Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
KR
6
0
Víkingur R.
Aideen Hogan Keane '2 1-0
Unnur Elva Traustadóttir '6 2-0
Kristín Sverrisdóttir '30 3-0
Bergdís Fanney Einarsdóttir '35 4-0
Sandra Dögg Bjarnadóttir '65 5-0
Karítas Ingvadóttir '85 6-0
19.08.2021  -  18:00
Meistaravellir
Lengjudeild kvenna
Dómari: Daníel Ingi Þórisson
Maður leiksins: Bergdís Fanney Einarsdóttir - KR
Byrjunarlið:
29. Ingibjörg Valgeirsdóttir (m)
Bergdís Fanney Einarsdóttir
4. Laufey Björnsdóttir
5. Thelma Björk Einarsdóttir
6. Rebekka Sverrisdóttir (f)
7. Unnur Elva Traustadóttir ('63)
9. Hlíf Hauksdóttir ('20)
11. Aideen Hogan Keane ('83)
14. Kristín Sverrisdóttir
23. Arden O´Hare Holden
26. Kathleen Rebecca Pingel ('46)

Varamenn:
1. Bergljót Júlíana Kristinsdóttir (m)
3. Sandra Dögg Bjarnadóttir ('63)
7. Guðmunda Brynja Óladóttir
8. Katrín Ómarsdóttir
8. Karítas Ingvadóttir ('83)
10. Margrét Edda Lian Bjarnadóttir ('46) ('74)
15. Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir
16. Lilja Dögg Valþórsdóttir ('74)
21. Tijana Krstic ('20)

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Sigursteinsson (Þ)
Gísli Þór Einarsson
Hjalti Valur Þorsteinsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+2

Daníel Ingi flautar til leiksloka!

KR hreinlega valtar yfir Víking.

Takk fyrir samfylgdina, minni á skýrslu og viðtöl seinna í kvöld.
90. mín
Erum komin í uppbótartíma sem er 2 mínútur. Nokkuð ljóst að KR fer með sigur hér í kvöld.
88. mín
Kristín Sverris með skot sem Mist ver.
85. mín MARK!
Karítas Ingvadóttir (KR)
6-0!

Karítas fær boltann við vinstra horn vítateigsins og setur hann laglega fram hjá Mist í markinu.

Nýkomin inn á eða fyrir rúmum 2 mínútum!

Þetta er einnig fyrsti meistaraflokksleikur Karítasar, ekki slæm byrjun!
83. mín
Inn:Karítas Ingvadóttir (KR) Út:Aideen Hogan Keane (KR)
Aideen búin að vera mjög góð í kvöld.
80. mín
Aideen reynir að senda Söndru í gegn en Víkingskonur ná að verjast þessu.
79. mín
Afturelding er enn 2-0 yfir gegn Augnabliki en FH eru komnar 3-2 yfir á móti HK.
78. mín
Tijana sloppin í gegn en Mist ver vel.
77. mín
Mikil kaós í teignum og boltinn berst svo út á Tijönu sem á fast skot yfir markið.
76. mín
KR fær hornspyrnu.
74. mín
Inn:Lilja Dögg Valþórsdóttir (KR) Út:Margrét Edda Lian Bjarnadóttir (KR)
71. mín
Inn:Margrét Friðriksson (Víkingur R.) Út:Brynhildur Vala Björnsdóttir (Víkingur R.)
71. mín
Inn:Arnhildur Ingvarsdóttir (Víkingur R.) Út:Dagný Rún Pétursdóttir (Víkingur R.)
70. mín
Aideen með fyrirgjöf sem Bergdís Fanney er nálægt því að ná til en Mist kemur út og er aðeins á undan í boltann.
67. mín
Bergdís Fanney í færi!

Skallar háa fyrirgjöf en boltinn rétt fram hjá markinu.
65. mín MARK!
Sandra Dögg Bjarnadóttir (KR)
MAAARK

Tók ekki langan tíma fyrir Söndru að skora, sem kom inn á fyrir rúmum 2 mínútum síðan.

Var að skrifa niður atvikið á undan og sá markið ekki almennilega en sýndist hún skalla fyrirgjöf.
64. mín
Úff munaði litlu að Tijana gerði sjálfsmark þarna.

Fyrirgjöf fyrir mark KR sem Tijana ætlar að skalla til baka en Ingibjörg þarf að hafa sig alla við að verja.
63. mín
Inn:Sandra Dögg Bjarnadóttir (KR) Út:Unnur Elva Traustadóttir (KR)
62. mín
Úff árekstur í teignum eftir þriðju hornspyrnuna. Mist og Laufey hlaupa saman.

Þær liggja í smá stund en standa svo upp, teygja úr sér og halda áfram.
61. mín
Thelma tekur spyrnuna og setur hann á nær en Mist kemur boltanum aftur í enn eitt hornið.
60. mín
Boltinn af varnarmanni og aftur fyrir og KR fær annað horn.
59. mín
KR fær hornspyrnu.
53. mín
Rólegar upphafsmínútur hér í seinni hálfleik. Ekki mikið að gerast.
51. mín
Thelma komin aftur inn.
49. mín
Thelma Björk liggur eftir og fær aðhlynningu. Sýnist hún vera í lagi.
47. mín
46. mín
Inn:Margrét Edda Lian Bjarnadóttir (KR) Út:Kathleen Rebecca Pingel (KR)
46. mín
Inn:Tara Jónsdóttir (Víkingur R.) Út:Kristín Erna Sigurlásdóttir (Víkingur R.)
46. mín
Inn:Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir (Víkingur R.) Út:Hulda Ösp Ágústsdóttir (Víkingur R.)
46. mín
Inn:Elma Rún Sigurðardóttir (Víkingur R.) Út:Margrét Eva Sigurðardóttir (Víkingur R.)
Víkingskonur gera þrefalda skiptingu í hálfleik.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Þá flautar Daníel Ingi til hálfleiks.

KR með mjög verðskuldað forskot inn í hálfleikinn. Víkingskonur hafa lítið verið með í þessum leik og gætu jafnvel verið búnar að fá á sig fleiri mörk. Sjáum hvort þær komi sterkari til leiks eftir hlé!
45. mín
Arden með fast skot fyrir utan teig sem Mist ver í horn.
43. mín
FH búnar að jafna fyrir hálfleik í Kaplakrika.
40. mín
Aideen í færi, kemst framhjá Mist en leggur hann í utanverða stöngina.
39. mín
Kristín Erna við það að sleppa ein í gegn en hún er rangstæð.
35. mín MARK!
Bergdís Fanney Einarsdóttir (KR)
Stoðsending: Aideen Hogan Keane
VÁÁÁ!

Þetta var geggjað mark!

Aideen með krossinn frá hægri til vinstri og þar mætir Bergdís á fleygiferð og skallar hann mjög fast upp í hornið.
34. mín
Víkingur fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig KR.
32. mín
FH og Afturelding eru einnig að spila núna í kvöld, en það eru liðin sem eru í baráttunni við KR um sæti í Pepsi Max deildinni.

FH er 2-0 undir gegn HK í Kaplakrika en Afturelding er 2-0 yfir gegn Augnabliki á Kópavogsvelli.
30. mín MARK!
Kristín Sverrisdóttir (KR)
3-0!

Já KR eru ekki hættar að skora. Eftir sókn KR barst boltinn út í teiginn á Kristínu Sverris sem hamraði honum í fjærhornið.
27. mín
Kathleen með skot framhjá markinu.
23. mín
Thelma Björk með skot af löngu færi sem fer framhjá markinu.
21. mín
KR heldur áfram í mikilli pressu og ætla greinilega að bæta við fleiri mörkum.
20. mín
Inn:Tijana Krstic (KR) Út:Hlíf Hauksdóttir (KR)
20. mín
Tijana Krstic gerir sig klára að koma inn á, það er ljóst að Hlíf hefur lokið leik hér í kvöld.
18. mín
Hlíf Hauks liggur eftir og heldur um hnéð að mér sýnist. Lítur alls ekki vel út en mér sýndist ekki vera nein snerting. Vonandi er þetta ekki jafn slæmt og það lítur út fyrir að vera.
15. mín
KR-ingar með mikla yfirburði fyrsta korterið. Gætu verið búnar að skora fleiri mörk á meðan ekkert hefur gengið hjá gestunum.
14. mín
ÚFF!

Bergdís aftur með boltann og kemur honum á Unni Elvu sem er ein fyrir framan markið en hittir ekki boltann! Mjög klaufalegt, hún var fyrir opnu marki!
13. mín
Bergdís fær boltann úti vinstra megin og setur hann út á Thelmu Björk sem kemur með fyrirgjöf sem er aðeins of framarlega fyrir Aideen.
12. mín
Bergdís Fanney með fyrirgjöf sem Aideen nær að setja hausinn í en nær ekki að stýra honum á markið.
6. mín MARK!
Unnur Elva Traustadóttir (KR)
Stoðsending: Aideen Hogan Keane
2-0!!

Unnur Elva búin að skora fyrir KR! Aideen vinnur boltann á eigin vallarhelming og keyrir upp völlinn og stingur varnarmenn Víkings af. Hún leggur hann svo á Unni sem klárar vel.
4. mín
KR fær aukaspyrnu úti á hægri kanti. Kristín Sverris með spyrnuna en Mist í marki Víkings grípur örugglega.
2. mín MARK!
Aideen Hogan Keane (KR)
Það er komið mark!!

Upp úr hornspyrnunni. Sá ekki hver átti skalla í slá en boltinn barst til Aideen sem kom boltanum í netið!

1-0!
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir sem hefja leik.

KR vinna boltann og geysast í sókn og fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
Fyrir leik
Víkingur fær hornspyrnu.

Rebekka liggur eftir og þarf aðhlynningu.
Fyrir leik
Vert að taka fram að Kristín Erna Sigurlásdóttir á afmæli í dag! Hún fær afmæliskveðju frá vallarþulinum en Kristín er fyrrum leikmaður KR.

Fyrir leik
Nú ganga liðin út á völl, þetta er alveg að smella á!
Fyrir leik
Það er fínasta veður hér í Vesturbænum og nóg pláss í stúkunni!
Fyrir leik
Það hafa verið þó nokkrar breytingar á leikmannahópi KR upp á síðkastið.

Ingunn Haralds fyrirliði liðsins fór út í atvinnumennsku til Grikklandsmeistara PAOK. Hildur Björg og Inga Laufey eru farnar út í nám til Bandaríkjanna og einnig er liðið án Guðmundu Brynju sem er meidd. Gumma hefur skorað 13 mörk fyrir KR í deildinni.

Þær hafa þó sótt sér liðstyrk en Thelma Björk Einarsdóttir tók skóna af hillunni og ætlar að klára sumarið með KR, sem og Hlíf Hauksdóttir. Bergdís Fanney kom til þeirra frá Val
og þær fengu einnig Unni Elvu Traustadóttur frá ÍR en hún var markahæsti leikmaður 2. deildarinnar. Þá fengu þær Aideen Keane frá Ástralíu en hún skoraði eitt mark í leiknum gegn Grindavík í síðustu umferð.
Fyrir leik
Byrjunarlið kvöldsins!

Byrjunarliðin hafa verið birt og er hægt að skoða þau hérna til hliðar.

Engin breyting á KR liðinu en Víkingskonur gera tvær breytingar.

Margrét Eva og Þórhanna koma inn fyrir Unnbjörgu og Töru.
Fyrir leik
Síðasta umferð

Í síðustu umferð fór KR til Grindavíkur og gerði 3-3 jafntefli. Kathleen Rebecca Pingel, Bergdís Fanney og Aideen Hogan Keane skoruðu mörk KR-inga.

Víkingur tók á móti Augnabliki og vann 2-1 sigur með mörkum frá Nadíu Atladóttur.
Fyrir leik
Staða liðanna í deildinni

KR er í harðri baráttu um sæti í Pepsi Max deildinni en liðið situr í 3. sæti deildarinnar með 30 stig. Afturelding er í 2. sæti með 31 stig og FH efstar með 32 stig.

Það er því gríðarlega mikilvægt fyrir KR að fá 3 stig í kvöld.

Víkingur R. er í 4. sæti deildarinnar og virðast kunna vel við sig þar. Þær eru með 7 stiga forskot á Grindavík sem er í 5. sætinu.
Fyrir leik
Fyrri viðureignin

Liðin mættust á Víkingsvelli þann 13. júní og þar fóru KR með 2-1 sigur.

Gumma skoraði mörk KR og Nadía mark Víkings.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá Meistaravöllum.

Kl. 18:00 hefst leikur KR og Víkings R. í 15. umferð Lengjudeildar kvenna.

Byrjunarlið:
1. Mist Elíasdóttir (m)
Dagbjört Ingvarsdóttir
Þórhanna Inga Ómarsdóttir
4. Brynhildur Vala Björnsdóttir ('71)
7. Dagný Rún Pétursdóttir ('71)
9. Kristín Erna Sigurlásdóttir ('46)
13. Margrét Eva Sigurðardóttir ('46)
22. Nadía Atladóttir (f)
23. Hulda Ösp Ágústsdóttir ('46)
25. Linzi Taylor
32. Freyja Friðþjófsdóttir

Varamenn:
8. Arnhildur Ingvarsdóttir ('71)
11. Elma Rún Sigurðardóttir ('46)
14. Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir
16. Helga Rún Hermannsdóttir
17. Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir ('46)
19. Tara Jónsdóttir ('46)
24. Sigdís Eva Bárðardóttir

Liðsstjórn:
John Henry Andrews (Þ)
Andri Marteinsson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Margrét Friðriksson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: