Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
FH
0
1
ÍBV
0-1 Olga Sevcova '24
20.07.2020  -  18:00
Kaplakrikavöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Sól, blíða og léttur vindur. Völlurinn fallegur.
Dómari: Kristján Már Ólafs
Áhorfendur: 194
Maður leiksins: Olga Sevcova - ÍBV
Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
Sigríður Lára Garðarsdóttir
2. Hrafnhildur Hauksdóttir ('90)
4. Ingibjörg Rún Óladóttir
8. Valgerður Ósk Valsdóttir ('67)
9. Rannveig Bjarnadóttir
11. Helena Ósk Hálfdánardóttir
17. Madison Santana Gonzalez
20. Eva Núra Abrahamsdóttir ('77)
24. Taylor Victoria Sekyra
28. Birta Georgsdóttir

Varamenn:
25. Aníta Dögg Guðmundsdóttir (m)
5. Margrét Sif Magnúsdóttir
15. Birta Stefánsdóttir ('90)
16. Tinna Sól Þórsdóttir
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('67)
23. Andrea Marý Sigurjónsdóttir
26. Andrea Mist Pálsdóttir

Liðsstjórn:
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Selma Dögg Björgvinsdóttir
Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir
Árni Freyr Guðnason
Bríet Mörk Ómarsdóttir
Arna Sigurðardóttir
Hjörtur Hinriksson

Gul spjöld:
Eva Núra Abrahamsdóttir ('70)
Birta Georgsdóttir ('82)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+4

Skýrsla og viðtöl væntanleg.
90. mín
Inn:Selma Björt Sigursveinsdóttir (ÍBV) Út:Miyah Watford (ÍBV)
+3

ÍBV gerir skiptingu. Þetta er að fjara út.
90. mín
Inn:Birta Stefánsdóttir (FH) Út:Hrafnhildur Hauksdóttir (FH)
90. mín
Fjórar mín í uppbót.
89. mín
FH liggja ofarlega síðustu mínúturnar og freista þess að koma inn jöfnunarmarki.
87. mín
Inn:Margrét Íris Einarsdóttir (ÍBV) Út:Olga Sevcova (ÍBV)
Fyrsta skipting ÍBV í kvöld.
87. mín Gult spjald: Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV)
Fær gult fyrir að vera lengi að taka innkast og stuðningsmenn FH fagna vel.
86. mín
Annað horn... þriðja hornspyrna FH í röð.
85. mín
Annað horn. Klafs í teignum og Ingibjörg kemur svo í skotið sem fer yfir með viðkomu varnarmanns ÍBV.
84. mín
FH fær hornspyrnu.

Aðstoðardómarinn hafði flaggað markspyrnu og FH stúkan var við það að tryllast.
82. mín Gult spjald: Birta Georgsdóttir (FH)
Klappar fyrir aðstoðardómaranum og uppsker gult.
81. mín
Olga fer upp vinstri kantinn og kemur boltanum fyrir markið þar sem Miyah Watford reynir að ná til hans en FH konur koma þessu frá.
78. mín
Hvorugt lið að ná að halda boltanum eitthvað af viti. Mikið af sendingum upp í loftið.
77. mín
Inn:Selma Dögg Björgvinsdóttir (FH) Út:Eva Núra Abrahamsdóttir (FH)
76. mín
Skipting yfir á vinstri væng FH og Helena Ósk lætur vaða en boltinn yfir markið.
75. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi FH. Eru fljótar að taka hana og Kristjana geysist upp hægri vænginn en boltinn endar aftur fyrir.
73. mín
FH fær hornspyrnu.
71. mín
ÍBV fær hornspyrnu.
70. mín Gult spjald: Eva Núra Abrahamsdóttir (FH)
Stöðvar skyndisókn ÍBV.
67. mín
Inn:Elísa Lana Sigurjónsdóttir (FH) Út:Valgerður Ósk Valsdóttir (FH)
Fyrsta skiptingin í kvöld.
66. mín
Þarna munaði litlu!

ÍBV næstum búnar að koma inn öðru marki. Fengu aukapsyrnu á miðjum vellinum og það kom bolti inn á markteig sem lak í gegnum alla og í hornspyrnu.
64. mín
Lítil hætta að skapast síðustu mínútur. FH aðeins að færa sig ofar.
59. mín
Árni þjálfari FH er brjálaður á línunni. Lætur dómaratríóið heyra það af fullum hálsi.

Brotið á Sísí inn í FH teignum og leikurinn stöðvaður en hann lætur ÍBV svo fá boltann aftur. FH-ingar vilja fá aukaspyrnu sem hefði verið réttur dómur. En FH má þó ekki við því að missa fleiri þjálfara í leikbann.
58. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi FH. Það er mikill hiti í þessu.
54. mín
Hinumegin er Olga með boltan ein á móti Taylor, reynir skot en Taylor kemst fyrir og FH koma þessu frá.
53. mín
Birta á fleygiferð fyrir FH og kemur sér í skotfæri en Auður ver.
52. mín
Nauu!

ÍBV í sókn og Karlina Miksone fær boltann beint fyrir utan teig og á gott skot sem fer í slá og yfir.
49. mín
ÍBV fær hornspyrnu.
47. mín
Olga lætur vaða fyrir utan teig, boltinn meðfram grasinu á nær en fer framhjá.
46. mín
Leikur hafinn
Þá hefst seinni hálfleikur. Held að við eigum eftir að fá fleiri mörk í þennan leik.
45. mín
Hálfleikur
45. mín
Sísí mætir á nær og skallar boltann en ÍBV bjarga á línu! FH vilja fá hendi þarna.
45. mín
FH fær hornspyrnu.
42. mín Gult spjald: Karlina Miksone (ÍBV)
Brýtur á Evu Núru á miðjum vallarhelmingi ÍBV.
37. mín
Hanna Kallmaier með fínt skot fyrir utan teig en boltinn yfir.
36. mín
Hrafnhildur fær tiltal frá dómara leiksins eftir að hafa látið hann aðeins heyra það.
34. mín
Færi!

Klafs í ÍBV teignum og Rannveig reynir að ná skoti á markið en þarf að teygja sig og skotið fer í varnarmann og aftur fyrir. Hornspyrna.
32. mín
Það er kominn mikill hiti í leikmenn og ekkert gefið eftir.
31. mín
Sísí með geggjaða sendingu inn á Helenu en Auður ver vel.
29. mín
Aftur eitthvað óöryggi í öftustu varnarlínu ÍBV og þær missa boltann og Birta Gerorgs kemst í gegn og lætur vaða fyrir utan teig en skotið er yfir markið.
27. mín
ÍBV fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig hægra megin. Olga gerir sig líklega til að taka þetta.
24. mín MARK!
Olga Sevcova (ÍBV)
Stoðsending: Miyah Watford
ÍBV komnar yfir!

Watford með boltann vinstra megin í teignum og kemur með sendingu meðfram grasinu í gegnum FH vörnina og þar mætir Olga ein og yfirgefin og setur boltann auðveldlega í netið!
22. mín
Ég held að Kristján dómari ætli ekki að dæma hendi í dag.

Búin að vera þónokkur atvik í kvöld þar sem um frekar augljósa hendi er að ræða hjá báðum liðum.
20. mín
Olga reynir fyrirgjöf sem fer beint í hausinn á Ingibjörgu af stuttu færi. Hún steinlá en er fljót að standa upp aftur. Vonandi er allt í lagi með hana.
19. mín
Aftur kemst ÍBV í gott færi og nú er það Hanna Kallmaier en hún á skot í hliðarnetið.

Aðeins farið að lifna við ÍBV sóknarlega.
18. mín
Dauðafæri hjá ÍBV!

Fatma Kara með fallega sendingu í gegnum FH vörnina á Olgu Sevcova en skotið mjög lélegt beint á Telmu. Þarna fór Olga illa með mjög gott færi.
17. mín
Miyah Watford með boltan ein upp á toppi en Ingibjörg verst vel og tekur af henni boltann.
14. mín
Góð sókn hjá FH. Madison kemur boltanum út til hægri á Birtu sem á góða sendingu fyrir markið en Helena Ósk er aðeins of sein.
11. mín
Birta með gott skot utan af teig sem leit út fyrir að vera að fara inn en fer rétt framhjá markinu. Áhorfendur voru byrjaðir að fagna þarna!
10. mín
ÍBV fá sína fyrstu hornspyrnu.
9. mín
Þetta var stutt stopp. Leikurinn farinn af stað og virðist vera í lagi með þær báðar.
8. mín
Leikurinn stöðvaður. Karlina Miksone vinnur boltann í öftustu línu FH og Telma kemur út og er aðeins á undan í boltann en þær lenda saman.
7. mín
Birta á fleygiferð upp hægri kantinn og kemur boltanum fyrir markið en ÍBV nær að hreinsa frá.
4. mín
Vó.

Misskilningur í vörn ÍBV og boltinn lagður upp fyrir Madison inn í teig en hún á skot í varnarmann og aftur fyrir.

FH fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
2. mín
Fatma Kara með fyrsta skot leiksins. Nær að koma sér í ágætt færi á vinstri fyrir utan teig en hittir boltann illa og skotið laust og framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
FH hefja leik og spila í sínum hvítu búningum. ÍBV eru rauðar.
Fyrir leik
Liðin ganga nú út á völlinn í fylgd dómaratríósins. Það er að koma að þessu!
Fyrir leik
Var að fá þær upplýsingar að Andrea Mist er meidd aftan í læri.
Fyrir leik
Áhorfendur eru hægt og rólega farnir að koma sér fyrir í stúkunni og þá aðallega neðst þar sem sólin skín.
Fyrir leik
Kristján Már Ólafs mun dæma þennan leik ásamt Árna Heiðari Guðmundssyni, Guðmundi Inga Bjarnasyni og Ólaf Inga Guðmundssyni.
Fyrir leik
Það er geggjað veður hérna í Krikanum! Tilvalið að skella sér á völlinn.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár.

Hjá FH kemur Rannveig Bjarna inn í liðið frá síðustu umferð en Andrea Mist Pálsdóttir er ekki sjáanleg í leikmannahópnum í dag.

ÍBV gerir enga breytingu frá tapinu gegn Blikum.
Fyrir leik
Eyjakonan Sigríður Lára Garðarsdóttir skipti yfir í FH fyrir tímabilið og spilar hér í kvöld gegn uppeldisliði sínu.
Fyrir leik
Það eru afar dýrmæt 3 stig í boði hér í kvöld og auðveldlega hægt að tala um 6 stiga leik.
Fyrir leik
ÍBV fékk Breiðablik í heimsókn í síðustu umferð þar sem Blikar fóru með 0-4 sigur.
Fyrir leik
Eins og fyrr segir fengu FH fyrstu 3 stigin sín í síðustu umferð þar sem þær unnu góðan útisigur á Þór/KA 0-1. Madison Santana Gonzalez skoraði sigurmarkið á 86. mínútu leiksins.
Fyrir leik
FH og ÍBV sitja hlið við hlið í 8. og 9. sæti deildarinnar með jafnmörg stig en FH með örlítið betri markatölu.

ÍBV vann fyrsta leik og hefur tapað næstu fjórum. FH tapaði hinsvegar fyrstu fjórum og kom fyrsti sigurinn í síðustu umferð gegn Þór/KA.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Kaplakrika. Hér á eftir hefst leikur FH og ÍBV í 6. umferð Pepsi-max deildar kvenna.
Byrjunarlið:
1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
Grace Elizabeth Haven Hancock
2. Ragna Sara Magnúsdóttir
3. Júlíana Sveinsdóttir
5. Miyah Watford ('90)
8. Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz
10. Fatma Kara (f)
14. Olga Sevcova ('87)
19. Karlina Miksone
23. Hanna Kallmaier
24. Helena Jónsdóttir

Varamenn:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
Selma Björt Sigursveinsdóttir ('90)
6. Thelma Sól Óðinsdóttir
7. Þóra Björg Stefánsdóttir
18. Margrét Íris Einarsdóttir ('87)
22. Birgitta Sól Vilbergsdóttir
26. Eliza Spruntule

Liðsstjórn:
Andri Ólafsson (Þ)
Sigríður Sæland Óðinsdóttir
Jón Ólafur Daníelsson
Sigþóra Guðmundsdóttir
Sonja Ruiz Martinez
Birkir Hlynsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:
Karlina Miksone ('42)
Júlíana Sveinsdóttir ('87)

Rauð spjöld: