Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Valur
9
1
KR
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir '14 1-0
1-1 Guðmunda Brynja Óladóttir '21
Elín Metta Jensen '30 2-1
Ída Marín Hermannsdóttir '32 3-1
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir '34 4-1
Ásdís Karen Halldórsdóttir '46 5-1
Elísa Viðarsdóttir '75 6-1
Bryndís Arna Níelsdóttir '86 7-1
Bryndís Arna Níelsdóttir '88 8-1
Cyera Hintzen '90 9-1
19.05.2022  -  17:15
Origo völlurinn
Besta-deild kvenna
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Maður leiksins: Ásdís Karen Halldórsdóttir
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
6. Mist Edvardsdóttir ('72)
6. Lára Kristín Pedersen ('79)
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
9. Ída Marín Hermannsdóttir
10. Elín Metta Jensen ('72)
11. Anna Rakel Pétursdóttir
16. Þórdís Elva Ágústsdóttir ('61)
17. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('61)

Varamenn:
12. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
13. Cyera Hintzen ('61)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir
19. Bryndís Arna Níelsdóttir ('72)
24. Mikaela Nótt Pétursdóttir ('72)
26. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir ('61)

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Þ)
Ásta Árnadóttir
María Hjaltalín
Matthías Guðmundsson
Gísli Þór Einarsson
Mark Wesley Johnson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!

Stórsigur Vals staðreynd.

Minni á viðtöl og skýrslu á eftir.

90. mín MARK!
Cyera Hintzen (Valur)
NÍU - EITT!!


Cyera skorar eftir að Björk í markinu missir af boltanum.

Þetta er sannkallað rúst.
88. mín MARK!
Bryndís Arna Níelsdóttir (Valur)
Bryndís Arna með tvö!

Leggur boltann í hægra hornið eftir að fá boltann á silfurfati úr teignum.
87. mín
Cyera skorar eftir að Bryndís Arna sendir boltann fyrir markið en rangstaða dæmd.
86. mín MARK!
Bryndís Arna Níelsdóttir (Valur)
Stoðsending: Ásdís Karen Halldórsdóttir
Valur að ganga frá KR...

Ásdís laumar boltanum inn á Bryndísi sem klárar framhjá Björk í markinu.

Erfiður dagur fyrir KR-inga.
84. mín
Sandra kýlir hornspyrnu KR burt.
82. mín
Inn:Laufey Björnsdóttir (KR) Út:Hildur Björg Kristjánsdóttir (KR)
82. mín
Inn:Brynja Sævarsdóttir (KR) Út:Margaux Marianne Chauvet (KR)
79. mín
Inn:Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Valur) Út:Lára Kristín Pedersen (Valur)
79. mín
Ásdís Karen sendir út á Elísu sem sendir hann inn í á Önnu Rakel sem skallar yfir.
76. mín
Inn:Ásta Kristinsdóttir (KR) Út:Bergdís Fanney Einarsdóttir (KR)
75. mín MARK!
Elísa Viðarsdóttir (Valur)
Rúst...

Anna Rakel með fyrirgjöf sem fer í gegnum allan teiginn, Ída fær boltann hinum megin á kantinum og sendir aftur fyrir. Bryndís Arna nær skalla á markið sem Björk ver út í teig og þar er Elísa mætt!
74. mín
Mikaela með sendingu á Ásdísi Karen sem fær aukaspyrnu við miðju.
72. mín
Inn:Mikaela Nótt Pétursdóttir (Valur) Út:Mist Edvardsdóttir (Valur)
72. mín
Inn:Bryndís Arna Níelsdóttir (Valur) Út:Elín Metta Jensen (Valur)
71. mín
Arna Sif brýtur á Marcellu við miðju.
70. mín
Leikurinn hefur aðeins róast.
69. mín
Elísa Viðars með vippu inn í teig sem Björk grípur.
66. mín
Rasamee með sendingu á Marcellu sem fær hornspyrnu.
64. mín
Bergdís Fanney dæmd rangstæð eftir sendingu frá Hildi Björg.
63. mín
KR kemst í teig Vals í fyrsta sinn í langan tíma en ekkert verður úr því.
61. mín
Inn:Sigríður Theód. Guðmundsdóttir (Valur) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
61. mín
Inn:Cyera Hintzen (Valur) Út:Þórdís Elva Ágústsdóttir (Valur)
60. mín
AFTUR?!

Munaði engu að Ída Marín hafi skorað annað mark sláinn inn!

Átti sendingu inn í sem endaði ofan á slánni.
59. mín
Laus bolti sem kemur framhjá teignum og Anna Rakel tekur skot í fyrsta sem fer rétt yfir.
58. mín
Hildur Björg reynir sendingu inn í teig en Sandra fljót út og fangar boltann.
56. mín
Inn:Ólína Ágústa Valdimarsdóttir (KR) Út:Róberta Lilja Ísólfsdóttir (KR)
56. mín
Inn:Tijana Krstic (KR) Út:Guðmunda Brynja Óladóttir (KR)
53. mín
KR nær ekkert að halda boltanum.
51. mín
Þórdís Hrönn með skot fyrir utan sem lekur framhjá.

Valskonur eru ekki hættar.
50. mín
Elín Metta með gæðasendingu inn á Ídu sem á skot rétt framhjá!
49. mín
Guðmunda dæmd rangstæð.
48. mín
KR fær aukaspyrnu hægra megin og Rasamee tekur skot framhjá.
46. mín MARK!
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
Stoðsending: Elín Metta Jensen

VALUR EKKI LENGI AÐ ÞESSU!!

Elín sendir í gegn á Ásdísi, Björk er komin úr markinu og Ásdísi fer framhjá henni og klárar í autt markið.
46. mín
Leikur hafinn
KR sparka þessu aftur í gang.
45. mín
Hálfleikur
Valskonur að stinga af eftir að hafa skorað þrjú mörk á fjórum mínútum!
45. mín
Elín Metta skorar eftir fyrirgjöf en rangstaða dæmd!
43. mín
Bergdís Fanney með skot á nærstöng en Sandra sá alltaf við þessum.
42. mín
Lára Kristín sparkar boltanum í hendina á Ídu og hendi dæmt.
40. mín
Ída Marín með sendingu fram á Elín Mettu sem á skot yfir.
39. mín
Elísa Viðars með góða sendingu á Þórdísi Hrönn sem á skot framhjá.
38. mín
Marcella keyrir hratt upp, sendir á Bergdísi Fanney sem fær horn.
34. mín MARK!
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
Stoðsending: Elísa Viðarsdóttir
Valskonur eru að ganga frá KR!

Elísa Viðars með háa fyrirgjöf á Þórdísi Hrönn sem tekur hann niður og klárar.

Slappur varnarleikur þarna.
32. mín MARK!
Ída Marín Hermannsdóttir (Valur)
JÁ SÆLL!!!

Ída Marín með skot langt fyrir utan, boltinn fer í slá - yfir línuna og skopar aftur út.

Aðstoðardómari dæmir mark sem kemur Ídu á óvart!
30. mín MARK!
Elín Metta Jensen (Valur)
Stoðsending: Ásdís Karen Halldórsdóttir
Valur komnar yfir aftur!!!

Ásdís Karen sendir á Elínu, sem hótar skotinu oft og velur sér síðan stund til að lauma honum á nær.
28. mín
Róberta Lilja potar boltanum í horn.
27. mín
Rasamee liggur eftir og fær aðhlynningu.
26. mín
Rasamee vinnur boltann á miðjunni, sendir út á Hildi Björg sem á fyrirgjöf yfir markið.
21. mín MARK!
Guðmunda Brynja Óladóttir (KR)
KR JAFNAR!!!

Marcella galopnar vörn Vals með gegnum sendingu á Guðmundu sem klárar færið listavel framhjá Söndru.
20. mín
Elín Metta með skot rétt framhjá eftir sendingu frá Ásdísi Karen.

Valskonur að nýta sér plássið sem myndast fyrir aftan bakverði KR.
18. mín
Elín Metta sendir út á kant á Ásdísi Karen sem sendir síðan aftur á Elínu sem á laust skot á markið.
17. mín
Elín Metta sendir á Ídu Marín sem á fyrirgjöf en Björk blakar boltanum burt.
16. mín
Guðmunda með góða sendingu út á Rasamee sem á fyrirgjöf en Valur koma hættunni frá.
14. mín MARK!
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
Hún skorar síðan bara eftir frákast úr horninu!!

Boltinn í gegnum alla hrúguna og Björk sá hann aldrei koma.
13. mín
Þórdís Hrönn!!

Hún keyrir með miklum hraða að teignum, klippir inn og á fínt skot sem er varið í horn.
12. mín
Auka bolti inná og leikurinn stöðvaður.
11. mín
Ásdís Karen sendir upp kantinn á Ídu Marín sem sendir fyrir en KR sparkar frá.
10. mín
Bergdís Fanney með fyrirgjöf en Sandra ein í teignum og grípur boltann.
8. mín
Hildur Björg reynir sendingu á Guðmundu en Arna Sif tekur boltann.
6. mín
Rasamee vinnur boltann af Þórdísi Elvu og á skot fyrir utan en það var ekki upp á marga fiska.
4. mín
Þórdís Elva með skot framhjá fyrir utan teig.
3. mín
Elín Metta reynir að vippa boltanum á Ásdísi Karen sem var í teignum en án árangurs.
1. mín
Leikur hafinn
Valur byrja leikinn!
Fyrir leik
Breytingar á liðum

Hildur Lilja Ágústsdóttir kemur inn í byrjunarliðið fyrir Ástu Kristinsdóttir hjá KR.


Brookelynn Paige Entz kemur úr Valsliðinu og inn fyrir hana kemur Þórdís Elva Ágústsdóttir.
Fyrir leik
Staðan í deildinni

Fyrir leik situr Valur í fjórða sæti en með sigri geta þær farið á toppinn í skamma stund að minnsta kosti. KR er í tíunda sæti og eiga eftir að fá stig.
Fyrir leik
Leikurinn hefst kl. 17:15 á Origo vellinum en leikurinn hefur verið færður á þann tíma vegna leiks í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deild karla í handbolta á milli Vals og ÍBV. Sá leikur byrjar 19:25.
Fyrir leik
Veriði hjartanlega velkomin á beina textalýsingu frá leik Vals og KR í Bestu deild kvenna.


Byrjunarlið:
29. Björk Björnsdóttir (m)
Hildur Björg Kristjánsdóttir ('82)
Bergdís Fanney Einarsdóttir ('76)
Róberta Lilja Ísólfsdóttir ('56)
3. Margaux Marianne Chauvet ('82)
6. Rebekka Sverrisdóttir (f)
7. Guðmunda Brynja Óladóttir ('56)
8. Hildur Lilja Ágústsdóttir
10. Marcella Marie Barberic
14. Rut Matthíasdóttir
16. Rasamee Phonsongkham

Varamenn:
23. Cornelia Baldi Sundelius (m)
4. Laufey Björnsdóttir ('82)
4. Gígja Valgerður Harðardóttir
5. Brynja Sævarsdóttir ('82)
19. Ólína Ágústa Valdimarsdóttir ('56)
20. Margrét Regína Grétarsdóttir
21. Tijana Krstic ('56)
22. Fanney Rún Guðmundsdóttir

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Sigursteinsson (Þ)
Arnar Páll Garðarsson (Þ)
Guðlaug Jónsdóttir
Ásta Kristinsdóttir
Þóra Kristín Bergsdóttir
Baldvin Guðmundsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: