Patrik nær á endanum að handsama boltann.
11. mín
Leikurinn farinn á fleygiferð aftur. Íslenska liðið byrjar þennan leik betur. Jón Dagur með fyrirgjöf en Kolbeinn Finnsson náði ekki að teygja sig í knöttinn.
7. mín
Leikurinn stöðvaður því Conor Masterson þarf aðhlynningu. Fékk blóðnasir.
5. mín
Kolbeinn Birgir með skot fyrir utan teig, en talsvert frá því að hitta á rammann.
4. mín
Ísland á fyrstu marktilraun leiksins.

Jón Dagur með skot fyrir utan teig en beint í fangið á Kelleher. Kelleher aðeins fengið á sig eitt mark í undankeppninni.
3. mín
Hörður ingi með fyrirgjöf frá vinstri en yfir allt og alla.
1. mín
Leikur hafinn
Írarnir sem hefja leik en þeir sækja í átt að íþróttahúsinu í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Jæja þá ganga liðin út á völlinn. Allt klárt á Víkingsvelli sem hefur verið heimavöllur U21 landsliðsins í þessari undankeppni. Framundan eru þjóðsöngvarnir.
Fyrir leik
Þjálfarateymi Íslands fékk gagnrýni fyrir að tefla fram of sókndjarfri miðjusveit í tapinu í Svíþjóð. Alex Þór Hauksson, leikmaður Stjörnunnar, er nú kominn inn til að sinna varnarhlutverki á miðjunni.

Ég bjóst við því að sjá Finn Tómas Pálmason í byrjunarliðinu á kostnað Ara Leifssonar en Arnar heldur sér við sama miðvarðapar.
Fyrir leik
Ég ætla ekki að ljúga því að neinum að ég viti mikið um þetta írska lið en markvörður liðsins er allavega í herbúðum Liverpool.

Þá er áhugavert að Michael Obafemi, leikmaður Southampton, er að byrja sinn fyrsta U21 landsleik. Hann er samt búinn að spila fyrir A-landsliðið. Hann spilaði gegn Dönum í Þjóðadeildinni síðasta vetur.
Fyrir leik
Fyrir leik
Fyrir leik
Arnar Þór Viðarsson gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik. Daníel Hafsteinsson og Mikael Neville Anderson fara út en sá síðarnefndi er meiddur.

Inn koma Alex Þór Hauksson og Hörður Ingi Gunnarsson.
Fyrir leik
Dómararnir í dag koma frá Moldóvu. Áhugavert er að aðaldómarinn Dumitri Muntean er að koma í annað sinn til Íslands í dómaraverkefni á þessu ári. Hann dæmdi leik Stjörnunnar og Espanyol í Garðabænum.
Fyrir leik
Sveinn Aron Guðjohnsen, leikmaður Íslands:
"Það er gott að fá leik svona strax á eftir. Við áttum bara lélegan leik gegn Svíþjóð. Það vantaði upp á allt hjá okkur í þeim leik. Við ætlum okkur í næsta leik og taka þrjú stig. Írarnir hafa verið góðir en mér finnst við eiga góða möguleika. Það sem ég hef séð þá tel ég okkur hafa betri leikmenn og vera betra lið."
Fyrir leik
Írska liðið er öflugt og vel spilandi. Það er ósigrað í riðlinum, er með tíu stig eftir fjóra leiki. Í síðustu viku gerði Írland markalaust jafntefli á heimavelli gegn Ítalíu.
Fyrir leik
Íslenska U21 landsliðið mætir því írska í undankeppni EM klukkan 15:00 á Víkingsvelli. Íslenska liðið er með sex stig að loknum þremur leikjum en á laugardag steinlá liðið 5-0 gegn Svíum. Liðið er væntanlega ákveðið í því að sýna í dag að sá leikur hafi verið slys!
Byrjunarlið:
1. Caoimhin Kelleher
2. Lee O'Connor
3. Kameron Ledwidge
4. Conor Masterson
5. Dara O'Shea
6. Conor Coventry
7. Zachary Elbouzedi
8. Jayson Molumby
9. Adam Idah
14. Daniel Mandroiu
20. Michael Obafemi ('74)

Varamenn:
23. Gavin Bazunu (m)
10. Connor Ronan
12. Jason Knight
15. Nathan Collins
16. Jack Taylor
17. Gavin Kilkenny ('74)
18. Simon Power
19. Aaron Drinan
21. Liam Scales

Liðsstjórn:
Stephen Kenny (Þ)

Gul spjöld:
Lee O'Connor ('30)

Rauð spjöld:
Lee O'Connor ('88)