Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
35' 0
0
Valur
Stjarnan
2
2
ÍA
0-1 Gísli Laxdal Unnarsson '18
Jóhann Árni Gunnarsson '47 1-1
Óskar Örn Hauksson '67 2-1
2-2 Kaj Leo Í Bartalstovu '88
19.04.2022  -  19:15
Samsungvöllurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: Eins og þær gerast bestar!
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: Allt stappaað!
Maður leiksins: Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
Byrjunarlið:
Haraldur Björnsson
Björn Berg Bryde
4. Óli Valur Ómarsson
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Ísak Andri Sigurgeirsson
7. Eggert Aron Guðmundsson ('65)
7. Einar Karl Ingvarsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson ('92)
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
22. Emil Atlason
23. Óskar Örn Hauksson ('80)

Varamenn:
33. Viktor Reynir Oddgeirsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
9. Daníel Laxdal
11. Þorsteinn Már Ragnarsson ('92)
11. Adolf Daði Birgisson ('65)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason ('80)
21. Elís Rafn Björnsson

Liðsstjórn:
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Davíð Sævarsson
Friðrik Ellert Jónsson
Rajko Stanisic
Pétur Már Bernhöft
Þór Sigurðsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Helgi Mikael flautar til leiksloka. Stórskemmtilegum leik lokið sem endar með 2-2 jafntefli.

Viðtöl og skýrsla síðar í kvöld.
95. mín
Steinar Þorsteinsson kemur boltanum á Köhler fyrir utan teig og Köhler nær skoti en boltinn beint á Harald.
94. mín
Inn:Guðmundur Tyrfingsson (ÍA) Út:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
93. mín
Benedikt Warén fær boltann út til vinstri og keyrir í átt að marki Stjörnunnar og nær skoti en skotið laust beint á Halla.
92. mín
Inn:Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjarnan) Út:Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
90. mín
Uppbótartíminn er að lágmarki fimm mínútur.

Fáum við dramatík?
88. mín MARK!
Kaj Leo Í Bartalstovu (ÍA)
KAJ LEO AÐ JAFNA LEIKINN!!

Fær boltann frá vinstri á fjær og klárar framhjá Haraldi Björnssyni.
85. mín
Aron Bjarki farinn að taka þátt í sóknarleik Skagamanna. Fær boltann við endarmörk hægramegin og lyftir boltanum fyrir á Benedikt sem nær skalla en boltinn yfir.
82. mín
Jóhann Árni fær boltann og keyrir inn á teig Skagamanna og fer niður í teignum eftir baráttu við Vall en ekkert dæmt.
80. mín
Inn:Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan) Út:Óskar Örn Hauksson (Stjarnan)
77. mín
GÍSLI LAXDAL!!

Johannes Vall fær boltann út til vinstri og lyftir boltanum fyrir á Gísla sem nær skallanum en Haraldur nær til boltans.
67. mín MARK!
Óskar Örn Hauksson (Stjarnan)
ÓSKAR ÖRN HEFUR GERT ÞETTA ÁÐUR!!!

Langur bolti út til hægri á Ísak sem finnur Óskar Örn fyrir utan teig. Óskar tekur við honum og hamrar boltanum í netið. Óverjandi fyrir Árna Snæ!

Comeback hjá Star!
66. mín
Inn:Benedikt V. Warén (ÍA) Út:Eyþór Aron Wöhler (ÍA)
65. mín
Inn:Adolf Daði Birgisson (Stjarnan) Út:Eggert Aron Guðmundsson (Stjarnan)
61. mín
Jón Gísli með hættulegan bolta inn á teiginn sem Stjörnumenn setja í hornspyrnu.
59. mín
Ísak Andri fær langan bolta til vinstri og tekur hann með sér inn á völlinn og lætur vaða en boltinn langt framhjá.

Stjörnumenn verið miklu betri aðilinn fyrstu fimmtán í síðari hálfleik.
56. mín
ÓLI VALUR!!!

Jóhann Árni tekur boltann vel niður eftir darraðadans við teig Skagamanna og finnur Óla í hlaup til hægri og Óli tekur viðstöðulaust skot en boltinn rééétt framhjá.
53. mín
Inn:Hlynur Sævar Jónsson (ÍA) Út:Alex Davey (ÍA)
52. mín
Alex Devey er borinn af velli og leikurinn er farin af stað aftur.

Jón Þór undirbýr skiptingu og er því Alex Davey ekki að fara klára leikinn hér í kvöld.
49. mín
ÚFFF!!

Alex Davey skellur saman við Stjörnumann sem ég sá ekki hvern og Davey liggur sárþjáður eftir á vellinum. Vonum að það sé í lagi merð Alex.
47. mín MARK!
Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
Stoðsending: Óli Valur Ómarsson
JÓHANN ÁRNI AÐ STIMPLA SIG INN Í GARÐABÆINN!!!

Frábært samspil milli Eggerts Arons og Óla hægra megin sem endar með því að Óli Valur fær hann upp við endarmörk og leggur boltann út í teiginn á Jóhann Árna sem klárar frábærlega.

ALLT JAFNT Í GARÐABÆ!
46. mín
Stjörnumenn eiga upphafsspyrnu síðari hálfleiks.
45. mín
Inn:Hallur Flosason (ÍA) Út:Oliver Stefánsson (ÍA)
45. mín
Hallur Flosason er mættur í treyju út á völl á undan öllum og er að koma hér inn á.
45. mín
Hálfleikur
Helgi Mikael flautar til hálfleiks. Skagamenn fara með eins marks forskot inn í hálfleik.


42. mín
Lítið að gerast inn á vellinum síðustu fimm mínúturnar. Stjörnumenn reyna að opna vörn Skagamanna sem er mjög þétt og vel skipulögð.
38. mín
Eggert Aron fær boltann inn í vítateig Skagamanna og nær skoti en boltinn í hliðarnetið.
33. mín

30. mín
ÓSKAR ÖÖRN!!

Fær boltann við vítateig Skagamanna og fíflar hvern og fætur öðrum áður en hann reynir að setja boltann í fjær en boltinn framhjá.

Hef séð Óskar Örn nýta svona færi betur.
27. mín
Óli Valur fær boltann eftir hornspyrnu og lyftir boltanum fyrir á hausinn á Birni Bryde sem nær skalla en boltinn yfir markið.
25. mín Gult spjald: Alex Davey (ÍA)
Hárréttur dómur
24. mín
Alex Devey gefur Emil Atlason olnbogaskot hér hægra megin á vellinum og Emil liggur eftir á vellinum.
21. mín
Gísli Laxdal skorar fyrsta mark Skagamanna í Bestu deildinni árið 2022!


18. mín MARK!
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Stoðsending: Alex Davey
SKAGAMENN ERU KOMNIR YFIR!!

Alex Davey vinnur boltann við miðjuhringinn og keyrir af stað og rennir boltanum inn á Gísla Laxdal sem gerir allt rétt og klárar framhjá Haraldi!

0-1 !
15. mín Gult spjald: Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA)
Stoppar hraða skyndisókn Stjörnunnar.
14. mín
Steinar Þorsteinsson fær boltann við miðjuna og færir hann yfir á Kaj Leo sem tekur á móti boltanum og á skot á markið en boltinn af varnarmanni og í hornspyrnu sem ekkert varð úr.
9. mín
Skagamenn að komast inn í leikinn.

Köhler fær boltann við vítateig Stjörnunnar og reynir að skrúfa boltann í fjær en þægilegur bolti fyrir Halla.
6. mín
Það er aðeins eitt lið á vellinum þessar fyrstu mínútur.

Ísak Andri fær boltann út til vinstri og keyrir inn á völlinn en skot hans ratar ekki á markið.
4. mín
STJÖRNUMENN AFTUR!!

Jóhann Árni fær boltann og á skot sem endar í hornsprynu sem Skagamenn koma í burtu.
3. mín
EMIL ATLASON!!

Fær sendingu frá Bryde inn fyrir vörn Skagamanna en setur boltann framhjá.

Þetta var dauðafæriii!
1. mín
Leikur hafinn
Helgi Mikael flautar til leiks hér í Garðabænum. Það eru gestirnir sem hefja leik.

Góða skemmtun!
Fyrir leik
Besta stefið er komið í gang og liðin ganga á eftir Helga Mikael til leiks. Þetta er að fara af stað!
Fyrir leik
Stemmingin er að magnast hérna á Samsungvellinum en hálft bæjarfélag Akranesar er mætt hingað í Garðabæinn, allir gulir og glaðir!

Silfurskeiðin er sögð vera niðri á Dúllubar og er væntanleg upp í stúku.

Það verður ekki bara barist inn á vellinum hér í kvöld og því fagna ég - Svona á þetta að vera!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau hér til hliðana.

Þjálfarar beggja liða geta stillt upp sínum bestu liðum hér í kvöld.
Fyrir leik
Hilmar ekkert með í sumar!

Hilmar Árni Halldórsson leikmaður Stjörnunnar meiddist alvarlega á hné í Lengjubikarnum í leik sem fór fram í Boganum á Akureyri í vetur og leikur hann ekkert með liðinu í sumar og verður fróðlegt að sjá hvað ungu strákarnir í leikmannahópi Stjörnunnar gera í hans fjarveru.



Hilmar Árna þarf ekki að kynna fyrir neinum.
Fyrir leik
Dómaratríóið

Helgi Mikael Jónasson sér til þess að allt fari vel fram á vellinum í kvöld og verður hann með þá Bryngeir Valdimarsson og Ragnar Þór Bender á línunum. Jón Sigurjónsson verður eftirlitsmaður KSÍ í kvöld og varadómari í kvöld verður Gunnar Oddur Hafliðason.


Fyrir leik
Pape spáir heimasigri!

Við fengum sóknarmanninn og skemmtikraftinn Pape Mamadou Faye til að spá í leiki fyrstu umferðar. Hann spáir Stjörnunni 2 - 1 sigri.

Ég býst við að þetta verði erfið ferð fyrir Skagamenn. Ég sé fyrir mér að Stjarnan verði betri en þeir voru í fyrra. Ég sá þessi lið spila í vetur og þar fannst mér Stjarnan vera sterkari frá A til Ö. Stjarnan vinnur aftur en minn maður Viktor Jóns skorar fyrir Skagamenn - sorry Viktor.


Fyrir leik
Breytingar á leikmannahópi ÍA

Komnir
Aron Bjarki Jósepsson frá KR
Benedikt Warén frá Breiðabliki (á láni)
Christian Köhler frá Val
Johannes Vall frá Val
Kaj Leo í Bartalsstovu frá Val
Oliver Stefánsson frá Svíþjóð (á láni)

Farnir
Aron Kristófer Lárusson til KR
Dino Hodzic í Kára
Elias Tamburini til Þýskalands
Hákon Ingi Jónsson í Fjölni
Ísak Snær Þorvaldsson í Breiðablik (var á láni frá Norwich)
Óttar Bjarni Guðmundsson í Leikni
Sindri Snær Magnússon til Keflavíkur



Kaj Leo í Bartalsstovu er einn þeirra sem Skagamenn sóttu í vetur.
Fyrir leik
Breytingar á leikmannahópi Stjörnunnar

Komnir
Jóhann Árni Gunnarsson frá Fjölni
Óskar Örn Hauksson frá KR
Sindri Þór Ingimarsson frá Augnabliki
Þorsteinn Aron Antonsson frá Englandi (á láni)
Ísak Andri Sigurgeirsson frá ÍBV (var á láni)

Farnir
Arnar Darri Pétursson
Casper Sloth
Eyjólfur Héðinsson í ÍR
Halldór Orri Björnsson hættur
Heiðar Ægisson í Val
Kári Pétursson í KFG
Magnus Anbo hættur
Oscar Borg í Hauka



Óskar Örn Hauksson er einn þeirra sem Stjörnumenn sóttu í vetur.
Fyrir leik
Þessi lið mættust í Lengjubikarnum í Miðgarði í vetur og höfðu Stjörnumenn betur 3-0 þar sem Emil Atlason skoraði í tvígang en sóknarleikur Stjörnunnar er mikið spurningarmerki fyrir þetta tímabil og binda Garðbæingar miklar vonir á að Emil skili nokkrum mörkum í sumar.


Fyrir leik
Spámenn Fótbolta.net spá Stjörnunni í sjötta sæti deildarinnar en Skagamönnum er spáð því tíunda.
Fyrir leik
BESTA DEILD KARLA ÁRIÐ 2022 ER FARIN AF STAÐ!

Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Samsungvellinum í Garðabæ. Hér í kvöld fá Stjörnumenn Skagamenn í heimsókn í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.


Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Gísli Laxdal Unnarsson ('94)
3. Johannes Vall
6. Oliver Stefánsson ('45)
7. Christian Köhler
10. Steinar Þorsteinsson
11. Kaj Leo Í Bartalstovu
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Eyþór Aron Wöhler ('66)
44. Alex Davey ('53)
66. Jón Gísli Eyland Gíslason

Varamenn:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
4. Hlynur Sævar Jónsson ('53)
8. Hallur Flosason ('45)
16. Brynjar Snær Pálsson
18. Haukur Andri Haraldsson
20. Guðmundur Tyrfingsson ('94)
22. Benedikt V. Warén ('66)

Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Daníel Þór Heimisson
Skarphéðinn Magnússon
Bjarki Sigmundsson
Hallur Freyr Sigurbjörnsson
Guðlaugur Baldursson

Gul spjöld:
Jón Gísli Eyland Gíslason ('15)
Alex Davey ('25)

Rauð spjöld: