Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
ÍBV
3
1
Stjarnan
Þóra Björg Stefánsdóttir '25 1-0
1-1 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir '56
Olga Sevcova '65 2-1
Olga Sevcova '84 3-1
30.08.2021  -  18:00
Hásteinsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Maður leiksins: Olga Sevcova
Byrjunarlið:
1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
2. Ragna Sara Magnúsdóttir
5. Antoinette Jewel Williams
7. Þóra Björg Stefánsdóttir ('90)
8. Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz ('40)
10. Clara Sigurðardóttir
14. Olga Sevcova
17. Viktorija Zaicikova ('88)
20. Liana Hinds
23. Hanna Kallmaier
24. Helena Jónsdóttir

Varamenn:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
Selma Björt Sigursveinsdóttir ('90)
3. Júlíana Sveinsdóttir ('40)
6. Thelma Sól Óðinsdóttir
11. Berta Sigursteinsdóttir ('88)
19. Ingunn Þóra Kristjánsd. Sigurz
26. Eliza Spruntule
29. Lana Osinina

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Sigríður Sæland Óðinsdóttir
Guðmundur Tómas Sigfússon
Birkir Hlynsson
Inga Dan Ingadóttir
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Hrikalega mikilvægur sigur hjá ÍBV.

Verðskuldað.
90. mín
Inn:Selma Björt Sigursveinsdóttir (ÍBV) Út:Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV)
88. mín
Inn:Berta Sigursteinsdóttir (ÍBV) Út:Viktorija Zaicikova (ÍBV)
87. mín
Inn:Klara Mist Karlsdóttir (Stjarnan) Út:Eyrún Embla Hjartardóttir (Stjarnan)
87. mín
Inn:Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan) Út:Betsy Doon Hassett (Stjarnan)
84. mín MARK!
Olga Sevcova (ÍBV)
Olga alein í skyndisókn á móti 3 varnarmönnum. Það ætlar engin að mæta henni þannig að hún skýtur bara fyrir utan yfir Höllu.
82. mín
Inn:Mist Smáradóttir (Stjarnan) Út:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
82. mín
Inn:Alma Mathiesen (Stjarnan) Út:Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan)
81. mín
ÍBV í fínni sókn sem endar með skoti frá Olgu fyrir utan, en skotið laust og Halla grípur það.
76. mín
Inn:Elín Helga Ingadóttir (Stjarnan) Út:Anna María Baldursdóttir (Stjarnan)
Anna fær boltann í hausinn og neyðist til að fara útaf.

Vonum að þetta sé ekki alvarlegt.
73. mín
Varsla!

Halla ver frá Olgu af svona 2 metra færi. Viktorija vinnur boltann og kemur með fyrirgjöf á fjær þar sem Olga kemur á fleygiferð en nær ekki að koma boltanum framhjá Höllu. ÍBV fær horn.
70. mín
ÍBV fær aukaspyrnu út á kannti við litla hrifningu Kristjáns Guðmundssonar.
66. mín Gult spjald: Heiða Ragney Viðarsdóttir (Stjarnan)
Smá pirringur.
65. mín MARK!
Olga Sevcova (ÍBV)
Stoðsending: Júlíana Sveinsdóttir
Upp úr engu kemur sending frá Júlíönnu í gegn á Olgu sem klárar vel.

Stjörnukonur voru komnar hátt upp á völlinn og Olga nýtti sér það.
64. mín
Ekkert að gerast síðan að markið kom. Miðjumoð og bæði lið að missa boltann trekk í trekk.
56. mín MARK!
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Sædís Rún Heiðarsdóttir
Hildigunnur fær boltann frá Sædísi, snýr hjá teignum og setur hann stönginn inn.

Snyrtilegt.
55. mín
Stjarnan búnar að vera í sókn í ansi langan tíma en ná ekki að finna skotfæri. Boltinn endar í höndunum á Auði.
52. mín Gult spjald: Anna María Baldursdóttir (Stjarnan)
Brýtur á Olgu.
52. mín
Seinni hálfleikur byrjar full rólega, gestirnir ætla að liggja aðeins meira til baka og leyfa ÍBV að halda boltanum.
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Fjörugur fyrri hálfleikur, vonum að sá seinni verði það líka.
40. mín
Inn:Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV) Út:Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz (ÍBV)
Kristjana fer meidd útaf, ég sá ekki alveg hvað gerðist.
39. mín
Hildigunnur Ýr enn og aftur að koma sér í skotfærið en skot hennar aftur framhjá.
38. mín
OLGAAA!!!

Liana með rosalega sendingu í gegn á Olgu sem fer framhjá markmanni Stjörnunar en rennir boltanum framhjá.
34. mín
ÍBV fær horn.

Það kemur ekkert upp úr því.
32. mín
Arna Dís á skot framhjá eftir frábæra sendingu í gegn frá Ingibjörg Lúcíu.
29. mín
Þóra Björg með aukaspyrnu langt frá sem er á leiðinni í samskeitina en Halla ver.

Halla liggur eftir meidd en stendur fljótt upp sem er hrikalega mikilvægt þar sem gestirnir eiga ekki markmann á bekknum.
25. mín MARK!
Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV)
Stoðsending: Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz
Geðveikt mark!

Helena með frábæran bolta á Kristjönu sem keyrir upp kantinn og kemur boltanum út í teignn þar sem Þóra rennir boltanum í netið.
21. mín
Hildigunnur Ýr sloppin í gegn en skot hennar beint á Auði í markinu.
16. mín
Alvöru byrjun í þessum leik.

Þóra Björg með skot rétt framhjá eftir skyndisókn ÍBV.
15. mín
Stjarnan fær horn.
13. mín
Hvernig kom ekki mark þarna!?

Hornspyrnan endar með skalla að marki sem Auður ver en nær ekki að halda boltanum, Heiða Ragney sparkar boltanum í hausinn á liðsfélaga sínum og Auður rétt nær að bjarga.
12. mín
Þvílík björgun!

Helena Jónsdóttir nær að elta Heiðu Ragney uppi, það leit út eins og Heiða væri sloppin í gegn en Helena kemur boltanum útaf. Stjarnan fær horn.
7. mín
ÍBV fær annað horn.

Boltinn flýgur í gegnum allan pakkan og endar í markspyrnu.
6. mín
ÍBV fær horn.

Clara tekur það og boltinn endar í nærstönginni og hrekkur fyrir Þóru Björg sem nær ekki að taka skot. Gestirnir ná að hreinsa.
4. mín
Bæði lið stilla upp í eitthvers konar 3-5-2.

ÍBV hefur verið að spila 4-3-3 í allt sumar en ákveða að breyta því í dag.
1. mín
Stjarnan fær horn.

Það er hreinsað í burtu af eyjakonum.
1. mín
Leikur hafinn
Það er ÍBV sem byrja leikinn.
Fyrir leik
Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar heimsækir sinn gamla heimavöll en hann þjálfaði karlalið ÍBV 2017-2018 og varð meðal annars bikarmeistari með liðið.


Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna endaði með 3-0 sigri Stjörnunnar. Þar skoraði Hildigunnur Ýr 2 mörk og Betsy Hassett 1.

ÍBV hafa tapað síðustu 3 leikjum og verða þær að fara að sækja stig ef þær ætla sér að spila í Pepsí Max deildinni á næsta ári.
Fyrir leik
Góðan dag og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik ÍBV og Stjörnunnar á Hásteinsvelli í dag.

Leikurinn er gríðrlega mikilvægur fyrir bæði lið.
ÍBV getur með sigri nánast tryggt sæti sitt í efstu deild fyrir næsta tímabil. ÍBV eru í 7. sæti eins og er 4 stigum frá fallsæti. Með sigri fer Stjarnan tímabundið upp í 3. sæti deildarinnar, þær sitja í 5. sætinu eins og er.
Byrjunarlið:
1. Halla Margrét Hinriksdóttir (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
4. Eyrún Embla Hjartardóttir ('87)
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('82)
10. Anna María Baldursdóttir (f) ('76)
11. Betsy Doon Hassett ('87)
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('82)
24. Málfríður Erna Sigurðardóttir
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir

Varamenn:
2. Sóley Guðmundsdóttir
4. Katrín Ósk Sveinbjörnsdóttir
14. Snædís María Jörundsdóttir ('87)
15. Alma Mathiesen ('82)
19. Elín Helga Ingadóttir ('76)
19. Mist Smáradóttir ('82)
33. Klara Mist Karlsdóttir ('87)

Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Þórdís Ólafsdóttir
Andri Freyr Hafsteinsson
Gunnar Guðni Leifsson

Gul spjöld:
Anna María Baldursdóttir ('52)
Heiða Ragney Viðarsdóttir ('66)

Rauð spjöld: