Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Kórdrengir
1
0
Þróttur V.
Guðmann Þórisson '65 1-0
09.07.2022  -  14:00
Framvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: 13 gráður, skýjað og vindsamt
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Maður leiksins: Guðmann Þórisson
Byrjunarlið:
13. Nikita Chagrov (m)
6. Hákon Ingi Einarsson
8. Kristján Atli Marteinsson ('69)
9. Daníel Gylfason
10. Þórir Rafn Þórisson ('84)
14. Iosu Villar
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
20. Óskar Atli Magnússon ('62)
21. Guðmann Þórisson
22. Nathan Dale
77. Sverrir Páll Hjaltested

Varamenn:
1. Óskar Sigþórsson (m)
12. Daði Freyr Arnarsson (m)
4. Fatai Gbadamosi ('69)
5. Loic Mbang Ondo
7. Marinó Hilmar Ásgeirsson ('84)
15. Arnleifur Hjörleifsson ('62)
19. Kristófer Jacobson Reyes
33. Magnús Andri Ólafsson

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Logi Már Hermannsson
Jóhann Ólafur Schröder
Guðrún Marín Viðarsdóttir
Jóhann Ólafur Sveinbjargarson

Gul spjöld:
Hákon Ingi Einarsson ('45)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Kórdrengir fara með sigur af hólmi í dag!
Skýrsla og viðtöl væntanleg.
91. mín
Lozano á skot sem Nikita ver í horn.
88. mín
Kórdrengir virðast vera að sigla þessu heim.
84. mín
Inn:Marinó Hilmar Ásgeirsson (Kórdrengir) Út:Þórir Rafn Þórisson (Kórdrengir)
83. mín
Kórdrengir eiga aukaspyrnu út við hornfána.
79. mín
Inn:Agnar Guðjónsson (Þróttur V. ) Út:Jón Kristinn Ingason (Þróttur V. )
79. mín
Inn:Nikola Dejan Djuric (Þróttur V. ) Út:James William Dale (Þróttur V. )
79. mín
Inn:Atli Dagur Ásmundsson (Þróttur V. ) Út:Alexander Helgason (Þróttur V. )
72. mín
Frábær bolti frá Arnleifi sem hittir enn og aftur á Guðmann, en hann skallar knöttinn yfir markið.
72. mín
Kórdrengir eiga hornspyrnu.
69. mín
Inn:Fatai Gbadamosi (Kórdrengir) Út:Kristján Atli Marteinsson (Kórdrengir)
Önnur breyting Davíðs í leiknum.
65. mín MARK!
Guðmann Þórisson (Kórdrengir)
Stoðsending: Arnleifur Hjörleifsson
FYRSTA MARKIÐ STAÐREYND!
Kemur eftir hornspyrnu. Frábær bolti frá varamanninum Arnleifi og auðvitað er það Guðmann sem skallar knöttinn þéttingsfast í netið!
62. mín
Inn:Arnleifur Hjörleifsson (Kórdrengir) Út:Óskar Atli Magnússon (Kórdrengir)
Davíð Smári gerir sína fyrstu breytingu.
59. mín
Arnór Gauti á skot fyrir utan teig, sem flýgur yfir markið.
57. mín Gult spjald: James William Dale (Þróttur V. )
Brýtur ansi harkalega af sér.
55. mín
Gestirnir sækja horn.
53. mín
Brotið á Þóri á hættulegum stað.
51. mín Gult spjald: Haukur Leifur Eiríksson (Þróttur V. )
50. mín
Arnór Gauti á skot framhjá markinu.
48. mín
Nathan Dale á sendingu fram völlinn, sem Iosu nær til, en skotið ekki gott.
45. mín
Nú hefst leikurinn á ný og eru það heimamenn sem byrja hann.
45. mín
Hálfleikur
Markalaust er liðin ganga til búningsherbergja.
45. mín
Tveimur mínútum bætt við, að minnsta kosti.
45. mín Gult spjald: Hákon Ingi Einarsson (Kórdrengir)
+1
Heitt í hamsi þessa stundina.
45. mín Gult spjald: Jón Kristinn Ingason (Þróttur V. )
42. mín Gult spjald: Dagur Guðjónsson (Þróttur V. )
42. mín
Ekkert verður úr aukaspyrnunni. Bæði lið mættu fara betur með föstu leikatriðin.
41. mín
Heimamenn sækja aukaspyrnu.
39. mín
Menn orðnir heitir og ekki fær Aðalbjörn Heiðar skemmtilegar kveðjur frá stúkunni.
37. mín
Kórdrengir eru ansi líklegir þessa stundina og nú sækja þeir hornspyrnu.
34. mín
DAUÐAFÆRI!
Daníel á fyrirgjöf inn á teiginn og endar í löppum Sverris eftir misskilning á milli varnarinnar. Sverrir skýtur, en Rafal ver stórkostlega.
31. mín
Fínasta færi!
Kristján Atli á sendingu sem svífur yfir teiginn og endar hjá Hákoni, sem nær skallanum, en nær ekki góðum krafti í hann.
30. mín
Inn:Dagur Guðjónsson (Þróttur V. ) Út:Unnar Ari Hansson (Þróttur V. )
Enn ein skiptingin hjá Þrótti. Unnar virðist vera meiddur.
29. mín
Guðmann ræðir málin við dómarann á mannamáli. Ósáttur.
27. mín
Kórdrengir eru að lenda í smá vandræðum í kjölfar hornspyrnanna. Þróttarar geysast upp völlinn og ná oft yfirtölu, í þetta skiptið á Lozano skot langt utan af teigi, sem Nikita varði auðveldlega.
26. mín
Daníel sækir hornspyrnu.
22. mín
Þróttarar eru að spila nokkuð vel þessa stundina. Verjast vel og sækja hratt.
18. mín
Gestirnir sækja hornspyrnu.
16. mín
Hákon á flotta sendingu inn á teiginn sem ratar til Óskars, en hann nær ekki til knattarins.
14. mín
Alexander sækir hornspyrnu.
12. mín
Þróttarar eru þéttir til baka og ætla að beita skyndisóknum. Það er morgunljóst.
9. mín
Kórdrengir sækja og sækja.
4. mín
Inn:Michael Kedman (Þróttur V. ) Út:Andy Pew (Þróttur V. )
Áhugavert!
Andy Pew fyrirliði fer útaf meiddur. Eitthvað að hrjá hann.
2. mín
Hinn þaulreyndi Andy Pew sest í grasið. Eitthvað meiddur.
1. mín
Leikur hafinn
Jæja, nú byrjar ballið. Gestirnir byrja.
Fyrir leik
Áhugavert er að Atli Dagur Ásmundsson og Helgi Snær Agnarsson koma strax inn í hópinn, en þeir voru að ganga í raðir Þróttar.
Fyrir leik
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er dómari leiksins í dag. Honum til aðstoðar er Patrik Freyr Guðmundsson, sem gegnir hlutverki aðstoðardómara eitt. Aðstoðardómari tvö er Rúna Kristín Stefánsdóttir.
Ingvar Örn Gíslason er svo eftirlitsmaður leiksins.
Fyrir leik
Kórdrengjum var af mörgum spáð virkilega góðu gengi og jafnvel með líklegri liðum til þess að fara upp í deild þeirra bestu. Spádómarnir hafa þó ekki gengið eftir, það sem af er. Liðið situr í 9. sæti, en þjálfari þeirra, Davíð Smári hefur litlar sem engar áhyggjur. Hann segir spilamennsku sinna manna hafa verið frábæra, en stigasöfnunin ekki eins góð.
Fyrir leik
Þróttarar frá Vogum hafa ekki byrjað vel í Lengjudeild karla og ráku t.a.m. þjálfara sinn, Eið Ben Eiríksson á dögunum. Því verður að teljast ansi líklegt að þeir fari aftur niður í aðra deild. Þó er verið að reyna snúa við taflinu og búið er að ráða Brynjar Gestsson næstu tvö árin og vonandi að hann geti komið liðinu á beinu brautina.
Fyrir leik
Kórdrengir leika sína heimaleiki í Safamýrinni.
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan daginn og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Kórdrengja gegn Þrótti Vogum.
Byrjunarlið:
12. Rafal Stefán Daníelsson (m)
2. Arnór Gauti Úlfarsson
2. Helgi Snær Agnarsson
4. James William Dale ('79)
6. Ragnar Þór Gunnarsson
10. Alexander Helgason ('79)
15. Haukur Leifur Eiríksson
16. Unnar Ari Hansson (f) ('30)
19. Rubén Lozano Ibancos
19. Jón Kristinn Ingason ('79)
44. Andy Pew ('4)

Varamenn:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
11. Atli Dagur Ásmundsson ('79)
17. Agnar Guðjónsson ('79)
22. Nikola Dejan Djuric ('79)
26. Michael Kedman ('4)
27. Dagur Guðjónsson ('30)

Liðsstjórn:
Brynjar Þór Gestsson (Þ)
Andri Már Hermannsson (Þ)
Gunnar Júlíus Helgason
Marteinn Ægisson
Margrét Ársælsdóttir
Piotr Wasala
Sigurður Már Birnisson
Gísli Sigurðarson

Gul spjöld:
Dagur Guðjónsson ('42)
Jón Kristinn Ingason ('45)
Haukur Leifur Eiríksson ('51)
James William Dale ('57)

Rauð spjöld: