Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Fjölnir
2
1
Víkingur Ó.
0-1 Þorleifur Úlfarsson '39
Ragnar Leósson '94 1-1
Hilmir Rafn Mikaelsson '95 2-1
10.06.2021  -  19:15
Extra völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Rigning og 8 gráður
Dómari: Guðgeir Einarsson
Maður leiksins: Hlynur Sævar Jónsson (Víkingur Ólafsvík)
Byrjunarlið:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
2. Valdimar Ingi Jónsson ('81)
4. Sigurpáll Melberg Pálsson ('81)
6. Baldur Sigurðsson ('45)
8. Arnór Breki Ásþórsson
11. Dofri Snorrason
15. Alexander Freyr Sindrason
19. Hilmir Rafn Mikaelsson
22. Ragnar Leósson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson (f) ('61)
31. Jóhann Árni Gunnarsson

Varamenn:
10. Viktor Andri Hafþórsson ('81)
11. Hallvarður Óskar Sigurðarson ('61)
16. Orri Þórhallsson ('81)
18. Kristófer Jacobson Reyes ('45)
28. Hans Viktor Guðmundsson
33. Eysteinn Þorri Björgvinsson

Liðsstjórn:
Ásmundur Arnarsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Gunnar Valur Gunnarsson
Steinar Örn Gunnarsson
Einar Hermannsson
Kári Arnórsson
Magnús Birkir Hilmarsson
Sigurður Frímann Meyvantsson

Gul spjöld:
Valdimar Ingi Jónsson ('66)
Dofri Snorrason ('77)
Ragnar Leósson ('84)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Guðgeir Einarsson flautar hér til leiksloka.

Fjölnismenn vinna hérna á ótrúlegan hátt eftir tvö mörk í uppbótartíma.

VÁVÁVÁ.

Viðtöl og skýrsla síðar í kvöld
95. mín MARK!
Hilmir Rafn Mikaelsson (Fjölnir)
Stoðsending: Orri Þórhallsson
ÉG Á EKKI TIL ORÐ!!!!!!!!!!!

Orri Þórhalls lyftir boltanum í gegn og Hilmir Rafn sleppur aleinn í gegn og setur boltann framhjá Marvini í marki Víkinga frá Ólafsvík.

VÁÁÁÁ ÞETTA GERÐIST BARA!!!!!!
94. mín MARK!
Ragnar Leósson (Fjölnir)
FJÖLNISMENN ERU AÐ JAFNA HÉR LEIKINN!!!

Viktor Andri fær boltann út til vinstri og kemur með boltann fyrir og boltinn fer af varnarmanni Ólsara og boltinn hrekkur til Ragnars sem kláraði framhjá Marvini.

1-1!!!!
93. mín
Ragnar Leósson fær boltann úti til hægri og reynir fyrirgjöf en Ólsarar hreinsa.
90. mín
Klukkan slær 90 hér á Extravelinum.

Eru Ólsarar að sækja sinn fyrsta sigur í deildinni í sumar?
88. mín
Inn:Anel Crnac (Víkingur Ó.) Út:Þorleifur Úlfarsson (Víkingur Ó.)
Markaskorari Ólsara lýkur sér af hér í kvöld.
85. mín
Bjartur brýtur á Hallvarði hægra megin og aukaspyrna dæmd.

Hallvarður tekur spyrnuna sem er góð en Fjölnismenn ná ekki að koma boltanum í netið.
84. mín Gult spjald: Ragnar Leósson (Fjölnir)
Marteinn Theodórsson fær boltann og er að byggja upp skyndisókn og Raggi Le togar hann niður.
84. mín Gult spjald: Bjarni Þór Hafstein (Víkingur Ó.)
Viktor Andri fær boltann og keyrir upp hægri vænginn og Bjarni Þór brýtur á honum.
81. mín
Inn:Orri Þórhallsson (Fjölnir) Út:Valdimar Ingi Jónsson (Fjölnir)
81. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Fjölnir) Út:Sigurpáll Melberg Pálsson (Fjölnir)
80. mín Gult spjald: Bessi Jóhannsson (Víkingur Ó.)
Hilmir nær boltanum og potar boltanum framhjá Bessa sem brýtur á Hilmi við vítateiginn vinstramegin og aukaspyrna á hættulegum stað.
79. mín
Boltinn berst til Ragnars Le og Bessi keyrir í bakið á honum og Guðgeir dæmir aukaspyrnu.

Jóhann Árni tekuyr spyrnuna en Ólsarar skalla boltann í burtu boltinn berst aftur inn á teiginn og Alex Freyr fellur um sig en ekkert dæmt.
77. mín
Inn:Vitor Vieira Thomas (Víkingur Ó.) Út:Guðfinnur Þór Leósson (Víkingur Ó.)
77. mín Gult spjald: Dofri Snorrason (Fjölnir)
Brýtur á Bjarti á miðjum velli.
76. mín
Hilmir Rafn keyrir inn á teig Ólsara en Bjarni Þór hreinsar boltann afturfyrir í hornspyrnu sem ekkert verður úr.
75. mín
Þorleifur fær boltann og keyrir í átt að marki Fjölnis og reynir skot á markið en boltinn framhjá.
75. mín
Ekkert að frétta hérna síðustu fimm mínútur. Mikið miðjumoð og ekkert um færi.
70. mín
Þorleifur fær boltann út til vinstri og leggur boltann á Bjart sem framlengir boltanum á Guðfinn sem reynir að smyrja boltann í fjær en það mistókst og boltinn beint á Sigurjón.
69. mín
Harley fær boltann út til hægri og fer ílla með Arnór Breka og á góða fyrirgjöf beint á Bjart sem á skalla beint á Sigurjón.
66. mín Gult spjald: Valdimar Ingi Jónsson (Fjölnir)
Gult fyrir mótmæli.
66. mín Gult spjald: James Dale (Víkingur Ó.)
ÚFFF ÞETTA VAR LJÓTT OG VERÐSKULDAÐI MÖGULEGA ANNAN LIT!

James Dale hjólar í tveggjafóta tæklingu á Jóhann Árna og er réttilega dæmdur brotlegur og neglir síðan boltanum í burtu.

Þarna hefði jóhann Árni getað stórslasast.
65. mín
Fjölnismenn vinna hornspyrnu.

Jóhann Árni tekur spyrnuna en Marvin kýlir frá.
63. mín
Alex Freyr reynir að finna Hallvarð innfyrir en sendingin alltof föst og afturfyrir.
61. mín
Inn:Hallvarður Óskar Sigurðarson (Fjölnir) Út:Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
60. mín
Fjölnismenn fá aukaspyrnu alveg úti við hliðarlínu hægra megin.

Jóhann Árni tekur spyrnuna en Mikael Hrafn hreinsar boltann burt.
57. mín
HVERNIG ER HILMIR RAFN EKKI BÚIN AÐ SKORA Í KVÖLD??

Boltinn hrekkur innfyrir á Hilmi sem sleppur aleinn á móti Marvini og ætlar að leika á Marvin en Marvin nær hendi í boltann og boltinn hrekkur til Ragnars sem reynir skot á markið en Ólsarar mættur á línuna og bjarga.
52. mín
Hilmir Rafn sleppur í gegn og keyrir inn á teiginn en Bessi kemur á ferðinni og á geggjaða tæklingu og boltinn af Hilmari og afturfyrir.

Allt verður vitlaust og kalla Fjölnismenn eftir einhverju þarna.
50. mín
Dofri Snorrason finnur Valdimar Inga sem reynir fyrirgjöf en boltinn af varnamanni Ólsara og beint aftur á Valdimar sem fær annan fyrirgjafar séns en boltinn af varnarmanni Ólsara og í horn.

Jóhann Árni spyrnir boltanum fyrir en Ólsarar skalla boltann í burtu.
48. mín
HILMIR RAFN SKALLAR BOLTANN YFIR ÚR DAUÐAFÆRI!!!!

Guðmundur Karl lyftir boltanum fyrir frá vinstri beint á kollinn á Hilmi sem var einn og óvaldaður en Hilmir skallar boltann yfir.

Annað dauðafæri sem Hilmir fær hér í kvöld.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn. Gummi Karl á upphafsspyrnuna.

Fleiri mörk, takk!
45. mín
Inn:Kristófer Jacobson Reyes (Fjölnir) Út:Baldur Sigurðsson (Fjölnir)
Sögur hér á Extravellinum segja að Baldur hafi farið í Jansen í dag og hann klárar ekki leikinn hér í kvöld. Reyes kemur inn í hans stað.
45. mín
Hálfleikur
Guðgeir Einarsson flautar til hálfleiks hér í Grafarvoginum.

Gestirnir frá Ólafsvík fara með eins marks forskot inn í hálfleikinn, óvænt segja einhverjir.

Tökum okkur pásu og komum síðan með seinni 45 hér beint frá Extravellinum.
44. mín
Þorleifur fær boltann á miðjum vallarhelmingi Fjölnis og kemur boltanum á Martein sem kemur sér nær marki Fjölnis og lætur vaða en boltinn beint á Sigurjón.

Ólsarar líflegri hér síðustu mínútur.
43. mín
Ólsarar með gott spil fyrir framan teig Fjölnis og boltinn endar hjá Marteini sem lætur vaða með fram blautu grasi en Sigurjón gerir vel og grípur boltann.
39. mín MARK!
Þorleifur Úlfarsson (Víkingur Ó.)
Stoðsending: James Dale
MAAAAAAAAAAAAAARK!!!!

James Dale fær boltann og leggur hann á Þorleif sem snýr frábærlega með tvo menn í sér og chippar yfir Sigurjón í marki Fjölnismanna.

ÞETTA VAR FÁRÁNLEGA VEL GERT VÁÁ!!!!!
36. mín
Þorleifur fær boltann við hægri hornfánan og gerir vel með boltann og á fyrirgjöf en Baldur setur boltann afturfyrir.

Harley tekur hornspyrnuna frá hægri en Fjölnismenn koma boltanum burt.
34. mín
Bessi Jóhanns lyftir boltanum upp á Harley sem fær boltann rétt fyrir utan teig og nær að taka hann vel niður og á skot sem er laust beint á Sigurjón.
30. mín
Valdimar Ingi fær boltann vinstra megin og vinnur hornspyrnu.

Jóhann Árni tekur spyrnuna og boltinn dettur fyrir Ragnar Le sem lætur vaða og boltinn í varnarmann og afturfyrir. Raggi kallaði eftir hendi þarna.

Arnór Breki tekur hornspyrnununa hinumegin frá og Gummi Karl setur boltann í netið en hendi dæmd.
27. mín
SLÁIN !!!!!!!!

Dofri Snorrason lyftir boltanum í gegn á Hilmir sem sendir Bessa á rassinn og hamrar boltanum í slánna.

Þarna átti Hilmir að setja hann!!
24. mín
Valdimar fær boltann út til vinstri við hornfánan og Mikael brýtur á honum og aukaspyrna dæmd.

Jóhann Árni tekur spyrnuna og reynir skot á markið á nær úr þröngri stöðu og Marvin slær hann í hornspyrnu sem Jóhann Árni tekur frá hægri en Fjölnismenn skalla boltann framhjá.
22. mín
Boltinn berst út til hægri á Harley sem lyftir boltanum fyrir en Sigurjón keyrir út í boltann og grípur.

Fátt um fína drætti í þessu hérna fyrstu tuttugu.
18. mín
Baldur leggur hann til hliðar á Gumma Karl sem lyftir honum inn á teiginn en boltinn innarlega og beint á Marvin Darra.
15. mín
Alexander Freyr með slæma sendingu úr vörn Fjölnis og Ólsarar komast í boltann og boltinn út á Harley sem lætur vaða en boltinn beint á Sigurjón.
13. mín
James Dale fær boltann á miðjum vallarhelmingi Fjölnis, tekur eitt touch og lætur vaða á markið en boltinn framhjá.
11. mín
Valdimar fær boltann í gott hlaup upp hægra meginn og kemur sér í fyrirgjafastöðu og lyftir boltanum inn á teiginn en Jóhann Árni og Hilmir sem báðir voru mættir inn á teiginn ná ekki til boltans.

Rólegt yfir þessu fyrstu mínúturnar.
9. mín
Hlynur Sævar lyftir boltanum inn fyrir á Þorleif en Þorleifur langt fyrir innan og réttilega dæmd rangstæða.
7. mín
Gummi Karl lyftir boltanum fyrir á Ragnar Leósson sem tekur hann í fyrsta en boltinn í hliðarnetið.
6. mín
Arnór Breki lyftir boltanum upp á Hilmi á vinstri vængnum og Hilmir keyrir inn á teiginn og fellur en hornspyrn dæmd.

Ekkert varð úr hornspyrnunni.
5. mín
Ragnar Leósson fær boltann óvænt snýr og lætur bara vaða á markið og boltinn rétt framhjá.
4. mín
Ragnar Leósson fær boltann inn á teig Víkinga og vinnur hornspyrnu.

Jóhann Árni með góðan bolta inn á teiginn en Fjölnismenn ná ekki að setja pönnuna í boltan.
2. mín
Þorleifur Úlfarsson nálægt því að koma Ólafsvíkingum yfir!!!!

Boltinn kemur út til vinstri á Harley sem fær boltann og lýtur inn á teiginn og kemur með nákvæma sendingu yfir á fjær þar sem Þorleifur var einn og óvaldaður og skallaði boltann rétt framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Guðgeir Einarsson flautar þetta á og það eru gestirnir frá Ólafsvík sem hefja leik.

Góða skemmtun!
Fyrir leik
Fjölnismenn ganga inn á völlinn fyrstir og Víkingar frá Ólafsvík koma á eftir þeim og dómarar leiksins eru síðastir inn á völlinn.
Fyrir leik
Hálftími í upphafsflaut

Leikmenn liðana eru komin út í upphitun og það eru dómarar leiksins einnig. Vonandi fáum við fjörugan leik hér á Extravellinum í kvöld.
Fyrir leik
Hans Viktor Guðmundsson fyrirliði Fjölnis er á varamannabekk Fjölnismanna í kvöld en hann hefur ekkert verið með Fjölnismönnum á þessu tímabili vegna meiðsla. Mikið gleðiefni fyrir Grafarvoginn að Hansi sé að koma til baka.


Fyrir leik
Byrjunarlið liðana eru klár og má sjá þau hér til hliðana.

Ási Arnars gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Aftureldingu. Valdimar Ingi, Hilmir Rafn Mikalesson og Ragnar Leósson byrja. Hallvarður Óskar og Orri Þórhaldsson fá sér sæti á bekknum og Andri Freyr Jónasson er ekki í hóp hjá Fjölnismönnum í kvöld.

Gunni Einars gerir tvær breytingar frá jafnteflinu gegn Þór. Emmanuel Eli Keke og Kareem Isiaka taka báðir út leikbann hér í kvöld og inn í þeirra stað koma þeir Guðfinnur Þór Leósson og Marteinn Theodórsson.
Fyrir leik
Guðgeir Einarsson heldur utan um flautuna í kvöld og honum til aðstoðar eru þeir Daníel Ingi Þórisson og Magnús Garðarsson

Flautað verður til leiks á slaginu 19:15
Fyrir leik
Emmanuel Eli Keke og Kareem Isiaka eru hvorugir með Víkingum frá Ólafsvík en þeir fengu báðir rautt spjald í síðustu umferð á móti Þór Akureyri en tveimur færri náðu Ólafsvíkingar stigi gegn Þórsurum.
Fyrir leik
Heimamenn í Fjölni sitja fyrir leikinn í öðru sæti deildarinnar með 10 stig en liðið gerði 2-2 jafntefli við Aftureldingu í síðustu umferð. Mörk Fjölnis skoruðu Jóhann Árni Gunnarsson og Valdimar Ingi Jónsson.

Gestirnir frá Ólafsvík sitja á botni deildarinnar með eitt stig. Liðið fékk Þórsara frá Akureyri í heimsókn í síðustu umferð og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli. Mörk Víkinga skoruðu þeir Kareem Isiaka og Marteinn Theodórsson.
Fyrir leik
Gott og gleðilegt kvöldið kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur á Extravöllin í Grafarvogi. Hér í kvöld mætast Fjölnir og Víkingur Ólafsvik í Lengjudeild karla.
Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson
4. Hlynur Sævar Jónsson
6. James Dale (f)
7. Mikael Hrafn Helgason (f)
8. Guðfinnur Þór Leósson ('77)
9. Þorleifur Úlfarsson ('88)
10. Bjarni Þór Hafstein
11. Harley Willard
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
19. Marteinn Theodórsson
21. Bessi Jóhannsson

Varamenn:
12. Konráð Ragnarsson (m)
2. Alex Bergmann Arnarsson
6. Anel Crnac ('88)
17. Brynjar Vilhjálmsson
20. Vitor Vieira Thomas ('77)
23. Ísak Máni Guðjónsson

Liðsstjórn:
Brynjar Kristmundsson (Þ)
Gunnar Einarsson (Þ)
Antonio Maria Ferrao Grave
Kristján Björn Ríkharðsson
Þorsteinn Haukur Harðarson

Gul spjöld:
James Dale ('66)
Bessi Jóhannsson ('80)
Bjarni Þór Hafstein ('84)

Rauð spjöld: