Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Fylkir
0
4
Breiðablik
0-1 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir '34
0-2 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir '55
0-3 Taylor Marie Ziemer '61
0-4 Hildur Antonsdóttir '90
12.07.2021  -  19:15
Würth völlurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Maður leiksins: Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
Bryndís Arna Níelsdóttir
2. Valgerður Ósk Valsdóttir
5. Katla María Þórðardóttir ('76)
7. María Eva Eyjólfsdóttir ('76)
8. Hulda Hrund Arnarsdóttir ('83)
9. Shannon Simon ('55)
11. Fjolla Shala
23. Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir
26. Þórdís Elva Ágústsdóttir (f)
28. Sæunn Björnsdóttir

Varamenn:
12. Birna Dís Eymundsdóttir (m)
3. Íris Una Þórðardóttir
10. Berglind Baldursdóttir ('76)
16. Eva Rut Ásþórsdóttir ('76)
18. Erna Sólveig Sverrisdóttir ('83)
19. Helena Ósk Hálfdánardóttir ('55)
29. Erna Þurý Fjölvarsdóttir

Liðsstjórn:
Kjartan Stefánsson (Þ)
Margrét Magnúsdóttir (Þ)
Jón Steindór Þorsteinsson (Þ)
Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Ágúst Aron Gunnarsson

Gul spjöld:
Sæunn Björnsdóttir ('54)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Öruggur 0-4 sigur Blika.

90. mín MARK!
Hildur Antonsdóttir (Breiðablik)
Hildur með gott skot af stuttu færi.
90. mín
Helena kominn upp að endalínu og leggur hann út í teig en þar er enginn.
88. mín
Birta með skot í stöng eftir fyrigjöf frá Ástu Eir.
87. mín
Vigdís Edda reynir að leggja boltann í markið af stuttu f´ri en hann fer beint í Kolbrúnu Tinnu.
84. mín
Inn:Vigdís Edda Friðriksdóttir (Breiðablik) Út:Hafrún Rakel Halldórsdóttir (Breiðablik)
84. mín
Inn:Hildur Þóra Hákonardóttir (Breiðablik) Út:Selma Sól Magnúsdóttir (Breiðablik)
83. mín
Inn:Erna Sólveig Sverrisdóttir (Fylkir) Út:Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylkir)
83. mín
Hildur Antons reynir að koma sér í færi eftir sendingu inn á teiginn frá Öglu Maríu en varnarmenn Fylkis hirða boltann af henni.
80. mín
Heiðdís reynir sendinguna upp á Öglu Maríu en Katla með allt á hreinu kemur boltanum frá.
79. mín
Inn:Hildur Antonsdóttir (Breiðablik) Út:Chloé Nicole Vande Velde (Breiðablik)
76. mín
Inn:Eva Rut Ásþórsdóttir (Fylkir) Út:Katla María Þórðardóttir (Fylkir)
76. mín
Inn:Berglind Baldursdóttir (Fylkir) Út:María Eva Eyjólfsdóttir (Fylkir)
76. mín
Valgerður setur boltann inn á teig og Bryndís er nálægt því að koma tánni í hann en Tiffany fer fyrir og Telma handsamar boltann.
75. mín
Bryndís Arna reynir skot fyrir utan teig en það fer fram hjá.
74. mín
Tiffany alveg að komast ein í gegn en Kolbrún Tinna nær henni og tekur af henni botlann.
72. mín
Helena Ósk kemst ein í gegn en Telma ver frá henni í horn.
71. mín
Agla María snýr af sér varnarmann Fylkis og kemur með fyrgjöfina sem er aðeins of há fyrir Birtu.
69. mín
Kolbrún Tinna með sendingu fram á Bryndísi en Telma er kominn langt út á móti og kemur boltanum frá.
66. mín
Inn:Tiffany Janea Mc Carty (Breiðablik) Út:Karitas Tómasdóttir (Breiðablik)
66. mín
Inn:Birta Georgsdóttir (Breiðablik) Út:Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik)
Flottur leikur hjá Áslaugu Mundu, tvö mörk.
65. mín
Hafrún Rakel með sendingu inn á teiginn en Valgerður vinnur Karítas í loftinu.
61. mín MARK!
Taylor Marie Ziemer (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
Agla María reynir að koma sér í skotstöðu inni í teig en leggur hann svo út á Taylor sem lúðrar honum í þaknetið.
61. mín
Taylor ætlar að lauma boltanum inn fyrir á Karítas en Kolbrún Tinna les sendingun og kemur boltanum frá.
60. mín
Heiðdís reynir sendinguna upp vinstri kantinn á Öglu Maríu en María Eva skýlir boltanum út af.
57. mín
Katla kemur með langann bolta upp á Helenu sem nær ekki til hanns, markspyrna.
55. mín MARK!
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik)
Stingur Valgerði af og setur boltann svo snyrtilega í fjærhornið.
55. mín
Inn:Helena Ósk Hálfdánardóttir (Fylkir) Út:Shannon Simon (Fylkir)
54. mín Gult spjald: Sæunn Björnsdóttir (Fylkir)
Hægir á Hafrúnu Rakel með peysutogi.
53. mín
Áslaug Munda með hættulegt skot sem fer rétt fram hjá.
53. mín
Agla María með skot í stöngina eftir góðan undibúning frá Hafrúnu Rakel.
51. mín
Bryndís Arna vippar boltanum til Shannon inn í teig sem tekur hann á lofti og setur hann beint í hendurnar á Telmu.
50. mín
Áslaug Munda tekur MJÖG langan sprett upp kantinn með boltann og sendir hann svo á Ástu sem setur boltann inn á teiginn en Tinna Brá hriðir boltann eftir smá klafs.
48. mín
Hulda Hrund kemur með fyrgj0finna inn á teiginn en Bryndís Arna nær ekki til boltanns.
48. mín
Karítas við það að komast ein í gegn en Katla María nær henni.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikurinn farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
Rólegur fyrri hálfleikur að baki. Blikar leiða með einu marki eftir mark frá Áslaugu Mundu beint úr horni.
44. mín
Selma Sól með skot fyrir utan teig sem fer rétt fram hjá, ágæt tilraun.
40. mín
Selma Sól með sendingu inn á teiginn en María Eva skallar hann frá.
36. mín
Selma Sól með frábæran bolta yfir til hægri á Áslaugu Mundu sem kemst fram hjá Tinnu Brá en skýtur í hliðarnetið.
34. mín MARK!
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik)
Áslaug Munda með mark beint úr horni!
33. mín
Hafrún Rakel með fyrirgjöf inn á teiginn en Kolbrún Tinna er fyrst á boltann og kemur honum frá.
28. mín
Munda með góðan bolta þvert fyrir völlinn á Öglu Maríu sem fær mikið pláss en Valgerður gerir vel og stoppar Öglu Maríu.
27. mín
Fylkir fær horn, Blikar skalla frá og Fylkiskonur fá annað horn.
26. mín
Bryndís kemst upp að endamörkum og sendir botann út í teiginn ætlaðan Þórdísi Elvu en Heiðdís kemur botlanum í horn.
23. mín
Blikarnir eru aðeins að færa sig upp á skaftið og liggja svoldið á vörn Fylkis.
21. mín
Agla María með skot inni í teig en það fer yfir.
20. mín
Hulda brýtur á Karítas á miðjum vallarhelmingi Fylkis. Selma tekur aukaspyrnuna og Heiðdís er fyrst á boltann og skallar í slánna.
19. mín
Agla María með skot sem er auðvelt viðureignar fyrir Tinnu Brá.
18. mín
Frekar rólegar upphafsmínútur hérna í Árbænum og liðin eru lítið búin að skapa sér.
16. mín
Agla með hættulegt skot utan að velli en Tinna Brá með frábæra vörslu, Blikar fá horn sem verður ekkert úr.
14. mín
Áslaug Munda með sendingu yfir á Öglu sem kemur með fyrirgjöfina en hún fer yfir allan pakkann og Fylkir á innkast.
13. mín
Selma Sól með góða sendindu inn á Chloé en Valgerður gerir vel í að stoppa Chloé.
8. mín
Hulda Hrund með góðan sprett upp völlinn, sólar varnarmenn blika hægri, vinstri en nær ekki að koma boltanum á samherja inni í teig.
6. mín
Shannon reynir stungusendingu inn á Bryndísi en Kristín Dís er á undan á boltann.
3. mín
Fylkir vinnur hornspyrnu, þær taka spyrnuna stutt og boltinn fer í varnarmann Blika og útaf, annað horn.
1. mín
Áslaug Munda kominn í ágætis stöðu inn í teig Fylkis en hittir ekki boltann.
Fyrir leik
Blikar byrja með boltann.
Fyrir leik
Þetta er alveg að hefjast, leikmenn ganga inn á völlinn ásamt dómurum.
Fyrir leik
Einnig verður leikið á Samsungvellinum í Garðabæ í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Þar mætast Stjarnan og Valur, sá leikur hefst klukkan 20:00.
Fyrir leik
Spáin
Fotbolti.net fékk Orra Rafn Sigurðsson til að spá í 10. umferð Pepsi Max deildar kvenna.

Fylkir 0 - 3 Breiðablik
"Breiðablik hefur ekki verið sannfærandi í sumar. Þær náðu þó í karakters sigur á móti Þrótti. Ég held þær verði of stór biti fyrir Fylki, þó úrslitin verði ekki þau sömu og í fyrri umferðinni.
Agla verið 'on fire' en ég vil sjá miklu meira frá Áslaugu Munda. Held trausti við hana sem fyrirliða í Draumaliðinu; hún setur tvö og leggur upp eitt til viðbótar."
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru kominn inn.
Fylkir gerir tvær breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Inn koma Valgerður Ósk Valsdóttir og Hrund Arnarsdóttir, Íris Una Þórðardóttir og Þórhildur Þórhallsdóttir koma út, Þórhildur er á láni frá Breiðablik og má því ekki leika með Fylki í dag.

Breiðablik gerir eina breytingu á sínu liði frá síðasta leik. Taylor Marie Ziemer kemur inn í byjunarliðið fyrir Tiffany Janea McCarty.
Fyrir leik
Fylkir á harm að hefna
Í fyrstu umferð mættust liðin á Kópavogsvelli og lauk leiknum með 9-0 stórsigri Blika, Fylkiskonur mæta því að öllum líkindum í hefndarhug í leikinn í kvöld.

Fyrir leik
Gengi liðanna.
Fylkir
Fylkisliðið hefur valdið töluverðum vonbrigðum í sumar, liðinu var spáð 3. sæti í deildinni fyrir mót og úr því sem komið er er hæpið að sú spá rætist.
Fyrir leikinn í kvöld sitja Fylkiskonur 9. sæti deildarinnar, fallsæti með 9 stig.
Þær hafa unnið 2 leiki, gert 3 jafntefli og tapað 4 leikjum.

Breiðablik
Blikakonur eru í mikilli baráttu í hinum enda töflunnar. Þær eru sem stendur í 2. sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Vals.
Þær hafa unnið 6 leiki og tapað 3.
Fyrir leik
Gott kvöld og velkominn í beina textalýsingu frá leik Fylkis og Breiðabliks í 10. umferð Pepsi Max deildar kvenna.
Leikurinn fer fram á heimavelli Fylkis í Árbænum og hefst klukkan 19:15.

Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir ('84)
7. Agla María Albertsdóttir
8. Heiðdís Lillýardóttir
8. Taylor Marie Ziemer
13. Ásta Eir Árnadóttir (f)
14. Chloé Nicole Vande Velde ('79)
17. Karitas Tómasdóttir ('66)
18. Kristín Dís Árnadóttir
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ('66)
27. Selma Sól Magnúsdóttir ('84)

Varamenn:
26. Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir (m)
16. Tiffany Janea Mc Carty ('66)
21. Hildur Antonsdóttir ('79)
23. Vigdís Edda Friðriksdóttir ('84)
24. Hildur Þóra Hákonardóttir ('84)
28. Birta Georgsdóttir ('66)

Liðsstjórn:
Vilhjálmur Kári Haraldsson (Þ)
Ragna Björg Einarsdóttir
Ólafur Pétursson
Særún Jónsdóttir
Aron Már Björnsson
Úlfar Hinriksson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: