Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
ÍBV
1
2
KR
0-1 Ægir Jarl Jónasson '3
1-1 Kristinn Jónsson '29 , sjálfsmark
1-2 Kennie Chopart '42
Atli Hrafn Andrason '94
11.05.2022  -  18:00
Hásteinsvöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Skýjað, 6 stiga hiti og köld gola.
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 511
Maður leiksins: Kennie Chopart
Byrjunarlið:
21. Halldór Páll Geirsson (m)
Andri Rúnar Bjarnason
2. Sigurður Arnar Magnússon
3. Felix Örn Friðriksson ('75)
5. Jón Ingason (f)
7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
8. Telmo Castanheira ('86)
9. Sito ('66)
16. Tómas Bent Magnússon ('75)
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
25. Alex Freyr Hilmarsson

Varamenn:
4. Nökkvi Már Nökkvason
10. Guðjón Pétur Lýðsson ('75)
11. Sigurður Grétar Benónýsson
14. Arnar Breki Gunnarsson ('75)
22. Atli Hrafn Andrason ('86)
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Guðjón Orri Sigurjónsson
Björgvin Eyjólfsson
David George Bell
Mikkel Vandal Hasling
Marc David Wilson
Halldór Jón Sigurður Þórðarson
Elías Árni Jónsson

Gul spjöld:
Alex Freyr Hilmarsson ('40)

Rauð spjöld:
Atli Hrafn Andrason ('94)
Leik lokið!
KR-ingar sækja þrjú stig til Eyja. Viðtöl og skýrsla koma á eftir. Þakka samfylgdina.
94. mín Rautt spjald: Atli Hrafn Andrason (ÍBV)
Atli Hrafn fer í glæfralega tæklingu og tekur Kristinn Jónsson niður.
93. mín
Þarna var tækifæri! Guðjón Pétur með frábæran bolta inn fyrir á Andra Rúnar sem nær ekki að setja boltann á markið.
92. mín Gult spjald: Kennie Chopart (KR)
90. mín
Fjórum mínútum bætt við!
88. mín
Eyjamenn komast í álitlega stöðu en eru of lengi að athafna sig í teignum. Ná ekki skoti að marki en þarna var svo sannarlega tækifæri.
87. mín
Inn:Aron Þórður Albertsson (KR) Út:Atli Sigurjónsson (KR)
Fimmta skipting KR-inga.
86. mín
Inn:Atli Hrafn Andrason (ÍBV) Út:Telmo Castanheira (ÍBV)
85. mín
Alex Freyr með skot fyrir utan teig en boltinn vel framhjá. Fimm mínútur eftir plús viðbótartími.
80. mín
Inn:Theodór Elmar Bjarnason (KR) Út:Ægir Jarl Jónasson (KR)
79. mín Gult spjald: Ægir Jarl Jónasson (KR)
Stöðvar skyndisókn Eyjamanna.
75. mín
Inn:Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV) Út:Felix Örn Friðriksson (ÍBV)
75. mín
Inn:Guðjón Pétur Lýðsson (ÍBV) Út:Tómas Bent Magnússon (ÍBV)
74. mín
Felix Örn er hér sestur á grasið, skipting í vændum hjá Eyjamönnum.
70. mín
Atli Sigurjónsson leikur með boltann inná teignum, skot hans beint á markið og Halldór Páll í engum vandræðum.
68. mín Gult spjald: Stefán Árni Geirsson (KR)
Brýtur á Halldóri.
66. mín
Inn:Halldór Jón Sigurður Þórðarson (ÍBV) Út:Sito (ÍBV)
Fyrsta breyting Eyjamanna.
57. mín
KR-ingar að ógna. Kristinn Jónsson sendir boltann fyrir markið og þar er Kjartan Henry mættur. Skallinn fer hins vegar framhjá markinu. Gestirnir sterkari hér í upphafi seinni hálfleiks.
50. mín Gult spjald: Finnur Tómas Pálmason (KR)
Sýndist að dómarinn hafi ekki ætlað að spjalda hann fyrir brotið en gula spjaldið fær hann fyrir það hvernig hann bregst við eftir að hafa heyrt í flautunni hjá dómaranum.
48. mín Gult spjald: Grétar Snær Gunnarsson (KR)
Eyjamenn fá aukaspyrnu eftir brot Grétars Snæs. En ekkert kemur úr spyrnunni.
46. mín
Inn:Stefán Árni Geirsson (KR) Út:Aron Kristófer Lárusson (KR)
46. mín
Inn:Pálmi Rafn Pálmason (KR) Út:Þorsteinn Már Ragnarsson (KR)
46. mín
Inn:Kjartan Henry Finnbogason (KR) Út:Stefan Ljubicic (KR)
45. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Sigurður Hjörtur flautar hér til loka fyrri hálfleiks. Öflug byrjun KR-inga skilaði marki strax á þriðju mínútu. Eyjamenn unnu sig jafn óðum inni í leikinn og jöfnunarmarkið var sjálfsmark Kristins Jónssonar. KR-ingar náðu svo fínum kafla rétt fyrir hálfleik sem skilaði marki Kennie Chopart. Þrátt fyrir að að þrjú mörk hafi verið skoruð í þessum fyrri hálfleik verður ekki sagt að leikurinn hafi verið hörku skemmtun.
42. mín MARK!
Kennie Chopart (KR)
KR-ingar er komnir aftur yfir! Eiður Aron skallar fyrirgjöf Atla Sigurjónssonar beint fyrir fætur Kennie Chopart sem afgreiðir boltann snyrtilega í netið.
40. mín Gult spjald: Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
Of ágengur í pressunni og brýtur af sér.
29. mín SJÁLFSMARK!
Kristinn Jónsson (KR)
Tómas Bent með flottan bolta inni í teiginn sem endar með því að Kristinn Jónsson skallar boltann í eigið net.
28. mín Gult spjald: Stefan Ljubicic (KR)
Brýtur af sér í vítateig Eyjamanna.
19. mín
Eyjamenn hafa náð betri tökum á leiknum eftir því sem liðið hefur á. Þeir hafa þó ekki skapað sér nein alvöru færi að frátöldu færinu sem Andri Rúnar fékk í byrjun leiks.
14. mín
Leikurinn hefur heldur róast eftir nokkuð fjöruga byrjun. Liðin skiptast á að vera með boltann þessa stundina.
5. mín
Andri Rúnar kemst hér í fína stöðu en nær ekki að koma boltanum í netið. Laust skot fer rétt framhjá markinu.
3. mín MARK!
Ægir Jarl Jónasson (KR)
Þetta var ekki lengi gert, ég ætlaði að fara rita að KR-ingar litu betur út hér í byrjun leiks og þá kemur fyrsta markið. Ægir Jarl afgreiðir þennan með snyrtilegu skoti í fjærhornið.
1. mín
Leikurinn er hafinn!
Fyrir leik
Þetta er allt saman að fara af stað hér í Eyjum. Leikmenn ganga hér inná völlinn í þessum skrifuðu orðum.
Fyrir leik
Rúnar Kristinsson gerir fjórar breytingar á liði KR frá markalausa jafnteflinu við KA. Út úr liðinu fara þeir Stefán Árni, Kjartan Henry, Pálmi Rafn og Theodór Elmar. Í þeirra stað koma þeir Grétar Snær, Ægir Jarl, Stefan Alexander og Þorsteinn Már sem fer beint inni í byrjunarliðið eftir komuna frá Stjörnunni.
Fyrir leik
Hermann Hreiðarsson gerir þrjár breytingar á liði Eyjamanna frá 3-3 jafnteflinu ævintýrlega í Keflavík. Stærstu tíðindin eru líklega þau að Guðjón Pétur Lýðsson fær sér sæti á varamannabekknum. Þá fer Halldór Jón Sigurðar einnig út úr liðinu og Breki Ómarsson er ekki í hóp í dag. Inn í lið Eyjamanna koma Jón Ingason, Sito og Tómas Bent.
Fyrir leik
Félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti!
Bæði lið hafa styrkt leikamannahópa sína síðasta sólarhringinn. Það var tilkynnt í gærkvöldi að Þorsteinn Már Ragnarsson væri genginn til liðs við KR frá Stjörnunni. ÍBV staðfesti svo nú eftir hádegið komu Elvis Bwomono. Elvis spilaði með Southend United á Englandi og þekkir Hermann Hreiðarsson vel til kappans enda var hann aðstoðarþjálfari liðsins um tíma.
Fyrir leik
Dómgæslan
Dómari leiksins er Sigurður Hjörtur Þrastarson, honum til aðstoðar eru þeir Bryngeir Valdimarsson og Sveinn Þórður Þórðarson. Varadómari er Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson og eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Georg Lárusson.


Fyrir leik
Eftir að hafa ekki komist á blað í fyrstu tveimur umferðunum skoraði Andri Rúnar Bjarnason sitt fyrsta mark á tímabilinu gegn Leikni í 3. umferð. Hann var svo aftur á skotskónum í jafnteflinu við Keflavík. Mikilvægt fyrir Eyjamenn að fá Andra í gang!


Fyrir leik
Staða liðanna
Tveimur sætum munar á liðunum og tveimur stigum, liðin hafa skorað jafn mörg mörk það sem af er tímabili en vörn KR-inga hefur staðið vaktina betur.

Eyjamenn sitja í 9. sæti með tvö stig, fimm mörk skoruð og níu fengin á sig.

KR er í 7. sæti með fjögur stig, fimm mörk skoruð og fjögur fengin á sig.
Fyrir leik
Talandi um enga draumabyrjun, það á einnig við um byrjun KR-inga á tímabilinu. Eftir öflugan 1-4 sigur á Fram í fyrstu umferð hafa fylgt tveir tapleikir og eitt jafntefli. KR fékk KA í heimsókn síðastliðinn sunnudag, þar var niðurstaðan markalaust jafntefli. KR-ingar náðu ekki að nýta sér það að vera manni fleiri stóran hluta leiksins. Stigin sem komin eru í hús í Vesturbænum eftir fjórar umferðir eru fjögur talsins og sætta KR-ingar sig því ekki við neitt annað en sigur hér í dag.


Fyrir leik
Eyjamenn eru með 2 stig að loknum fjórum umferðum. Engin draumabyrjun en lærisveinar Hermanns Hreiðarssonar hafa verið að spila sig betur saman með hverjum leiknum sem þeir hafa spilað á þessu tímabili. Fyrra stigið fengu þeir eftir 1-1 jafntefli við Leikni hér á Hásteinsvelli í 3. umferð. Annað stigið kom svo í ævintýralegum leik í Keflavík síðastliðinn laugardag þar sem lokatölur urðu 3-3. Eyjamenn fengu þar á sig jöfnunarmark í uppbótartíma.


Fyrir leik
Heil og sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Flautað verður til leiks hér í viðureign ÍBV og KR í 5. umferð Bestu deildar karla kl. 18:00.

Byrjunarlið:
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Hallur Hansson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Finnur Tómas Pálmason
8. Þorsteinn Már Ragnarsson ('46)
11. Kennie Chopart (f)
14. Ægir Jarl Jónasson (f) ('80)
17. Stefan Ljubicic ('46)
18. Aron Kristófer Lárusson ('46)
19. Kristinn Jónsson
23. Atli Sigurjónsson ('87)

Varamenn:
13. Aron Snær Friðriksson (m)
9. Kjartan Henry Finnbogason ('46)
9. Stefán Árni Geirsson ('46)
15. Pontus Lindgren
16. Theodór Elmar Bjarnason ('80)
29. Aron Þórður Albertsson ('87)

Liðsstjórn:
Viktor Bjarki Arnarsson (Þ)
Rúnar Kristinsson (Þ)
Pálmi Rafn Pálmason
Valgeir Viðarsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Friðgeir Bergsteinsson
Sigurður Jón Ásbergsson
Sigurvin Ólafsson

Gul spjöld:
Stefan Ljubicic ('28)
Grétar Snær Gunnarsson ('48)
Finnur Tómas Pálmason ('50)
Stefán Árni Geirsson ('68)
Ægir Jarl Jónasson ('79)
Kennie Chopart ('92)

Rauð spjöld: