Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Þór
1
0
Vestri
Bjarni Guðjón Brynjólfsson '63 1-0
06.08.2022  -  14:00
SaltPay-völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Toppnæs
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Maður leiksins: Aron Birkir Stefánsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
Orri Sigurjónsson
7. Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('72)
8. Nikola Kristinn Stojanovic
9. Alexander Már Þorláksson ('91)
10. Ion Perelló
11. Harley Willard
18. Elvar Baldvinsson
19. Ragnar Óli Ragnarsson ('72)
21. Sigfús Fannar Gunnarsson ('58)
30. Bjarki Þór Viðarsson

Varamenn:
12. Auðunn Ingi Valtýsson (m)
3. Birgir Ómar Hlynsson ('72)
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('72)
6. Páll Veigar Ingvason ('91)
10. Sigurður Marinó Kristjánsson
15. Kristófer Kristjánsson ('58)
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson

Liðsstjórn:
Þorlákur Már Árnason (Þ)
Sveinn Leó Bogason
Haraldur Ingólfsson
Gestur Örn Arason
Stefán Ingi Jóhannsson
Jónas Leifur Sigursteinsson

Gul spjöld:
Bjarki Þór Viðarsson ('53)
Kristófer Kristjánsson ('69)
Elvar Baldvinsson ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þórsarar vinna 1-0 heimasigur! Þriðji sigurinn í röð!
95. mín
Páll Veigar!

Páll bjargar inná markteig! Þetta hefði orðið mark!

Held að Vestri átti að fá hornspyrnu þarna en fengu ekki.
93. mín
Montipo hittir boltann ekki eftir skalla frá Tufegdzic. Boltinn aftur fyrir og Þórsarar eiga hann.
93. mín Gult spjald: Elvar Baldvinsson (Þór )
Fyrir að sparka boltanum í burtu.
92. mín
Badu með of langa sendingu sem fer beint á Aron Birki. Dýrmætar sekúndur fyrir heimamenn.
92. mín
Ein mínúta liðin af uppbótartíma. Veit ekki hversu miklu er bætt við.
91. mín
Inn:Páll Veigar Ingvason (Þór ) Út:Alexander Már Þorláksson (Þór )
91. mín
Gestirnir fá aðra hornspyrnu en ná ekki að nýta sér hana heldur.
90. mín
Vestri á hornspyrnu.

Tvisvar mikil hætta inná vítateig Þórs en einhvern veginn ná gestirnir bara ekki að skora.
89. mín
Hermann Helgi skallar í burtu og Þórsarar fara í álitlega skyndisókn. Sendingin inn fyrir aðeins of innarlega og Brenton leysir úr þessu.
88. mín
Vestri á hornspyrnu.
86. mín
Orri brýtur á Nicolaj á miðjum vellinum og liggur eftir í annað skiptið á skömmum tíma.
85. mín
Skalli eftir hornspyrnuna en hann er ekki góður og Aron tekur núna markspyrnu.
84. mín
Sergine Fall með fyrirgjöf sem finnur Deniz inn á teignum. Deniz hittir boltann ekkert sérstaklega en Aron Birkir er klár, hendir sér á boltann og slær hann til hliðar og aftur fyrir.
83. mín
Deniz með skot sem fer hátt yfir. Orri gerði vel í að trufla.
80. mín
Alexander gerir vel í fremstu víglínu og kemur boltanum út á Harley. Harley leitar á vinstri löppina, lætur vaða en skotið fer vel framhjá.
79. mín
Kristófer fær boltann eftir langa sendingu frá Harley upp völlinn. Kristófer reynir fyrirgjöf en það er enginn samherji hans inná teignum og Brenton grípur boltann.
77. mín Gult spjald: Vladimir Tufegdzic (Vestri)
Var eitthvað ósáttur við hvað Þórsarar komust upp með í sínum varnarleik og tuðaði sig í svörtu bókina.
76. mín
Orri bjargar inná vítateignum, var nýbúinn að gera vel skömmu áður líka.
76. mín
Inn:Martin Montipo (Vestri) Út:Pétur Bjarnason (Vestri)
72. mín
Inn:Hermann Helgi Rúnarsson (Þór ) Út:Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Þór )
72. mín
Inn:Birgir Ómar Hlynsson (Þór ) Út:Ragnar Óli Ragnarsson (Þór )
70. mín
Þórsarar verjast fyrirgjöfum vel. Ekkert kom upp úr aukaspyrnunni en núna eiga gestirnir horn.

Kom ekkert upp úr því.
69. mín Gult spjald: Kristófer Kristjánsson (Þór )
Danglaði aðeins löppinni í átt að Deniz og fær gult spjald fyrir.

Vestri á aukaspyrnu á hægri kantinum.
68. mín
Vel gert hjá Kristófer inn á vítateig Vestra og hann reynir að koma boltanum á samherja en gestirnir ná að hreinsa.
64. mín
Þórsarar ætluðu að gera tvöfalda breytingu en bíða aðeins með hana.
63. mín MARK!
Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Þór )
FYRSTA MARKIÐ!!

Það líka laglega markið!!!

Vinnur boltann á vallarhelmingi Vestra, gerir virkilega vel í að vinna baráttuna við Nacho, keyrir upp að vítateig Vestra og á frábært skot sem fer í stöngina og inn!

Þórsarar leiða, gegn gangi leiksins!
61. mín
Pétur í dauðafæri!

Reynir fyrst að flikka boltann eftir sendingu frá Sergine Fall og fær svo boltann aftur en hittir ekki markið!
60. mín
Gestirnir sækja mikið þessar mínúturnar. Tufegdzic kom sér í skotfæri áðan en Elvar komst fyrir skotið og núna eiga Vestramenn hornspyrnu.

Ekkert kom upp úr horninu.
59. mín
Fín sókn hjá Vestra en fyrirgjöf Sergine af hægri kantinum kemur fyrir aftan alla hans samherja og Þórsarar fá svo innkast.
58. mín
Inn:Kristófer Kristjánsson (Þór ) Út:Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór )
Skipt um hægri kantmann.
57. mín
Deniz tók þessa aukaspyrnu, Nicolaj vann fyrsta bolta en svo voru gestirnir dæmdir brotlegir og nú sækja Þórsarar.
56. mín
Ragnar brýtur á Nicolaj. Aðeins aftar en síðasta aukaspyrna.
55. mín
Ragnar með alvöru rennitæklingu, tæklar boltann í innkast. Deniz vill fá aukaspyrnu en fær bara innkast.
54. mín
Aron kemur út úr markinu og kýlir fyrirgjöfina frá Badu í burtu.
53. mín Gult spjald: Bjarki Þór Viðarsson (Þór )
Dæmdur brotlegur gegn Deniz við vítateig Þórs. Fín fyrirgjafarstaða fyrir gestina.
51. mín
Hættuleg fyrirgjöf frá Tufegdzic sem Pétur rétt missir af.
50. mín
Byrjar afskaplega rólega hér í seinni hálfleik.
46. mín
Þórsarar byrja með boltann í seinni!

Engin breyting á liðunum í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleik lokið!
45. mín
Harley með skot í þverslána!

Þórsarar verið betri þessar síðustu mínútur. Harley kemur sér í gott skotfæri inná teignum, lætur vaða með hægri fæti og boltinn smellur í slánni!
44. mín
Þórsarar fá hornspyrnu.

Sýnist það vera Orri sem er dæmdur brotlegur inn á teig Vestra þegar boltinn er á leiðinni til hans. Vestri á aukaspyrnu.
43. mín
Harley aftur með fyrirgjöf og núna finnur hann Alexander en boltinn er samt aðeins of hár og Alexander nær ekki að koma boltanum á samherja eða stýra honum á markið.
41. mín
Þórsarar gera aftur tilkall til vítaspyrnu!

Bjarni með skalla í leikmann Vestra og vill meina að þessi hafi farið í hönd varnarmanns. Ekkert dæmt.

Boltinn berst á Sigfús í teignum og hann reynir skot en það fer rétt framhjá.
40. mín
Harley reynir fyrirgjöf en Aurelien er vel staðsettur og skallar boltann í innkast.
38. mín
Deniz í hörkufæri. Flott samspil við Nicolaj sýndist mér sem endar á skoti frá Deniz en það fer hátt yfir mark Þórsara.
37. mín
Nacho með skalla framhjá marki Þórs eftir fyrirgjöf frá hægri.

Vestri verið betra liðið hér í fyrri hálfleik.
37. mín
Líður eins og Vestri hafi aðeins breytt um leikkerfi. Farið í 3-5-2.

Tufegdzic er að vinna meira í kringum Pétur þessa stundina og Sergine Fall hefur Fallið aftar.
35. mín
Pétur reynir fasta sendingu fyrir markið en Ragnar er vel staðsettur og nær að þruma í burtu frá marki Þórs.
32. mín
Það var að berast bréf!

Elmar Þór er farinn til Bandaríkjanna í nám og verður því ekki meira með Þór í sumar.
31. mín
Harley með fyrirgjöf og finnur Bjarna inná teignum. Spurning hvort Sigfús hefði átt að kalla þarna því hann var eiginlega í betri stöðu en Bjarni.

Skallinn frá Bjarna fór framhjá.
29. mín
Pétur í dauðafæri!

Flottur sprettur hjá Deniz upp vinstri kantinn, kemur með fyrirgjöf út í teiginn og finnur Pétur. Pétur er í dauðafæri en hittir boltann ekki nægilega vel og skýtur framhjá fjærstönginni.
27. mín
Aron Birkir!

Orri með mistök og Tufegdzic er skyndilega í dauðafæri. Hann er einn gegn Aroni Birki sem ver frábærlega frá honum og grípur svo fyrirgjöf í kjölfarið.
25. mín
Þórsarar skalla í burtu en sókn Vestra heldur áfram.

Tufegdzic fær boltann úti hægra megin, kemur með fyrirgjöf en Pétur er dæmdur brotlegur inn á teignum.
24. mín
Vestri fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
18. mín
Ion sýnt lipra takta með boltann í upphafi leiks, erfitt að ná af honum boltanum - mikil stjórn á boltanum.
16. mín
Sigfús fellur inná vítateig Vestra, Þórsarar gera tilkall til vítaspyrnu en Arnar dæmir ekkert.

Held að ég sé sammála ákvörðun Arnars að dæma ekkert.
15. mín
Ion sömuleiðis heppinn núna að fá ekki spjald fyrir brot á Badu.
13. mín
Friðrik heppinn að fá ekki spjald fyrir brot á Ion við hliðarlínuna - fær tiltal frá Arnari dómara.

Ion stilir sér svo upp til að taka aukaspyrnuna inná vítateig Vestra - Gestirnir ná að hreinsa.
12. mín
Tufegdzic með sprett upp vinstri kantinn og reynir fyrirgjöf en hún er alltof há.
11. mín
Bjarki mættur aftur inn á.
9. mín
Bjarki, fyrirliði Þórs, liggur eftir viðskipti við Pétur Bjarnason. Bjarki þarf á aðhlynningu að halda.
8. mín
Alexander með skot úr vítateig Vestra en Badu kemst fyrir.
7. mín
Vestri talsvert líklegra liðið í upphafi leiks og óöryggi í varnarlínu heimamanna.
6. mín
Alvöru vesen hjá Þórsurum inn á eigin vítateig. Bjarki í vandræðum og Vestramenn í mjög góðu færi. Endar á að Tufegdzic á skot sem fer í Orra sýndist mér og í innkast.
5. mín
Deniz með fínan sprett upp vinstri vænginn, kemur með góðan bolta fyrir en Elvar nær að skalla í burtu frá marki Þórs.
4. mín
Lið Vestra:
Brenton
Friðrik - Aurelien - Christian - Deniz
Daniel - Nacho
Sergine - Nicolaj - Vladimir
Pétur
2. mín
Sigfús vinnur aukaspyrnu fyrir Þór á vinstri kantinum. Ion gerir sig kláran að gefa boltann inn á teiginn.

Pétur Bjarnason skallar í burtu.
1. mín
Lið Þórs:
Aron
Ragnar - Bjarki - Orri - Elvar
Nikola - Ion
Harley - Bjarni - Sigfús
Alexander
1. mín
Leikur hafinn
Nacho, sem er fyrrum leikmaður Þórs, á upphafssparkið.
Fyrir leik
Kunnuglegt nafn mætt á bekkinn hjá Þór. Sigurður Marinó Kristjánsson hefur glímt við meiðsli í sumar en er á bekknum í dag.
Fyrir leik
Það er skýjað, hlýtt og það sem þeir fyrir sunnan kalla logn á Akureyri í dag.
Fyrir leik
Byrjunarliðin hafa verið opinberuð
Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs, gerir þrjár breytingar frá sigrinum gegn Grindavík. Hermann Helgi og Kristófer taka sér sæti á bekknum og Elmar Þór Jónsson er ekki í leikmannahópnum í dag. Inn koma þeir Elvar Baldvins, Sigfús Fannar og Ion Machi.

Ein breyting er á liði Vestra frá sigrinum gegn Þrótti. Silas er eins og fyrr segir í banni og inn í liðið kemur Vladimir Tufegdzic.
Fyrir leik
Dómarateymið
Arnar Ingvi Ingvarsson dæmir leikinn í dag. Patrik Freyr Guðmundsson og Sveinn Þórður Þórðarson eru Arnari til aðstoðar og Þóroddur Hjaltalín er eftirlitsmaður KSÍ.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna og markahæstu menn
Fyrri leikur þessara liða í sumar fór fram í lok maí á Ísafirði og lauk með 3-3 jafntefli. Harley Willard kom Þór yfir snemma leiks en Vestri svaraði með tveimur mörkum skömmu síðar, fyrra markið skoraði Nicolaj Madsen en það seinna var skráð sjálfsmark á Aron Birki Stefánsson. Nikola Kristinn Stojanovic sá til þess að staðan var jöfn í leikhléi með því að skora í lok fyrri hálfleiks fyrir gestina.

Willard skoraði sitt annað mark í leiknum þegar stundarfjórðungur lifði leiks og kom gestunum yfir en Chechu jafnaði leikinn fyrir heimamenn í uppbótartíma og þar við sat.

Harley Willard er markahæsti leikmaður Þórs með tíu mörk í Lengjudeildinni og Nicolaj Madsen er markahæsti leikmaður Vestra með fjögur mörk.
Fyrir leik
Silas í banni
Silas Dylan Songani, leikmaður Vestra, fékk rautt spjald gegn Þrótti í síðustu umferð og er því í banni í dag. Enginn annar í leikmannahópum liðanna tekur út bann í dag.
Fyrir leik
Staðan í deildinni og síðustu leikir
Þór er í 10. sæti deildarinnar með sautján stig. Liðið hefur unnið tvo leiki í röð, útileiki gegn Kórdrengjum og Grindavík. Síðasti leikur var fyrir rúmri viku og vannst þá 1-2 sigur í Grindavík þar sem Alexander Már Þorláksson skoraði bæði mörk Þórsara.

Vestri er í 7. sæti deildarinnar með 22 stig. Liðið hefur sömuleiðis unnið tvo leiki í röð, heimaleiki gegn Gróttu og Þrótti Vogum. Síðasti leikur fór 4-0 þegar Vogamenn komu í heimsókn til Ísafjarðar. Nacho Gil skoraði þá tvö mörk, Pétur Bjarnason eitt og Deniz Yaldir sömuleiðis eitt.

KV vann sigur í gær og er liðið nú sex stigum á eftir Þór í fallbaráttunni. Vestri getur horft upp fyrir sig, með sigri fer liðið upp í þriðja sætið og minnkar liðið bilin í toppliðin niður í átta og níu stig.
Fyrir leik
Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá lokaleik 15. umferðar í Lengjudeildinni.

Þór mætir Vestra á SaltPay-vellinum í Þorpinu á Akureyri og leikurinn hefst klukkan 14:00.
Byrjunarlið:
Daniel Osafo-Badu
Brenton Muhammad
7. Vladimir Tufegdzic
10. Nacho Gil
11. Nicolaj Madsen
14. Deniz Yaldir
19. Pétur Bjarnason ('76)
25. Aurelien Norest
26. Friðrik Þórir Hjaltason
27. Christian Jiménez Rodríguez
77. Sergine Fall

Varamenn:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
5. Chechu Meneses
16. Ívar Breki Helgason
18. Martin Montipo ('76)
22. Elmar Atli Garðarsson
44. Rodrigo Santos Moitas

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Daníel Agnar Ásgeirsson
Jón Hálfdán Pétursson
Patrick Bergmann Kaltoft

Gul spjöld:
Vladimir Tufegdzic ('77)

Rauð spjöld: