Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Augnablik
5
1
Grótta
0-1 Eydís Lilja Eysteinsdóttir '13
Þórhildur Þórhallsdóttir '50 1-1
Margrét Brynja Kristinsdóttir '68 2-1
Björk Bjarmadóttir '74 3-1
Margrét Brynja Kristinsdóttir '87 4-1
Björk Bjarmadóttir '89 5-1
23.09.2020  -  20:00
Kópavogsvöllur
Lengjudeild kvenna
Dómari: Árni Snær Magnússon
Maður leiksins: Margrét Brynja Kristinsdóttir
Byrjunarlið:
1. Bryndís Gunnarsdóttir (m)
Margrét Brynja Kristinsdóttir
5. Elín Helena Karlsdóttir
10. Ísafold Þórhallsdóttir ('82)
14. Hildur María Jónasdóttir ('88)
15. Írena Héðinsdóttir Gonzalez
17. Birta Birgisdóttir ('69)
18. Eyrún Vala Harðardóttir ('69)
19. Birna Kristín Björnsdóttir ('88)
22. Þórhildur Þórhallsdóttir
23. Hugrún Helgadóttir

Varamenn:
1. Katrín Hanna Hauksdóttir (m)
4. Brynja Sævarsdóttir ('88)
5. Þyrí Ljósbjörg Willumsdóttir ('88)
11. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
11. Adna Mesetovic ('82)
16. Björk Bjarmadóttir ('69)
23. Margrét Lea Gísladóttir
28. Eydís Helgadóttir ('69)

Liðsstjórn:
Vilhjálmur Kári Haraldsson (Þ)
Þórdís Katla Sigurðardóttir
Úlfar Hinriksson
Nadia Margrét Jamchi

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þvílíkum leik lokið!
Viðtöl og skýrsla í vinnslu og koma inn síðar.
89. mín MARK!
Björk Bjarmadóttir (Augnablik)
HVAÐ ER AÐ GERAST?
Þær eru að valta yfir Gróttu hér í síðari hálfleik. Frábær sending inn á Björk og hún klárar færið ein á móti Tinnu Brá í markinu.

Staðan er 5-1! Ég vil minna á það að Augnablik var 1-0 undir þegar hálfleikur var flautaður.
88. mín
Inn:Brynja Sævarsdóttir (Augnablik) Út:Birna Kristín Björnsdóttir (Augnablik)
88. mín
Inn:Þyrí Ljósbjörg Willumsdóttir (Augnablik) Út:Hildur María Jónasdóttir (Augnablik)
87. mín MARK!
Margrét Brynja Kristinsdóttir (Augnablik)
Þetta var svakalega einfalt!
Margrét Brynja var bókstaflega með fjóra Gróttu leikmenn í kringum sig inn í vítateignum og hún nær að leggja boltann í markið eins og hún hefur ekki gert neitt annað áður. Hún er búin að vera frábær í kvöld!
4-1 Augnablik og 3 mínútur eftir.
86. mín
Vel gert!
Margrét Brynja fer framhjá varnarmanni Gróttu og ætlar að gera það sama við Tinnu í markinu en Tinna bjargar Gróttu liðinu þarna frá enn einu marki.
85. mín
Adna með skot á markið, það var þó ekki nægur kraftur í því og Tinna grípur það.
84. mín
Sigrún með fína stungu inn á Tinnu. Bryndís gerði virkilega vel og kom á móti og var á undan Tinnu í boltann.
82. mín
Inn:Adna Mesetovic (Augnablik) Út:Ísafold Þórhallsdóttir (Augnablik)
80. mín
Inn:Ástrós Kristjánsdóttir (Grótta) Út:Bjargey Sigurborg Ólafsson (Grótta)
80. mín
Inn:Sofía Elsie Guðmundsdóttir (Grótta) Út:Lovísa Davíðsdóttir Scheving (Grótta)
74. mín MARK!
Björk Bjarmadóttir (Augnablik)
Stoðsending: Margrét Brynja Kristinsdóttir
3-1!!

Margét með sendingu út á Björk hægra megin sem fer á fleygiferð í átt að markinu og skýtur boltanum framhjá Tinnu í markinu.
72. mín
Tinna sendir boltann upp hægri kantinn þar sem Eydís Lilja er. Hún reynir að senda boltann fyrir markið en hann fer fyrir aftan markið og Augnablik á markspyrnu.
69. mín
Inn:Eydís Helgadóttir (Augnablik) Út:Birta Birgisdóttir (Augnablik)
69. mín
Inn:Björk Bjarmadóttir (Augnablik) Út:Eyrún Vala Harðardóttir (Augnablik)
68. mín MARK!
Margrét Brynja Kristinsdóttir (Augnablik)
Búin að eiga virkilega flottan leik í kvöld og gerir vel í þessu marki. Hún er alein inn í markteig þegar boltinn kemur af hægri vængnum og sendir boltann í markið.

2-1 fyrir Augnablik!
65. mín
Inn:Ásta Kristinsdóttir (Grótta) Út:María Lovísa Jónasdóttir (Grótta)
Þreföld skipting!
65. mín
Inn:Mist Þormóðsdóttir Grönvold (Grótta) Út:Signý Ylfa Sigurðardóttir (Grótta)
Þreföld skipting!
65. mín
Inn:Helga Rakel Fjalarsdóttir (Grótta) Út:Emma Steinsen Jónsdóttir (Grótta)
Þreföld skipting!
64. mín
HA hvernig var enginn þarna!?
Tinna með frábæran boltann inn að marki Augnabliks en enginn Gróttu treyja til að taka við honum.
63. mín
Svipað atvik og áðan, Grótta vill horn en fær ekki. Ég sá þetta ekki nægilega vel.
61. mín
Birta reynir stungu inn á Margréti Brynju, fyrir aftan vörn Gróttu. Sigrún Ösp gerir hins vegar virkilega vel og er á undan henni og kemur boltanum frá.
57. mín
VÁ!!!!
Þórhildur bókstaflega labbar framhjá Sigrúnu Ösp og nær skoti sem fer rétt framhjá! Augnablik eru mun líklegri núna að bæta við marki frekar en Grótta.
55. mín
Augnablik fær hornspyrnu sem Ísafold tekur. Hildur María er ekki langt frá því að koma Augnablik yfir með skot í slá. Hornspyrnurnar hjá Augnalbik eru stórhættulegar!
50. mín MARK!
Þórhildur Þórhallsdóttir (Augnablik)
Stoðsending: Ísafold Þórhallsdóttir
Þær jafna!!!

Augnablik fær hornspyrnu sem Ísafold tekur. Spyrnar er virkilega fös og Þórhildur hoppar upp í boltann og skallar hann í netið! Virkilega vel gert!

1-1!
48. mín
Margrét Brynja nær boltanum af Diljá rétt fyrir framan varnarlínu Gróttu. Margrét Brynja sendir boltann á Þórhildi sem klobbar Margréti Rán og fer framhjá Sigrúnu í vörninni en missir boltann aðeins of langt frá sér. Grótta fær markspyrnu.
46. mín
Signý fer upp hægri kantinn og nær að senda boltann fyrir. Tinna nær skallanum en hann fer töluvert yfir.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur er hafinn. Augnablik byrjar með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Augnablik talsvert sterkara hér á síðustu mínútum fyrri hálfleiks að mínu mati.
44. mín
Þetta var skrítið, boltinn fer í varnarmenn Augnabliks og Signý er að skýla boltanum til þess að fá horn en línuvörðurinn segir markspyrna.
43. mín
Ísafold aftur á ferðinni. Nær skoti inn í vítateig Gróttu en fer rétt yfir!
41. mín
Ísafold fer framhjá eiginlega öllum varnarmönnum Gróttu og er komin upp að endalínu vinstra megin við mark Gróttu. Hún sendir boltann fyrir markið en Grótta hreinsar.
39. mín
Eyrún Vala reynir stungu inn á Birtu, en sendingin er aðeins of löng. Tinna Brá er fyrst að boltanum og nær honum.
35. mín
Augnablik með skyndisókn sem endar með skoti frá Birtu en það fer framhjá.
33. mín
Augnablik fær hornspyrnu en Signý hreinsar boltann frá.
30. mín
Birta reynir skot að marki en María Lovísa fer fyrir það.
28. mín
Augnablik nær að stinga boltanum inn fyrir Margréti Rán í vinstri hafsent og Ísafold fer á fleygiferð inn að marki. Margrét Rán nær henni hins vegar á eitthvern ótrúlegan hátt en Ísafold nær að senda út á Margréti Brynju, sem nær skoti að marki en Tinna Brá ver aftur.
23. mín
VÁ! þetta var varsla.
Þórhildur gerir virkilega vel og kemst upp vinstri kantinn. Hún nær að senda boltann meðfram jörðinni inn í vítateig Gróttu. Margrét Brynja nær skoti að marki og Tinna Brá ver glæsilega, uppi í hægra horni marksins. Augnablik fær hornspyrnu sem ekkert verður úr.
20. mín
Lítið í gangi núna á síðustu mínútum eftir að markið kom...
13. mín MARK!
Eydís Lilja Eysteinsdóttir (Grótta)
Stoðsending: María Lovísa Jónasdóttir
1-0 Grótta!

María Lovísa fer upp vinstri kantinn og sendir boltann meðfram jörðinni inn í vítateig Augnabliks. Boltinn fer framhjá tveimur varnarmönnum Augnabliks og mér sýndist að ein rann í grasinu. Boltinn fer alla leiðina yfir til Eydísar sem er alein og setur boltann í markið.
10. mín
Grótta fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Augnabliks. Diljá tekur spyrnuna en hún ratar beint í fangið á Bryndísi í markinu.
7. mín
Fín sókn hjá Augnablik. Þórhildur og Írena með flott spil inn á miðjunni sem endar með því að Írena gefur sendingu út á hægri kantinn. Þar nær Birta að senda boltann fyrir mark Gróttu. Írena var alveg laus inn í teig Gróttu og nær skoti en Sigrún fer fyrir boltann og kemur hættunni frá.
4. mín
Augnablik fær hornspyrnu. Hugrún nær að skallanum sem fer rétt framhjá.
2. mín
Fyrsta skot leiksins er komið. Ísafold skýtur að marki rétt fyrir utan vítateig. Boltinn fer framhjá og Grótta fær markspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn. Grótta byrjar með boltann.
Fyrir leik
Í síðustu umferð vann Augnablik Víking R. 3-1. Grótta tapaði í síðustu umferð á móti Keflavík, 3-2.

Augnablik stillir upp sama byrjunarliði frá síðasta leik.
Grótta gerir hins vegar breytingar. Inn koma Eydís Lilja, Margrét Rán og Signý. Mist, Rakel og Emelía koma úr byrjunarliðinu.
Fyrir leik
Augnablik hefur unnið fimm leiki og tapað fimm. Þær hafa gert þrjú jafntefli og hafa markatöluna 20:27.

Grótta hefur unnið fimm og tapað fimm, líkt og Augnablik. Þær hafa gert fjögur jafntefli og hafa markatöluna 18:21.
Fyrir leik
Um er að ræða frestaðan leik frá 9.umferð sem átti að fara fram 11.ágúst.

Augnablik situr í 6.sæti í deildinni með 18 stig og Grótta í 5.sæti með 19 stig.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá Kópavogsvelli. Í kvöld fer fram leikur Augnabliks og Gróttu í Lengjudeild kvenna.
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
Eydís Lilja Eysteinsdóttir
Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir
3. Margrét Rán Rúnarsdóttir
9. Tinna Jónsdóttir
10. Bjargey Sigurborg Ólafsson ('80)
19. Signý Ylfa Sigurðardóttir ('65)
21. Diljá Mjöll Aronsdóttir
23. Emma Steinsen Jónsdóttir ('65)
24. Lovísa Davíðsdóttir Scheving (f) ('80)
29. María Lovísa Jónasdóttir ('65)

Varamenn:
12. Elma Karen Gunnarsdóttir (m)
6. Helga Rakel Fjalarsdóttir ('65)
7. Jórunn María Þorsteinsdóttir
11. Heiða Helgudóttir
15. Mist Þormóðsdóttir Grönvold ('65)
16. Ásta Kristinsdóttir ('65)
17. Sofía Elsie Guðmundsdóttir ('80)
28. Ástrós Kristjánsdóttir ('80)

Liðsstjórn:
Pétur Rögnvaldsson (Þ)
Magnús Örn Helgason (Þ)
Chris Brazell
Björn Valdimarsson
Gísli Þór Einarsson
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: