Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Keflavík
1
0
Leiknir R.
Joey Gibbs '6 1-0
20.06.2021  -  19:15
HS Orku völlurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Vestlæg átt 8m/s hiti um 10 gráður og sú gula lætur sjá sig við og við.
Dómari: Elías Ingi Árnason
Maður leiksins: Magnús Þór Magnússon
Byrjunarlið:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Nacho Heras
5. Magnús Þór Magnússon (f) (f)
7. Davíð Snær Jóhannsson ('91)
10. Dagur Ingi Valsson ('79)
10. Kian Williams
16. Sindri Þór Guðmundsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Joey Gibbs
25. Frans Elvarsson
28. Ingimundur Aron Guðnason

Varamenn:
21. Helgi Bergmann Hermannsson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
8. Ari Steinn Guðmundsson ('79)
9. Adam Árni Róbertsson
11. Helgi Þór Jónsson ('91)
20. Christian Volesky
98. Oliver Kelaart

Liðsstjórn:
Eysteinn Húni Hauksson Kjerúlf (Þ)
Sigurður Ragnar Eyjólfsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Þórólfur Þorsteinsson
Falur Helgi Daðason
Jón Örvar Arason
Gunnar Örn Ástráðsson

Gul spjöld:
Magnús Þór Magnússon (f) ('54)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Keflavík vinnur sinn annan leik í röð og sinn fyrsta deildarsigur á Leikni frá árinu 2015!

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
93. mín
Máni Austmann fær boltann óvænt í teignum eftir langan bolta fram en nær ekki valdi á boltanum og skot hans beint á Sindra.
91. mín
Inn:Helgi Þór Jónsson (Keflavík) Út:Davíð Snær Jóhannsson (Keflavík)
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma.
88. mín
Leiknismenn í frábæru færi í teignum Máni með skotið en Sindri ver!!!!!!

Paez fylgir á eftir og er togaður niður en flaggið á loft sem bjargar heimamönnum.
87. mín
Tíminn að fljúga frá gestunum. Eru Keflvíkingar að lyfta sér uppfyrir þá?
85. mín
Sævar í færi í teig Keflavíkur en Magnús mætir og blokkar skotið aftur fyrir.

Hætta eftir hornið en boltinn framhjá markinu.
84. mín
Ari Steinn þú átt að gera betur!!!!!!!!

Einn á einn gegn Guy sem er mættur 30 metra út úr markinu en Ari reynir að skjóta í stað þess að fara fram hjá honum. Setur boltann beint í Guy fyrir framan sig.
82. mín Gult spjald: Loftur Páll Eiríksson (Leiknir R.)
Brot út við hliðarlínu.
81. mín
Leiknir fær hornspynu.
80. mín
Gestirnir færast nær, Daníel með skot að marki með jörðinni en boltinn rétt framhjá.
79. mín
Inn:Ari Steinn Guðmundsson (Keflavík) Út:Dagur Ingi Valsson (Keflavík)
Fyrsta breyting Keflavíkur í leiknum.
76. mín
Inn:Árni Elvar Árnason (Leiknir R.) Út:Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
75. mín Gult spjald: Ósvald Jarl Traustason (Leiknir R.)
Stöðvar skyndisókn.
74. mín
Skalli úr teignum eftir fyrirgjöf sem fer á markið frá Leikni en Sindri með allt á hreinu í rammanum.

Fyrsta tilraun þeirra sem hittir markið.
71. mín
Keflavík fær hornspyrnu.

Heimamenn brotlegir eftir hornið.
70. mín
Ástbjörn með skot úr teignum en beint á Guy sem ver auðveldlega.
69. mín Gult spjald: Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
Peysutog.
68. mín
Sindri missir af boltanum en gestirnir ná ekki að nýta sér það. Önnur fyrirgjöf en Brynjar rangstæður.
67. mín
Gestirnir fá hornspyrnu.
65. mín
Inn:Arnór Ingi Kristinsson (Leiknir R.) Út:Ernir Bjarnason (Leiknir R.)
65. mín
Inn:Octavio Paez (Leiknir R.) Út:Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (Leiknir R.)
64. mín
Keflavík fær horn.

Að öðru leyti bragðdauft mjög.
63. mín
Ernir með skot úr teignum en víðsfjarri markinu.
60. mín
Dagur Ingi með fast skot með jörðinni en boltinn í varnarmann og afturfyrir.
58. mín
Sævar Atli í dauðafæri á markteig eftir fyrirgjöf frá vinstri en hittir ekki boltann!
57. mín
Davíð í færi eftir fyrirgjöf Ástbjörns en boltinn af varnarmanni og afturfyrir.
55. mín
Emil Berger tekur spyrnuna sem er vægast sagt slök og beint í vegginn.
54. mín Gult spjald: Magnús Þór Magnússon (f) (Keflavík)
Aukaspyrna á stórhættulegum stað Danni Finns stendur yfir boltanum.
53. mín
Daníel Finns með lúmskt skot en framhjá fer boltinn.
47. mín
47:30 Leiknismenn með sitt fyrsta skot að marki. Hátt yfir,
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn

Heimamenn hefja leik hér í síðari hálfleik og sækja nú gegn vindinum.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér i Keflavík. Heimamenn leiða eftir mark frá Joey Gibbs eftir hornspyrnu. Gestirnir verið mun meira með boltann en hafa enn ekki átt skot að marki ennþá sem segir sína sögu.
45. mín
1 mínúta í uppbótartíma.
43. mín
Heimamenn fá hornspyrnu.
40. mín
Lítið gerst hér undanfarnar mínútur, gestirnir meira með boltann en sem fyrr ekki skapað sér neitt af viti.
36. mín
Gestirnir fá horn.
33. mín Gult spjald: Ernir Bjarnason (Leiknir R.)
32. mín
Guy Smit stálheppinn!!!!!!

Fer út í auðvelda sendingu inn á teiginn en missir boltann og tekur Joey Gibbs niður. Flaggið bjargar honum
30. mín
Sævar Atli með geggjaða móttöku í teignum en missir svo boltann frá sér. Einhverjir kalla eftir peysutogi en það var aldrei inn í myndinni ef eitthvað var hélt Sævar í Nacho.
26. mín
Boltinn settur á nærstöng. Guy kýlir boltann í annað horn.
25. mín
Keflavík fær hornspyrnu. Sama uppskrift og áðan?
23. mín
Sævar Atli sækir horn fyrir gestina.
21. mín
Leiknisliðið verið sterkara síðustu mínútur og haldið boltanum vel. Ekkert verið að skapa sér þó ennþá.
17. mín
Nacho mep brot á miðjum vellinum og stöðvar skyndisókn, Sleppur með tiltal.
14. mín
Aukaspyrna tekinn inn á teig Leiknis, Gibbs í boltanum en flaggið á loft.
12. mín
Leiknismenn verið að vakna hægt og rólega til lífsins en enn ekki skapað sér færi.
8. mín
Keflavík fær færi eftir færi,

Kian með fyrirgjöf frá vinstri sem Gibbs skallar rétt framhjá.
Varnarlína gestanna shaky.
6. mín MARK!
Joey Gibbs (Keflavík)
Stoðsending: Dagur Ingi Valsson
Hornspyrnarn góð og Gibbs þarf ekki annað en að rétt snerta boltann til að koma honum í markið. Fjórði leikurinn í röð sem hann skorar í!
5. mín
Frans Elvarson í dauðafæri en Guy bjargar í tvígang, Keflavík fær horn.
4. mín
Sindri Þór með lúmska fyrirgjöf í svæðið milli varnar og markmanns. Kian tekur hlaupið en er í númeri of litlum skó til að ná til boltans.

Keflavík byrjar betur.
2. mín
Davíð Snær leikur inn á völlinn frá vinstri og lætur skotið ríða af en hvergi nálægt markinu fer boltinn.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér í Keflavík. Það eru gestirnir sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar og styttist í að þessi veisla hefjist. Ná Keflvíkingar sínum fyrsta sigri á Leikni síðan 2015 eða heldur hreðjatak Breiðhyltinga á Keflavík áfram?
Fyrir leik
Ísak Óli Ólafsson var kynntur til leiks með ansi rosalegu myndbandi hjá Esbjerg nú rétt í þessu. Sjón er sögu ríkari segi ég nú bara.


Fyrir leik
Byrjunarliðin

Keflavík gerir eina breytingu á liðin sínu frá sigrinum gegn HK á dögunum. Ísak Óli Ólafsson sem farinn er til Danmerkur til að ganga frá félagaskiptum sínum þar hverfur á braut og í hans stað kemur Ingimundur Aron Guðnason.
Gestirnir úr Breiðholti gera þrjár breytingar á liðinu sem tapaði gegn KR Daði Bæring Halldórsson, Árni Elvar Árnason, Arnór Ingi Kristinsson víkja úr byrjunarliðinu fyrir þá Daða Bærings Halldórson, Gyrði Hrafn Guðbrandsson og Loft Pál Eiríksson
Fyrir leik
Aðstæður

Það eru prýðisaðstæður í Keflavík fyrir þennan leik. Vestlæg átt um 8m/s og hitinn í kringum 10 gráðurnar. Völlurinn er bara í fínu standi en það sér alveg á honum enda tveir leikir farið fram á honum undanfarna fimm daga.


Fyrir leik
Tríóið

Elías Ingi Árnason er með flautuna á HS-Orkuvellinum í kvöld. Honum til aðstoðar eru þeir Oddur Helgi Guðmundsson og Eðvarð Eðvarðsson. Einar Ingi Jóhannsson er varadómari og Viðar Helgason sér um að fylgjast með að allt fari vel fram sem eftirlitsmaður KSÍ.


Fyrir leik
Fyrri viðureignir í efstu deild

Tvo leiki hafa liðin leikið í efstu deild til þessa. Keflavík hefur unnið annan þeirra en hinum lauk með jafntefli.

Sú tölfræði segir okkur þó fátt þar sem umræddir leikir fóru fram sumarið 2015 og er sigur Keflavíkur á Leikni það sumarið síðasti sigur Keflavíkur á Leikni. Síðan þá hafa liðin mæst alls átta sinnum í B-deild og er Keflavík sigurlaust þar, Leiknir hefur unnið fimm viðureignir þar af báða leiki liðanna í fyrra en 3 hefur lokið með jafntefli.
Fyrir leik
Keflavík

Eftir góðan sigur í annari umferð hafa fylgdu fjögur töp í röð hjá Keflavík. Þeir réttu þó úr kútnum í síðustu umferð og unnu sigur á liði HK 2-0.

Joey Gibbs sem ansi margir Fantasy spilarar hafa eflaust tekið úr liði sínu eftir fyrstu umferðinar hefur verið að finna netmöskvanna í undanförnum leikjum og skoraði bæði mörk Keflavíkur í sigrinum á HK.

Skarð er þó hoggið í lið Keflavíkur en miðvörðurinn sterki Ísak Óli Ólafsson sem verið hefur á láni hjá liðinu frá danmörku hefur yfirgefið Keflavík á ný eftir að hafa verið seldur frá Sönderjyske til Esjberg þar sem hann gekkst undir læknisskoðun í dag.


Fyrir leik
Leiknir R.

Nýliðar Leiknis geta vel við unað eftir að rúmlega þriðjungi mótsins er lokið. Sjálfsagt að þeir myndu vilja hafa fleiri stig en 7. sætið með 8 stig er þeirra hlutskipti eftir 8 leiki.

Sævar Atli Magnússon hefur verið heitur fyrir framan markið í leikjum liðsins í sumar og er kominn með 6 mörk í leikjunum 8. Aðeins Nikolaj Hansen í liði Víkinga hefur skorað meira eða alls 7 mörk.


Fyrir leik
Gott kvöld lesendur góðir og verð hjartanlega velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Leiknis í 9.umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu.
Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
3. Ósvald Jarl Traustason
5. Daði Bærings Halldórsson (f) ('76)
6. Ernir Bjarnason ('65)
7. Máni Austmann Hilmarsson
10. Sævar Atli Magnússon (f)
10. Daníel Finns Matthíasson
11. Brynjar Hlöðversson
17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('65)
18. Emil Berger
24. Loftur Páll Eiríksson

Varamenn:
12. Bjarki Arnaldarson (m)
4. Bjarki Aðalsteinsson
8. Árni Elvar Árnason ('76)
14. Birkir Björnsson
14. Davíð Júlían Jónsson
15. Birgir Baldvinsson
19. Manga Escobar
21. Octavio Paez ('65)
23. Arnór Ingi Kristinsson ('65)

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Valur Gunnarsson
Gísli Friðrik Hauksson
Hlynur Helgi Arngrímsson
Manuel Nikulás Barriga
Davíð Örn Aðalsteinsson

Gul spjöld:
Ernir Bjarnason ('33)
Daði Bærings Halldórsson ('69)
Ósvald Jarl Traustason ('75)
Loftur Páll Eiríksson ('82)

Rauð spjöld: