JÁVERK-völlurinn
fimmtudagur 09. júní 2022  kl. 19:15
Lengjudeild karla
Aðstæður: Grænt gras, blár himin, já það er bongó
Dómari: Guðgeir Einarsson
Selfoss 2 - 2 Fylkir
0-1 Benedikt Daríus Garðarsson ('41)
1-1 Hrvoje Tokic ('51, víti)
2-1 Gary Martin ('55)
Aron Einarsson, Selfoss ('66)
2-2 Ásgeir Eyþórsson ('90)
Orri Sveinn Stefánsson, Fylkir ('90)
Myndir: Hrefna Morthens
Byrjunarlið:
1. Stefán Þór Ágústsson (m)
2. Chris Jastrzembski
3. Þormar Elvarsson
5. Jón Vignir Pétursson ('76)
7. Aron Darri Auðunsson
8. Ingvi Rafn Óskarsson
9. Hrvoje Tokic
10. Gary Martin (f)
12. Aron Einarsson
19. Gonzalo Zamorano
22. Adam Örn Sveinbjörnsson (f)

Varamenn:
99. Arnór Elí Kjartansson (m)
4. Jökull Hermannsson
11. Þorsteinn Daníel Þorsteinsson
15. Alexander Clive Vokes
17. Valdimar Jóhannsson ('76)
21. Sesar Örn Harðarson
24. Elfar Ísak Halldórsson
45. Þorlákur Breki Þ. Baxter

Liðstjórn:
Stefán Logi Magnússon
Arnar Helgi Magnússon
Dean Edward Martin (Þ)
Atli Rafn Guðbjartsson
Guðjón Björgvin Þorvarðarson
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir

Gul spjöld:
Gary Martin ('34)
Aron Einarsson ('63)
Stefán Þór Ágústsson ('87)

Rauð spjöld:
Aron Einarsson ('66)
@arnimadman Árni Þór Grétarsson
90. mín Leik lokið!
Líklega sanngjörn niðurstaða í uppgjöri toppliðanna. Skemmtilegur leikur sem gat endað hvoru megin sem er. Miðað við upplegg beggja þjálfara held ég að bæði lið gangi nokkuð sátt af velli.
Eyða Breyta
90. mín Rautt spjald: Orri Sveinn Stefánsson (Fylkir)
+2

Fær sitt seinna gula fyrir brot úti á velli.
Eyða Breyta
90. mín MARK! Ásgeir Eyþórsson (Fylkir)
+1

Klafs í teignum og Ásgeir á síðasta orðið.
Eyða Breyta
90. mín Gult spjald: Rúnar Páll Sigmundsson (Fylkir)
Einhver á bekknum sagði of mikið og fær spjald. Sýnist það hafa verið Rúnar Páll.
Eyða Breyta
89. mín Gult spjald: Mathias Laursen (Fylkir)
Það var pirringur í þessu broti.
Eyða Breyta
87. mín Gult spjald: Stefán Þór Ágústsson (Selfoss)
Fyrir að tefja.
Eyða Breyta
83. mín
Selfyssingar ná fyrirgjöf inn á markteig Fylkis, þar er Tokic búinn að gjörsigra Ólaf, en fyrsta snertingin svíkur hann og boltinn svífur yfir markið.
Eyða Breyta
80. mín
Gestirnir eru aðgangsharðari þessa stundina. Eiga hornspyrnu, endar með vippu í slánna. Þversláin hefur verið að þvælast fyrir mönnum í kvöld.
Eyða Breyta
76. mín Valdimar Jóhannsson (Selfoss) Jón Vignir Pétursson (Selfoss)

Eyða Breyta
75. mín
Varamaðurinn Unnar Steinn er með efnilegt skot fyrir utan teig, Stefán virðist hafa á tæru allan tímann að boltinn er að fara útaf.
Eyða Breyta
73. mín
aftur fá Fylkismenn aukaspyrnu, en nú úti á miðjum vallarhelmingi Selfyssinga, þeir senda boltann inn á teig þar sem brotið er á Jóni Vigni.
Eyða Breyta
71. mín
Fylkir með aukaspyrnu hægra megin fyrir utan teig, virtist vera búinn að sigra Stefán í markinu, en boltinn skoppar ofan á þaknetinu.
Eyða Breyta
66. mín Rautt spjald: Aron Einarsson (Selfoss)
Aron Einars brýtur harkalega á Benedikt í miðjuhringnum. Fær sitt annað gula spjald á fjórum mínútum. Vondar mínútur hjá Aroni
Eyða Breyta
63. mín Gult spjald: Aron Einarsson (Selfoss)
Braut á Frosta, var búinn að vinna sér inn fyrir þessu spjaldi.
Eyða Breyta
62. mín Unnar Steinn Ingvarsson (Fylkir) Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir)

Eyða Breyta
62. mín Frosti Brynjólfsson (Fylkir) Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir)

Eyða Breyta
60. mín
Daði Ólafs fer upp vinstri kantinn og kemur boltanum fyrir, Arnór Gauti ekki langt frá því að komast í þessa.
Eyða Breyta
55. mín MARK! Gary Martin (Selfoss)
Fylkismenn tapa boltanum á aaaal versta stað og Gary Martin kemst einn á móti markmanni, Fer auðveldlega framhjá honum og rúllar boltanum í opið markið.
Eyða Breyta
51. mín Mark - víti Hrvoje Tokic (Selfoss)
Tokic sendir Ólaf í rangt horn, rúllar boltanum rólega í hægra hornið.
Eyða Breyta
50. mín Gult spjald: Daði Ólafsson (Fylkir)
Að ég held fyrir að gefa vítið.
Eyða Breyta
50. mín
VÍTI!!!

Selfyssingar fá víti eftir að einn þeirra fer niður í teignum. Fylkismenn ósáttir.
Eyða Breyta
47. mín
Jón Vignir með neglu nokkurnvegin beint á Ólaf, þetta var ansi fast.
Eyða Breyta
46. mín Leikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur.
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Við tökum okkur smá pásu. Búið að vera líflegur leikur. Box to box þó að það hafi lengst af verið lítið að gerast eftir að komið var að boxinu.

Það á fullt eftir að gerast enn í þessum leik!
Eyða Breyta
41. mín MARK! Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
Aftur er Benedikt Darius langfljótasti maður vallarins. Fer upp vinstri kantinn og nær skoti á mark. Adam verst og boltinn rúllar ofan á þverslánni.

Benedikt hamrar svo boltann í netið rétt fyrir utan markteig.
Eyða Breyta
38. mín Gult spjald: Orri Sveinn Stefánsson (Fylkir)
Fer of harkalega í Stefán Þór að mati Guðgeirs. Virtist ekki vera mikið, en í öllu falli algert óþarfa brot.
Eyða Breyta
37. mín
Benedikt snöggur upp vinstra megin og kemur boltanum í átt að marki Selfyssinga. Adam Örn tæklar boltann í horn.
Eyða Breyta
34. mín Gult spjald: Gary Martin (Selfoss)
Fer glæfralega í Hall sýnist mér.
Eyða Breyta
31. mín
Fylkir með hornspyrnu sem nær að ferðast fyrir markið og til baka, eitt af fjölmörgum næstum færum.
Eyða Breyta
27. mín
Það er engu líkara en að hér séu tvö lið sem líður ekkert of illa með að andstæðingurinn fái að halda boltanum.
Eyða Breyta
21. mín
STÖNGIN!!!

Selfyssingar búnir að eiga hættulegri færin og þetta var það hættulegasta. Sýndist það vera Gonzalo sem átti skot vinstra megin í teignum, endaði í innanverðri hægri stönginni og rúllað til baka sömu leið. Þarna munaði millimetrum.
Eyða Breyta
19. mín
Garry Martin kominn með boltann upp að endamörkum og nær fyrirgjöfinni, Ólafur gerir virkilega vel í að ráðast á boltann.
Eyða Breyta
17. mín
ÚFF!

Hornspyrnan rúllar út úr vítateignum þar sem Chris hamrar boltan skuggalega nærri markstönginni.
Eyða Breyta
16. mín
Fylkir með langt innkast inná teig, en Stefán fer hæst manna og grípur boltann. Selfyssingar komast í hraða sókn og vinna horn.
Eyða Breyta
13. mín
Fylkismenn fyrstir til að koma boltanum í netið, en rangstaða segir aðstoðardóari 1.
Eyða Breyta
12. mín
Selfyssingar með góðan sprett sem endar með skoti Gonzalo hárfínt framhjá.
Eyða Breyta
8. mín
Liðin eru aðeins að kanna vatnið, bæði lið að ná smá rispum en vantar upp á smiðshönggið.
Eyða Breyta
2. mín
Aukaspyrnan var tekin frá hægri kantinum og skoppaði í gegnum vítateig heimamanna óáreyttur, markspyrna.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Guðgeir er búinn að flauta þetta í gang, fullt af fólki í brekkunni og Fylkir strax búnir að fá aukaspyrnu á áliltlegum stað.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Á Selfossi er blíðskapaveður, fimmtán gráðu hiti, sól og örlítil gola. Grasið grænt og leikmenn beggja liða að verða heitir.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Dean Martin breytir ekki sigurliði, teflir fram sama Selfossliði og lék fyrir noraðn.

Af breytingum Fylkis frá síðasta leik er það að frétta að Rúnar Páll skiptir Ragnari Braga út fyrir Arnór Gauta, væntanlega meiðsli að hrjá fyrirliðann.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hraðferð í Bestu

Fyir mót voru nær allir sammála um að Fylkir væri með lang öflugasta liðið, en það væri opið fyrir baráttu um annað sætið. Þeir hafa alls ekki valdið vonbrigðum og hafa unnið þrjá leiki, tapað einum og gert eitt jafntefli. Eftir tap í Grindavík pökkuðu þeir Vestra saman 5-0 í Árbænum í síðustu umferð.


Ásgeirs Barkar slagurinn gæti þessi leikur verið kallaður, en hann lék með Selfyssingum 2007 og 2008.

Eyða Breyta
Fyrir leik
Ósigraðir Selfyssingar

Gengi Selfyssinga í upphafi móts hefur komið mjög á óvart. Fjórir sigrar og eitt jafntefli. Þeir sitja því sáttir á toppi deildarinnar, þrátt fyrir að vera spáð á lygnum sjó í neðri hlutanum. Í síðustu umferð sóttu þeir sterkan sigur á heimavöll Þórsara.



Gonzalo Zamorano er meðal markahæstu manna deildarinnar, með fimm mörk í jafn mörgum leikjum í deild og þrjú mörk í þrem leikjum í bikar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Heil og sæl og verið velkomin með okkur á JÁ-VERK völlinn á Selfossi.

Kl 19.15 hefst stórleikur umferðarinnar í Lengjudeild karla. En á Selfossi tekur toppliðið á móti liðiniu sem svo til allir spáðu yfirburða sigri á mótinu í sumar.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
7. Daði Ólafsson
9. Mathias Laursen
10. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
11. Þórður Gunnar Hafþórsson ('62) ('62)
18. Nikulás Val Gunnarsson
20. Hallur Húni Þorsteinsson
28. Benedikt Daríus Garðarsson

Varamenn:
31. Guðmundur Rafn Ingason (m)
3. Unnar Steinn Ingvarsson ('62)
6. Frosti Brynjólfsson ('62)
15. Axel Máni Guðbjörnsson
19. Aron Örn Þorvarðarson
22. Ómar Björn Stefánsson
27. Arnór Breki Ásþórsson

Liðstjórn:
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Halldór Steinsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Olgeir Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Orri Sveinn Stefánsson ('38)
Daði Ólafsson ('50)
Mathias Laursen ('89)
Rúnar Páll Sigmundsson ('90)

Rauð spjöld:
Orri Sveinn Stefánsson ('90)