17.09.26 - 15:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guðjón Pétur: Vonandi klárum við þessa heilögu þrennu
Auglýsing

Óli Stefán og Guðjón Pétur, þjálfarar liðanna, með Fótbolta.net bikarinn.

Mynd: KSÍ - Óskar Örn Guðbrandsson

Haukar unnu 2. deild í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Og Lengjubikarinn í vor.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

„Við komum inn í leikinn í góðum gír, langt og strangt tímabil að baki og geðveikt að fá svona lokaleik. Við ætlum okkur að vinna," segir Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka, í viðtali fyrir úrslitaleik Gatorade bikars Fótbolta.net.
Haukar mæta Selfyssingum á Laugardalsvelli á morgun, leikurinn hefst 19:00 og er uppgjör efstu tveggja liðanna í 2. deild.

TENGT EFNI
Óli Stefán: Ég fór bara að hlæja
Guðjón Pétur segir að níu leikmenn verði frá á morgun. „Það hefur ekki háð okkur í sumar, við erum með stóran og góðan hóp og mikla breidd."
Með sigri á morgun geta Haukar unnið hina heilögu þrennu eins og þjálfarinn kallar titlana þrjá. „Við erum búnir að vinna Lengjubikarinn, svo deildina og vonandi klárum við þessa heilögu þrennu."
Eigið þið von á mörgum Haukamönnum annað kvöld?
„Ég ætla vona það. Mér skilst að þetta sé fyrsti úrslitaleikur í bikar í sögu félagsins þannig það er tilefni til þess að fagna með okkur og gera þetta að alvöru viðburði. Mér finnst strákarnir eiga það skilið, eru búnir að standa sig ótrúlega vel. Þetta væri kremið á kökuna," segir þjálfarinn.