Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Grótta
3
0
Höttur/Huginn
Axel Sigurðarson '24 1-0
Arnar Þór Helgason '66 2-0
Gabríel Hrannar Eyjólfsson '86 3-0
23.06.2020  -  20:15
Vivaldivöllurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Maður leiksins: Axel Sigurðarson (Grótta)
Byrjunarlið:
1. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
Halldór Kristján Baldursson
2. Arnar Þór Helgason
5. Patrik Orri Pétursson
6. Sigurvin Reynisson (f) ('64)
10. Kristófer Orri Pétursson (f) ('87)
11. Axel Sigurðarson ('64)
20. Karl Friðleifur Gunnarsson ('75)
21. Óskar Jónsson
22. Ástbjörn Þórðarson ('87)
77. Pétur Theódór Árnason

Varamenn:
11. Sölvi Björnsson ('87)
12. Gabríel Hrannar Eyjólfsson ('75)
12. Róbert Aron Richter
14. Ágúst Freyr Hallsson
17. Gunnar Jónas Hauksson
19. Axel Freyr Harðarson ('64)
29. Óliver Dagur Thorlacius ('64)

Liðsstjórn:
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Chris Brazell (Þ)
Dagur Guðjónsson
Þór Sigurðsson
Guðmundur Steinarsson
Þorleifur Óskarsson
Jón Birgir Kristjánsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Aðalbjörn Heiðar flautar af!

Gróttumenn eru komnir áfram í bikarnum en Höttur/Huginn fellur úr leik.

Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
94. mín
Gróttumenn fá hornspyrnu sem gestirnir skalla útfyrir teig á Óskar Jóns sem hamrar boltann í átt að marki en framhjá!
93. mín
Leikurinn er að fjara út hérna, voða rólegt yfir þessu...
87. mín
Inn:Sölvi Björnsson (Grótta) Út:Kristófer Orri Pétursson (Grótta)
87. mín
Inn:Dagur Guðjónsson (Grótta) Út:Ástbjörn Þórðarson (Grótta)
86. mín MARK!
Gabríel Hrannar Eyjólfsson (Grótta)
VAAAÁÁÁ!

Gabríel Hrannar með gjörsamlega geggjað mark!

Fær boltann fyrir utan teiginn, snýr að markinu og hamrar hann í stöngina og inn!
84. mín Gult spjald: Sigurður Orri Magnússon (Höttur/Huginn)
83. mín
Gróttumenn spila gestina auðveldlega útúr pressu og keyra á þá 5v4, Ástbjörn fær boltann hægra megin og keyrir inn á teiginn, tekur skotið en yfir markið!
79. mín
Inn:Halldór Bjarki Guðmundsson (Höttur/Huginn) Út:Ramiro David De Lillo (Höttur/Huginn)
79. mín
Inn:Anton Helgi Loftsson (Höttur/Huginn) Út:Aleksandar Marinkovic (Höttur/Huginn)
Aleksandar hefur lokið leik.
77. mín
Aleksandar er lagstur niður í teignum og biður um aðhlynningu sem hann fær.
75. mín
Inn:Gabríel Hrannar Eyjólfsson (Grótta) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Grótta)
73. mín
Inn:Þorlákur Breki Þ. Baxter (Höttur/Huginn) Út:Arnar Eide Garðarsson (Höttur/Huginn)
73. mín
Inn:Heiðar Logi Jónsson (Höttur/Huginn) Út:Fernando Garcia Castellanos (Höttur/Huginn)
72. mín
Guð minn almáttugur Kristófer Orri hvernig kláraru þetta ekki??

Óliver Dagur með gullsendingu upp hægri kantinn á Ástbjörn sem leggur boltann út á Kristófer sem er aleinn fyrir framan markið en setur boltann yfir!
68. mín
Grótta fær aukaspyrnu við teiginn hægra megin, Kristófer stillir sér upp við boltann.

Smellir honum yfir alveg eins og áðan.
67. mín
Inn:Sæbjörn Guðlaugsson (Höttur/Huginn) Út:Eiríkur Þór Bjarkason (Höttur/Huginn)
66. mín MARK!
Arnar Þór Helgason (Grótta)
Stoðsending: Óliver Dagur Thorlacius
MAAARK!

Óliver Dagur byrjar af alvöru krafti, keyrir upp miðjuna og nælir í hornspyrnu sem hann tekur sjálfur og hamrar á kollinn á Arnari Þór sem stangar boltann í netið af nærstönginni!
64. mín
Inn:Óliver Dagur Thorlacius (Grótta) Út:Sigurvin Reynisson (Grótta)
64. mín
Inn:Axel Freyr Harðarson (Grótta) Út:Axel Sigurðarson (Grótta)
56. mín
DAUÐAFÆRI!

Pétur keyrir í átt að teignum, leggur boltann til hliðar á Ástbjörn sem setur boltann fastann niðri á Pétur aftur sem stendur við vítapunktinn tilbúinn til að hamra boltann inn en hittir ekki boltann!

Þetta átti hann að klára.
54. mín
Aftur fá gestirnir skotfæri eftir aukaspyrnu og aftur ver Hákon!

Boltinn er svolítið að falla fyrir austanmenn inná teignum eftir langar aukaspyrnur.
50. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu úti hægra megin á miðjum vallarhelming Gróttu.

Spyrnan er góð, lendir í darraðadans eftir skalla Arnars og EIRÍKUR NÆR SKOTI Á MARKIÐ EN HÁKON VER Í HORN!

Þarna gerðu gestirnir sig líklega.
49. mín
Ástbjörn tekur frábæran sprett upp hægra megin og Brynjar Þorri tekur hann niður við vítateigshornið, eitt brot í viðbót og hann gæti fengið seinna gula!

Kristófer smellir spyrnunni yfir markið.
47. mín
Arnar Eide reynir að skrúfa boltann í fjærhornið af löngu færa frá vinstri kantinum en boltinn framhjá.
46. mín
Leikurinn er kominn af stað aftur, nú fá heimamenn rokið í bakið.

Gestirnir byrja hinsvegar með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Aðalbjörn Heiðar flautar fyrri hálfleikinn af.

Þetta hefur verið algjör einstefna og gestirnir heppnir að fara bara einu marki undir í hléið.
45. mín
Gestirnir fá hérna sína fyrstu hornspyrnu sem Ramiro tekur og uppúr því fá þeir aðra.

Seinni spyrnan er góð og fær Kristófer Einars sýnist mér færið en skóflar honum yfir!
44. mín
Ramiro sækir aukaspyrnu úti hægra megin fyrir gestina, hann og Brynjar ræða málin yfir boltanum.

Ramiro tekur bara skotið og Hákon ver!
42. mín Gult spjald: Fernando Garcia Castellanos (Höttur/Huginn)
Ferran gjörsamlega straujar Halldór, virkaði svolítið pirringslegt.
41. mín
Kalli fer í átt að teignum frá vinstri vængnum, fer á hægri fótinn og smellir honum á markið en Aleksandar ver.
39. mín
SPYRNAN ER FRÁBÆR OG PÉTUR SKALLAR BOLTANN INN AÐ MÉR SÝNIST EN GESTIRNIR HREINSA OG EKKERT DÆMT!

Gróttumenn ekki sáttir, mér sýndist boltinn klárlega vera inni héðan úr mínu sjónarhorni.
38. mín
Gróttumenn fá hornspyrnu eftir gott spil upp hægra megin.

Kristófer röltir út í horn til að taka.
37. mín Gult spjald: Eiríkur Þór Bjarkason (Höttur/Huginn)
Eiki fer harkalega í Óskar Jóns sem var að senda boltann frá sér og fær gult að launum.
35. mín
Ástbjörn tekur hratt innkast inn á Kristófer eftir vel vakandi boltasækjara, Kristófer potar boltanum út á Óskar Jóns sem er í góðu skotfæri en smellir boltanum yfir.
32. mín
Frábær sókn hjá Gróttu!

Gestirnir reyna að pressa þá í markspyrnu, Gróttamenn spila sig huggulega upp völlinn hægra megin og eru komnir í 4v3 stöðu, Ástbjörn rennir boltanum inn á teiginn en hittir beint á Emil Smára sem hreinsar.

Gestirnir að austan stálheppnir þarna!
30. mín
Axel keyrir að teignum vinstra megin og reynir skotið með vinstri en það laflaust og framhjá markinu.
29. mín Gult spjald: Ramiro David De Lillo (Höttur/Huginn)
28. mín
FÆRI!

Kristófer Orri og Ástbjörn eru með hælsendingar og stæla úti hægra megin, boltinn út á Axel sem potar Pétur í gegn en Aleksandar vakandi í markinu og er fljótur út, Pétur reynir að pota boltanum framhjá Aleksandar sem handsamar boltann.
24. mín MARK!
Axel Sigurðarson (Grótta)
GRÓTTA ER KOMIÐ YFIR!

Axel Sig fær boltann á miðjunni og keyrir af stað, fær að hlaupa inn á teig gestanna án nokkurra vandræða og fer þar illa með Brynjar Þorra og smellir boltanum í samúel fjær í innanfótar boga yfir Aleksandar í markinu.

Afleitur varnarleikur hjá gestunum.
23. mín
Kalli fær boltann vinstra megin og keyrir upp nánast allan völlinn, upp að endamörkum og reynir fyrirgjöf sem var afleit og endar sem hörmulegt skot langt framhjá markinu á nær.
21. mín
Gísli Björn með seina tæklingu á miðjunni og fær tiltal.
20. mín
Grótta fær aukaspyrnu úti hægra megin, Kristófer með fyrirgjöfina en skallað frá.
15. mín
Fyrsta skiptið í leiknum sem gestirnir prófa að halda eitthvað í boltann og þeir fá þá aukaspyrnu úti vinstra megin.

Spyrnan er sett inn á teiginn af Ferran en afturfyrir á fjær.
11. mín Gult spjald: Brynjar Þorri Magnússon (Höttur/Huginn)
Brynjar Þorri neglir Ástbjörn niður á miðjunni sem var að spóla framhjá þeim nokkrum í Hött/Huginn.
10. mín
Ástbjörn sækir aukaspyrnu hægra megin við teiginn sem Kristófer Orri tekur, sendingin fín inn á teiginn en heimamenn ná ekki að gera sér mat úr þessu.
6. mín
Pétur Theodór hamrar boltanum með jörðinni inná teiginn, gestirnir koma boltanum frá en ekki langt og stuttu seinna er Ástbjörn með hann skoppandi við vítateiginn og neglir boltanum yfir!
5. mín
Grótta spilar sig vel upp hægra megin og mér sýndist það vera Kristófer sem sker boltann út í teiginn á Axel sem er aleinn en þarf aðeins að teygja sig til baka eftir boltanum og nær því ekki að koma sér í dauðafærið sem var upplagt þarna.

Gestirnir heppnir...
3. mín
Gróttumenn stilla upp í 3-6-1 kerfið, keimlíkt því sem þeir spiluðu í fyrra.

Gestirnir stilla upp í 4-4-2.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað!
Fyrir leik
Brynjar Árna fyrirliði gestanna vinnur hlutkestið og velur að byrja með vind í fyrri hálfleik.

Gróttumenn byrja með boltann og sækja í átt að íþróttamiðstöðinni.
Fyrir leik
Grótta stillir upp hörku liði, virðast ekki ætla að gefa mönnum einhverja hvíld.

Einnig eru gestirnir með sitt sterkasta sýnist mér, athygli mína vekur að Steinar Aron er skráður á bekkinn, fékk fréttir af því fyrr í dag að hann væri frá í langan tíma.
Fyrir leik
Smá vandamál á nettengingu hérna á Nesinu en allt komið í lag og 5 mínútur í leik!

Það er smá rok en það mátti svosem búast við því.
Fyrir leik
Veðrið er ágætt og vonandi verður ekki rok á Seltjarnarnesinu, tökum stöðuna betur þegar ég verð mættur á svæðið.

Vonandi fáum við góðan fótboltaleik og helst nokkur mörk!
Fyrir leik
Þar sem að leikjaprógrammið er ansi þétt þessa dagana finnst mér líklegt að bæði lið láti reyna aðeins á breiddina í hópnum hjá sér, verður forvitnilegt að sjá byrjunarliðin.

Steinar Aron, einn helsti markaskorari Hattar/Hugins meiddist illa í síðasta leik gegn Tindastól, ég sendi honum batakveðjur og vonandi kemst hann aftur á völlinn sem fyrst!
Fyrir leik
Þetta gæti orðið leikur kattarins að músinni þar sem að Grótta er í Pepsi Max deildinni en Höttur/Huginn í 3. deild, vonandi ná gestirnir samt að stríða heimamönnum og gefa þeim leik, þetta er jú bikarleikur og eins og sagan hefur sannað getur allt gerst
Fyrir leik
Góða kvöldið gott fólk og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Gróttu og Hattar/Hugins í Mjólkurbikarnum.
Byrjunarlið:
Brynjar Árnason
Brynjar Þorri Magnússon
1. Aleksandar Marinkovic ('79)
4. Kristófer Einarsson (f)
6. Gísli Björn Helgason
8. Eiríkur Þór Bjarkason ('67)
9. Ramiro David De Lillo ('79)
17. Emil Smári Guðjónsson
18. Arnar Eide Garðarsson ('73)
20. Sigurður Orri Magnússon
21. Fernando Garcia Castellanos ('73)

Varamenn:
9. Heiðar Logi Jónsson ('73)
11. Steinar Aron Magnússon
21. Halldór Bjarki Guðmundsson ('79)
23. Jakob Jóel Þórarinsson
24. Sæbjörn Guðlaugsson ('67)
25. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('73)

Liðsstjórn:
Viðar Jónsson (Þ)
Anton Helgi Loftsson
Benedikt Jónsson

Gul spjöld:
Brynjar Þorri Magnússon ('11)
Ramiro David De Lillo ('29)
Eiríkur Þór Bjarkason ('37)
Fernando Garcia Castellanos ('42)
Sigurður Orri Magnússon ('84)

Rauð spjöld: