Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Kanada
0
1
Ísland
0-1 Hólmar Örn Eyjólfsson '21
15.01.2020  -  23:59
Championship Soccer Stadium
Vináttulandsleikur
Aðstæður: 18 gráðu hiti og sól
Byrjunarlið:
16. Maxime Crepeau (m)
3. Samuel Adekugbe
6. Samuel Piette (f)
10. Jonathan Osorio
11. Tosaint Ricketts
12. Liam Fraser
13. Tesho Akindele
15. Amer Didic
17. Kamal Miller
22. Richie Laryea
25. Charles-Andreas Brym

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Samuel Piette (f) ('63)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sigur var það! Flottir kaflar hjá íslenska liðinu í þessum leik.

Seinni vináttulandsleikurinn í þessu janúarverkefni í Bandaríkjunum verður gegn El Salvador næsta sunnudag.
Elvar Geir Magnússon
93. mín
Kanada í leit að jöfnunarmark í blálokin... Íslenska liðið verst af krafti.
Elvar Geir Magnússon
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma.

Kanada átti stórhættulega hornspyrnu rétt áðan en sem betur fer fór boltinn á endanum yfir.
Elvar Geir Magnússon
89. mín
Inn:Alfons Sampsted (Ísland) Út:Mikael Anderson (Ísland)
Alfons með sinn fyrsta landsleik! Þá eru þeir orðnir fimm í kvöld
Elvar Geir Magnússon
88. mín
Vel varið Hannes!

Brym kemst í skotfæri en Hannes lokar vel á hann og nær að verja.
Elvar Geir Magnússon
87. mín
Davíð með hornspyrnu sem endar ofan á þaknetinu.
Elvar Geir Magnússon
86. mín
Lítið eftir. Verður mark Hólmars það sem mun skilja liðin að?

Hólmar mættur í sóknarleikinn, á skot í varnarmann. Hornspyrna sem Ísland fær.
Elvar Geir Magnússon
82. mín
Inn:Bjarni Mark Duffield (Ísland) Út:Höskuldur Gunnlaugsson (Ísland)
Bjarni fjórði leikmaður Íslands til að spila sinn fyrsta landsleik í kvöld.
Elvar Geir Magnússon
81. mín
Höskuldur með aukaspyrnu og Óttar Magnús skallar en hátt yfir markið.
Elvar Geir Magnússon
80. mín
Kamal Miller með skalla sem hann nær ekki að stýra á markið.
Elvar Geir Magnússon
78. mín
Þó Kanada hafi sótt mun meira í seinni hálfleik þá hefur þeim gengið illa að láta reyna almennilega á Hannes markvörð.
Elvar Geir Magnússon
77. mín
ÞVÍLÍK VARSLA! Kristján Flóki kemst í hörkufæri en Crepeau ver með tilþrifum. Þessi bolti virtist vera á leið í markið.
Elvar Geir Magnússon
73. mín
Inn:Stefán Teitur Þórðarson (Ísland) Út:Aron Elís Þrándarson (Ísland)
Skagamaðurinn að leika sinn fyrsta A-landsleik. Óskum honum til hamingju með það!
Elvar Geir Magnússon
72. mín
Höskuldur með fínan sprett og á svo skottilraun en boltinn nokkuð hátt yfir. Höskuldur fékk högg eftir skotið en jafnar sig á þessu.
Elvar Geir Magnússon
71. mín
Daníel Leó í smá vandræðum með Tosaint Ricketts sem nær fínni skottilraun en boltinn naumlega framhjá.
Elvar Geir Magnússon
69. mín
Tosaint Ricketts nær að koma boltanum í netið en er flaggaður rangstæður. Þetta var mjög tæpt.
Elvar Geir Magnússon
64. mín
Kom sjaldséð íslensk sókn í seinni hálfleik! Birkir Már með flott tilþrif og vinnur hornspyrnu.

Crepeau grípur hornspyrnuna sem Davíð Kristján tók.
Elvar Geir Magnússon
63. mín Gult spjald: Samuel Piette (f) (Kanada)
Sparkaði Aron Elís niður.
Elvar Geir Magnússon
60. mín
Inn:Kristján Flóki Finnbogason (Ísland) Út:Viðar Örn Kjartansson (Ísland)
Hamren skiptir um sóknarlínu og yngir hana vel upp.
Elvar Geir Magnússon
60. mín
Inn:Óttar Magnús Karlsson (Ísland) Út:Kjartan Henry Finnbogason (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
59. mín
Löng sending fram frá Kanada. Akindele vel fyrir innan. Flaggaður rangstæður.
Elvar Geir Magnússon
57. mín
Brym nálægt því að jafna. Skot naumlega framhjá fjærstönginni.
Elvar Geir Magnússon
56. mín
Kanada heldur áfram að sækja. Þurfum að komast úr skotgröfunum. Þetta getur bara endað með marki frá Kanada.
Elvar Geir Magnússon
52. mín
Kanada með fyrirgjöf sem Birkir Már skallar frá. Andstæðingar okkar mæta ákveðnir í þennan seinni hálfleik á meðan okkar menn ná lítið að halda boltanum.
Elvar Geir Magnússon
51. mín
Stórhætta við íslenska markið. Brym dansar með boltann í teignum og reynir að koma sér í skotfæri en varnarmenn Íslands ná með miklum naumindum að loka á hann.
Elvar Geir Magnússon
50. mín
Skyndisókn hjá Íslandi. Viðar Örn kemur sér inn í teiginn með boltann en skottilraun hans frekar slök. Framhjá.
Elvar Geir Magnússon
49. mín
Kanada öflugt í upphafi seinni hálfleiksins. Skot sem fer beint á Hannes.
Elvar Geir Magnússon
48. mín
Akindele sleppur í gegn... rangstaða
Elvar Geir Magnússon
47. mín
Höskuldur fer niður í teignum... nei, ekkert víti segir dómarinn.
Elvar Geir Magnússon
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað

Birkir Már tekur hægri bakvörðinn og Daníel Leó og Hólmar eru miðvarðaparið.
Elvar Geir Magnússon
46. mín
Inn:Birkir Már Sævarsson (Ísland) Út:Kári Árnason (f) (Ísland)
Birkir Már kemur inn í seinni hálfleikinn með fyrirliðabandið.
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Jæja. Stutt í seinni hálfleik. Má búast við vænum skammti af skiptinugum eftir hlé. Ég mun ekki setja inn skiptingar Kanada og vona að þið kröfuhörðu lesendur getið fyrirgefið mér það.
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Hálfleikur
Rétt fyrir hálfleik átti Kanada sendingu inn í teiginn sem Hannes greip af öryggi.

Flottur fyrri hálfleikur hjá íslenska liðinu. Það er líf í þessu. Þokkaleg harka en völlurinn er aðeins laus í sér og það býður uppá baráttu.

Ætla að nýta hálfleikinn í að poppa... heyrumst eftir smá!
Elvar Geir Magnússon
44. mín
Höskuldur með góða hornspyrnu frá vinstri en Amer Didic nær að skalla boltann frá. Styttist í hálfleik.
Elvar Geir Magnússon
41. mín
Höskuldur búinn að vera virkilega öflugur. Mikið líf í kringum hann. Íslenska liðið að eiga flottan kafla.
Elvar Geir Magnússon
39. mín
Frábær spilamennska hjá íslenska liðinu sem endar með því að Aron Elís fær boltann frá Höskuldi og á skot fyrir utan teig. Framhjá.
Elvar Geir Magnússon
37. mín
VÓÓ!!! Höskuldur með öfluga tilraun. Skot í fyrsta sem fór naumlega framhjá. Þarna hefði Ísland getað tvöfaldað forystu sína. Sóknaraðgerðir okkar hafa verið hættulegar í þessum leik.
Elvar Geir Magnússon
36. mín
Ísland fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Kanada. Brotið á Höskuldi.
Elvar Geir Magnússon
35. mín
Adekugbe með fyrirgjöf eftir góða sókn Kanada. Brym með skot úr teignum en framhjá.
Elvar Geir Magnússon
32. mín
Kanada hefur einokað boltann síðustu mínútur og íslenska liðið verið í varnarhlutvverki.
Elvar Geir Magnússon
27. mín
Akindele í dauðafæri fyrir Kanada, komst framfyrir Kára en á einhvern ótrúlegan hátt setti hann boltann framhjá! Við fögnum því.
Elvar Geir Magnússon
25. mín
Kanada fékk hornspyrnu en náðu ekki að koma sér í almennilegt færi eftir hana.
Elvar Geir Magnússon
24. mín
Þetta er þrettándi landsleikur Hólmars og hans annað mark fyrir Ísland.
Elvar Geir Magnússon
21. mín MARK!
Hólmar Örn Eyjólfsson (Ísland)
Stoðsending: Davíð Kristján Ólafsson
Eftir hornspyrnuna skorar Hólmar! Markvörður Kanada úti á túni eftir spyrnu Davíðs Kristjáns, missir af boltanum og Hólmar er við fjærstöngina og setur hann í tómt markið! Vel gert hjá miðverðinum.
Elvar Geir Magnússon
21. mín
Ísland vildi fá hendi en ekkert dæmt. Okkar menn að vinna hornspyrnu hérna.
Elvar Geir Magnússon
20. mín
Jafnræði þessar fyrstu 20 mínútur en íslenska liðið hefur verið skrefinu framar síðustu mínútur.
Elvar Geir Magnússon
18. mín
Hætta í teig Kanada eftir langt innkast frá Kára en Crepeau í markinu nær á endanum að handsama boltann.
Elvar Geir Magnússon
16. mín
Kjartan Henry með skot framhjá.
Elvar Geir Magnússon
15. mín
Kanada með hættulega sendingu inn í teiginn þar sem Samuel Adekugbe er mættur en Hannes gerir vel í að handsama boltann.
Elvar Geir Magnússon
12. mín
Kanada með skot fyrir utan teig, framhjá.
Elvar Geir Magnússon
10. mín
Daníel Leó setur boltann í hornspyrnu. Kanada á fyrsta horn leiksins.

Ekkert merkilegt kemur út úr þessu tækifæri.
Elvar Geir Magnússon
9. mín
Eftir aukaspyrnu Íslands fær Viðar Örn skotfæri í teignum en markvörður Kanada nær að verja.
Elvar Geir Magnússon
8. mín
Mikael geysist upp hægri kantinn en bakvörður Kanadamanna nær að stöðva hann.
Elvar Geir Magnússon
6. mín
Tesho Akindele, leikmaður Kanada, flaggaður rangstæður.
Elvar Geir Magnússon
5. mín
Hikst í útsendingunni frá LA en vonandi mun það ekki trufla okkur of mikið...
Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
3. mín
Kanada með hættulega sendingu fram völlinn en Hannes vel á verði, kemur út úr markinu og kemur knettinum frá.
Elvar Geir Magnússon
1. mín
Leikur hafinn
Ísland hóf leikinn. VÖK með upphafsspyrnu leiksins.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Jæja liðin ganga út á völlinn. Ísland er í hvítu varatreyjunum að þessu sinni. Kári Árnason er með fyrirliðabandið. Komið að þjóðsöngvunum.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Þessum leik er textalýst í gegnum útsendingu frá heimasíðu kanadíska sambandsins, hægt er að horfa á leikinn með því að smella hérna.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Styttist í leik í Los Angeles, við fylgjum ykkur og leiknum inn í nóttina. Leikið er á litlum og huggulegum leikvangi við fínar aðstæður. Áhorfendur á leiknum verða ekki margir.

Ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða og Ísland með skemmtilega blöndu í byrjunarliði sínu. Liðin hafa lokið við upphitun og eru komin inn í klefa.
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Ísland leikur tvo leiki í þessu janúarverkefni - fyrst gegn Kanada í kvöld og síðan gegn El Salvador á sunnudag. Kanada er sem stendur í 73. sæti styrkleikalista FIFA og er þjálfari liðsins Englendingurinn John Herdman. Þjálfari El Salvador heitir Carlos de los Cobos og kemur frá Mexíkó. Lið El Salvador er í 69. sæti FIFA-listans.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Ísland mætir Kanada í vináttuleik í Kanada. Byrjunarliðið hefur verið tilkynnt.

Hannes Þór Halldórsson er í markinu og Kári Árnason ber fyrirliðabandið. Fyrir utan þá eru menn með talsvert minni reynslu í byrjunarliðinu.

Hólmar Örn Eyjólfsson og Viðar Örn Kjartansson hafa verið reglulega í hópunum og þá voru Mikael Neville og Aron Elís Þrándarson í hóp seinni hluta síðasta árs.

Daníel Leó Grétarsson og Höskuldur Gunnlaugsson eru í byrjunarliðinu og leika sína fyrstu landsleiki.

Byrjunarlið Íslands:
#1 Hannes Þór Halldórsson
#3 Davíð Kristján Ólafsson
#4 Alex Þór Hauksson
#5 Hólmar Örn Eyjólfsson
#6 Daníel Leó Gretarsson
#7 Mikael Neville Andeson
#10 Aron Elís Þrándarson
#11 Kjartan Henry Finnbogason
#14 Kári Árnason
#19 Viðar Örn Kjartansson
#22 Höskuldur Gunnlaugsson

Varamenn: Birkir Már Sævarsson, Bjarni Mark Antonsson, Kolbeinn Sigþórsson, Elías Rafn Ólafsson, Patrik Sigurður Gunnarsson, Alfons Sampsted, Oskar Tor Sverrisson, Tryggvi Hrafn Haraldsson, Stefán Teitur Þórðarson, Kristján Flóki Finnbogason, Óttar Magnús KArlsson og Ari Leifsson.
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
3. Hólmar Örn Eyjólfsson
3. Davíð Kristján Ólafsson
4. Alex Þór Hauksson
5. Aron Elís Þrándarson ('73)
7. Höskuldur Gunnlaugsson ('82)
11. Kjartan Henry Finnbogason ('60)
14. Kári Árnason (f) ('46)
18. Mikael Anderson ('89)
18. Daníel Leó Grétarsson
19. Viðar Örn Kjartansson ('60)

Varamenn:
2. Birkir Már Sævarsson ('46)
2. Alfons Sampsted ('89)
9. Óttar Magnús Karlsson ('60)
11. Kristján Flóki Finnbogason ('60)
14. Bjarni Mark Duffield ('82)
16. Stefán Teitur Þórðarson ('73)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: