Gomes, Lookman og Kolo Muani orðaðir við Man Utd - Trossard fær launahækkun - Brownhill í ítalska boltann?
Liechtenstein
0
7
Ísland
0-1 Davíð Kristján Ólafsson '3
0-2 Hákon Arnar Haraldsson '38
0-3 Aron Einar Gunnarsson (f) '48
0-4 Aron Einar Gunnarsson (f) '67
0-5 Aron Einar Gunnarsson (f) '73 , víti
0-6 Andri Lucas Guðjohnsen '85
0-7 Mikael Egill Ellertsson '87
26.03.2023  -  16:00
Rínarvöllurinn í Vaduz
Undankeppni EM
Aðstæður: 12 gráðu hiti, skýjað, völlurinn fínn
Dómari: Jakob Kehlet (Danmörk)
Áhorfendur: 1.692
Byrjunarlið:
1. Benjamin Buchel (m)
4. Lars Traber ('46)
5. Simon Lüchinger ('46)
8. Aron Sele
10. Sandro Wieser
14. Livio Meier
17. Noah Frommelt
18. Nicolas Hasler (f)
19. Philipp Gasner ('68)
20. Jakob Lorenz ('72)
23. Jens Hofer

Varamenn:
12. Justin Ospelt (m)
21. Lorenzo Lo Russo (m)
2. Niklas Beck
3. Marco Wolfinger
6. Andreas Malin
7. Andrin Netzer ('46)
9. Noah Frick ('68)
11. Ridvan Kardesoglu
13. Jakob Lorenz
15. Seyhan Yildiz ('72)
16. Fabio Wolfinger ('46)
21. Martin Marxer

Liðsstjórn:
Rene Pauritsch (Þ)

Gul spjöld:
Sandro Wieser ('64)
Aron Sele ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Mjög flottur sigur í Liechtenstein, sögulegur sigur. Við erum komnir á blað í undankeppni EM 2023. En núna verðum við að fylgja því eftir í sumar.

Viðtöl koma inn á síðuna í kvöld.

Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
90. mín
Mikael Neville með aukaspyrnu af 30 metrunum sem fer beint í vegginn.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
90. mín Gult spjald: Aron Sele (Liechtenstein)
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
90. mín
Leikmenn Liechtenstein geta væntanlega ekki beðið eftir því að flautað verði af. Þeir hafa verið hörmulegir í dag, varla náð að tengja sendingu saman.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
88. mín
Þetta er stærsti sigur karlalandsliðsins í mótsleik frá upphafi. Gott svar eftir hörmungarnar í Bosníu þó þessi leikur í dag hafi verið algjör skyldusigur.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
87. mín MARK!
Mikael Egill Ellertsson (Ísland)
Stoðsending: Jón Dagur Þorsteinsson
Algjört rúst! Jón Dagur, sem er búinn að vera frábær í þessum leik, á fyrirgjöf sem Mikael Egill skallar í markið. Hans fyrsta landsliðsmark.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
85. mín MARK!
Andri Lucas Guðjohnsen (Ísland)
Stoðsending: Davíð Kristján Ólafsson
Sjötta markið komið! Jón Dagur með boltann fyrir og Davíð Kristján stýrir honum áfram á Andra Lucas sem potar boltanum yfir línuna.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
82. mín
Þetta er afskaplega sannfærandi hjá íslenska liðinu og það er vel gert, en við skulum muna að þetta er Liechtenstein sem er afskaplega slakt lið. Það munu öll liðin í þessum riðli vinna Liechtenstein.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
78. mín
Myndasyrpa: Aron fagnar þrennunni Hafliði Breiðfjörð er á vellinum og tók þessar myndir:







Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
75. mín
Inn:Ísak Bergmann Jóhannesson (Ísland) Út:Aron Einar Gunnarsson (f) (Ísland)
Aron fær heiðursskiptingu eftir að hafa skorað þrennu.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
73. mín
Óvænt þrenna!
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
73. mín Mark úr víti!
Aron Einar Gunnarsson (f) (Ísland)
Ótrúlegt! Aron Einar með þrennu í þessum leik. Afar öruggur á vítapunktinum. Hann var búinn að skora tvö landsliðsmörk í 100 landsleikjum fyrir þennan leik.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
72. mín
Inn:Seyhan Yildiz (Liechtenstein) Út: Jakob Lorenz (Liechtenstein)
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
72. mín
Víti sem Ísland fær! Aron Einar hlýtur að fara á punktinn.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
70. mín
Aron Einar að hóta þrennunni! Með skot að löngu færi sem Buchel nær að verja.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
68. mín
Inn:Noah Frick (Liechtenstein) Út:Philipp Gasner (Liechtenstein)
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
68. mín
Aron Einar skoraði og Jón Dagur lagði upp.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
67. mín MARK!
Aron Einar Gunnarsson (f) (Ísland)
Stoðsending: Jón Dagur Þorsteinsson
Fyrirliðinn skorar aftur! Jón Dagur með hornspyrnu og Aron Einar mætir á nærstöngina og skorar. Ansi einfalt mark. Mjög svipað og markið áðan.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
66. mín
Jón Dagur með aukaspyrnuna sem fer af veggnum og yfir markið. Darraðadans í hornspyrnunni í kjölfarið og Ísland fær aðra hornspyrnu.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
65. mín
Inn:Andri Lucas Guðjohnsen (Ísland) Út:Alfreð Finnbogason (Ísland)
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
65. mín
Inn:Mikael Egill Ellertsson (Ísland) Út:Arnór Sigurðsson (Ísland)
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
65. mín
Inn:Alfons Sampsted (Ísland) Út:Hörður Björgvin Magnússon (Ísland)
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
64. mín Gult spjald: Sandro Wieser (Liechtenstein)
Ísland fær aukaspyrnu á hættulegum stað.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
62. mín
Liechtenstein gerði tvöfalda breytingu í hálfleik. Annar þeirra sem kom inn á spilar í varaliði Vaduz, en aðallið félagsins er í B-deildinni í Sviss. Hinn leikmaðurinn sem kom inn á spilar í fimmtu deild í Sviss.

Segir mikið til um það hversu slakt þetta lið sem við erum að spila á móti er.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
61. mín
Liechtenstein tekur aukaspyrnu inn á teiginn og þeir ná skalla að marki. Algjör æfingabolti fyrir Rúnar Alex. Stuðningsmenn Liechtenstein ánægðir með þetta.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
60. mín
Marki Arons fagnað
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
57. mín
Jón Dagur með skot yfir eftir geggjaðan undirbúning Hákons.
56. mín Gult spjald: Alfreð Finnbogason (Ísland)
Furðulegt spjald, það var sparkað í Alfreð sem lét andstæðinginn heyra það og fær gult spjald.
54. mín
Guðlaugur Victor sækir að marki Liechtenstein og ákveður að skjóta sjálfur, nær ekki nægilega góðu skoti og Buchel ver örugglega.
52. mín
1.692 áhorfendur
51. mín
Ísland strax farið að hóta fjórða markinu.
50. mín

48. mín MARK!
Aron Einar Gunnarsson (f) (Ísland)
Stoðsending: Jón Dagur Þorsteinsson
Miðvörðurinn kominn með mark og stoðsendingu! Skallaði boltann inn eftir hornspyrnu Jóns Dags.
47. mín
Hér má sjá Hákon fagna sínu fyrsta landsliðsmarki
46. mín
Inn:Fabio Wolfinger (Liechtenstein) Út:Lars Traber (Liechtenstein)
46. mín
Inn:Andrin Netzer (Liechtenstein) Út:Simon Lüchinger (Liechtenstein)
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað Ein íslensk skipting í hálfleik.
46. mín
Inn:Mikael Anderson (Ísland) Út:Jóhann Berg Guðmundsson (Ísland)
45. mín
Sjáðu mörkin tvö úr fyrri hálfleik


45. mín
Hálfleikur
Liechtenstein 0-2 Ísland Ísland með algjöra yfirburði úti á vellinum, tvö mörk skoruð en tvö mörk dæmd af. Liechtenstein hefur ekkert náð að láta reyna á Rúnar Alex í marki Íslands.
45. mín

45. mín
Jón Dagur með fín tilþrif og skot en vel varið hjá Buchel
45. mín
2 mínútur í uppbótartíma fyrri hálfleiks
45. mín


44. mín
HÁKON Í DAUÐAFÆRI!!! Einn gegn markverði Liechtenstein sem nær að verja frá honum.
40. mín
Hákon skoraði aftur en markið var dæmt ógilt eftir VAR skoðun Danski dómarinn fór í skjáinn og dæmdi markið af, aukaspyrna dæmd. Hákon steig á varnarmann þegar hann hljóp inn í teiginn.

Markið var flott, kom eftir gott samspil milli Hákons og Arnórs.

38. mín MARK!
Hákon Arnar Haraldsson (Ísland)
Stoðsending: Aron Einar Gunnarsson (f)
Virkilega vel klárað hjá Hákoni! Setti boltann faglega í bláhornið meðfram grasinu Aron Einar með frábæra sendingu inn í teiginn, Hákon tók vel á móti boltanum og sýndi gæði sín.
37. mín
Áðan var klappað þegar Liechtenstein náði einhverjum þremur sendingum milli manna. Þetta lið er ekki burðugt.
35. mín
Þurfum að fara að fá upp meira tempó í spilið, hefur hægst á þessu hjá okkur.
34. mín
Simon Lüchinger þarf aðhlynningu.
32. mín
Orðið nokkuð síðan við fengum almennilegt færi.
27. mín

25. mín
Jói Berg með aukaspyrnuna En náði ekki miklum krafti. Buchel í marki Liechtenstein varði.
23. mín
Brotið á Jón Degi rétt fyrir utan D-bogann. Aukaspyrna á frábærum stað.
23. mín
Staðan er enn 1-0, Íslandi í vil. Fyrri hálfleikur hálfnaður.
22. mín
Myndasyrpa: Davíð Kristján skoraði fyrsta mark leiksins



21. mín
Hörður Björgvin skallar yfir, þurfti að teygja sig í þennan.
20. mín
Lars Traber stálheppinn að skora ekki sjálfsmark, setti boltann rétt framhjá eigin marki.
18. mín
Jón Dagur með fyrirgjöf en varnarmaður Liechtenstein hreinsar frá.
15. mín
Alfreð skorar en markið dæmt af! Danski dómarinn dæmir brot og Alfreð virkar steinhissa. Stjakaði þarna við varnarmanni Liechtenstein, strangur dómur.
13. mín
Jón Dagur með skot framhjá eftir flotta sókn, Alfreð Finnboga gerði vel og átti sendingu á Arnór sem kom Liechtenstein í opna skjöldu. Arnór með fyrirgjöfina á Jón Dag sem setti boltann framhjá.
10. mín
Jói Berg með skot framhjá Íslenska liðið einokar boltann án þess að fá nokkra pressu frá heimamönnum. Jóhann Berg með ágætis skottilraun fyrir utan teiginn en framhjá.
7. mín
Ísland fær aukaspyrnu. Jóhann Berg með fyrirgjöf í teiginn sem markvörður heimamanna grípur.
3. mín MARK!
Davíð Kristján Ólafsson (Ísland)
Stoðsending: Alfreð Finnbogason
ÍSLAND KEMST YFIR!!! Davíð Kristján með skot sem breytir um stefnu af varnarmanni og endar í markinu. Mögulega verður þetta skráð sem sjálfsmark. Óskabyrjun.


3. mín
Jón Dagur skallaði hornspyrnuna frá og Ísland fór í skyndisókn sem endaði með því að Hákon Arnar átti sendingu á Alfreð í teignum en erfiður bolti sem Alfreð náði ekki að gera neitt við.
2. mín
Liechtenstein fær horn strax í byrjun
1. mín
Leikur hafinn
Daninn hefur flautað til leiks Væntanlega pirraður yfir úrslitum danska liðsins fyrr í dag.
Fyrir leik
Rétt eins og gegn Bosníu erum við alhvítir í þessum leik. Liechtenstein í bláum treyjum, rauðum stuttbuxum.
Fyrir leik
Ekki bara byrjað að rigna heldur mætti rok skyndilega líka. Fyrir hálftíma var prýðisveður. Jæja þjóðsöngvarnir.

Fyrir leik
Liðin eru mætt í göngin og það er byrjað að rigna.
Fyrir leik


Fyrir leik
Þetta er að bresta á
Fyrir leik
Tólfan kemur!
Fyrir leik
Miðasala gengið herfilega Á leikvangnum eru fjórar stúkunni en það verður aðeins setið í einni af þeim og hún verður langt frá því að vera full. Sagt er að um 20 Íslendingar verði viðstaddir leikinn.
Fyrir leik
Jæja þá eru það spámenn fréttamannastúkunnar Sjálfur spái ég 3-0 sigri. Alfreð, Hákon og Sævar Atli með mörkin.

Valur Páll Eiríksson á Sýn spáir 4-0 sigri Íslands.

Afmælisbarnið Helgi Sigurðsson á Torgi spáir 3-0.
Fyrir leik
Pakkað í vörn - Liechtenstein í fimm manna vörn
Fyrir leik
Leikmenn eru búnir að taka hinn hefðbundna göngutúr um völlinn


Fyrir leik
Helgi Kolviðs mættur, glæsilegur að vanda
Fyrir leik
Tvær breytingar Stefán Teitur Þórðarson kemur inn á miðsvæðið í stað Arnórs Ingva Traustasonar. Aron Einar Gunnarsson fyrirliði er kominn úr leikbanni og byrjar í hjarta varnarinnar. Daníel Leó Grétarsson fær sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Þórir Jóhann Helgason er veikur og er ekki í hóp.
Fyrir leik
Byrjunarliðið hefur verið staðfest
Fyrir leik
Íslandsvinur á svæðinu Leikvangurinn tekur 6.127 í sæti en samkvæmt því sem við höfum heyrt verður afskaplega fámennt á vellinum og mörg tóm sæti.

Styrktarþjálfari Liechtenstein er Sebastian Boxleitner.

Hinn þýski Boxleitner tók við sem styrktarþjálfari íslenska landsliðsins 2016 og var í því starfi til 2019. Hann var þá rekinn frá KSÍ eftir að Erik Hamren gerðist þjálfari liðsins.
Fyrir leik
Rínarvöllurinn í Vaduz
Fyrir leik
Stefnan er enn sett á EM þrátt fyrir tapið slæma í Bosníu

Eins og lesendur vita þá tapaði Ísland 3-0 fyrir Bosníu í liðinni viku. Á sama tíma fór fram leikur Slóvakíu og Lúxemborg í sama riðli en hann endaði með markalausu jafntefli. Mikil reiði er vegna þessara úrslita í Slóvakíu.

„Þetta er rosalega opinn riðill," sagði Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í gær þegar hann var beðinn um að segja hvað úrslitin í Slóvakíu segja honum.

„Ef það er eitthvað sem ég hef lært á þessum fimm árum sem ég hef þjálfað landslið, fyrst U21 landsliðið og svo í undankeppninni fyrir HM, að riðlarnir hafa verið opnir og mörg lið svipuð að styrkleika."

„Það hefur enginn verið að tala um Lúxemborg hingað til en þessi úrslit sýna að þeir eru vel skipulagðir og gott lið. Þeir eru komnir með leikmenn á fínum stöðum í Evrópu. Strax þarna missir Slóvakía af stigum heima."

„Ég hef sagt það að í þessum riðli þurfum við að vinna fjóra heimaleiki og tvo til þrjá útileiki. Við fórum inn í þennan leik gegn Bosníu með það í huga að það væri frábært að ná sigri, það hefði verið mjög gott að ná jafntefli. Mótið er ekki búið þrátt fyrir tap og þessi úrslit, 0-0 hjá Slóvakíu og Lúxemborg sýna okkur að liðin eiga eftir að taka stig hvert af öðru,"
segir Arnar.

„Ef við náum í þessi stig verðum við mjög nálægt þessu en þá þurfum við að bæta leik okkar á ákveðnum sviðum. Ég les það úr þessum úrslitum, þetta verður rosalega opið og er langt maraþon."
Fyrir leik
Liechtenstein með bráðabirgðastjóra Liechtenstein er með bráðabirgðastjóra. Martin Stocklasa sem hafði verið landsliðsþjálfari Liechtenstein frá 2020 rifti samningi sínum í byrjun þessa mánaðar.

Hann sagði upp til að taka við félagsliðinu Vaduz í Liechtenstein en það tekur þátt í svissnesku deildakeppninni og er í níunda sæti B-deildarinnar. Það er ekki deild í Liechtenstein en sjö lið frá landinu spila í svissnesku deildakeppninni.

Stocklasa var fyrsti þjálfarinn sem er frá Liechtenstein sem stýrði landsliði þjóðarinnar

Austurríkismaðurinn Rene Pauritsch, sem er yfirmaður fótboltamála hjá Liechtenstein, tók við landsliðinu til bráðabirgða og stýrði því gegn Portúgal og svo gegn Íslandi í dag.

Þrettán leikmenn í landsliðshópi Liechtenstein spila með félagsliðum frá Liechtenstein en níu með liðum í Austurríki og Sviss. Sá sem sker sig úr er Dennis Salanovic, vængmaður CF Talavera í spænsku C-deildinni. Landsleikjahæstur í hópnum er bakvörðurinn Seyhan Yildiz sem hefur leikið 60 landsleiki en hann spilar fyrir Eschen/Mauren.
Fyrir leik
Nokkrar myndir frá æfingu í gær



Fyrir leik
Liechtenstein vann síðast leik 2020 Ef allt er eðlilegt vinnur Ísland sannfærandi sigur í dag gegn einu lélegasta landsliði heims. Liechtenstein hefur ekki skorað í sex síðustu landsleikjum. Liðið er án sigurs í síðustu 26 leikjum sem er næstversta skrið landsliðs í Evrópu, á eftir San Marínó.

Meðal tapleikja eru ósigrar gegn Andorra, Gíbraltar, Færeyjum og 6-0 tap gegn Grænhöfðaeyjum. Þjálfarar eru ekki hrifnir af orðinu skyldusigur en það orð á afskaplega vel við varðandi leikinn í dag.
Fyrir leik
Aftur fjögur íslensk mörk í dag? Þessi lið mættust 2021 í undankeppni HM. Ísland vann heimaleikinn 4-0 á Laugardalsvelli og útileikinn 4-1.
Fyrir leik
Danskir og pólskir dómarar Danski dómarinn Jakob Kehlet er með flautuna í þessum leik. Dómaratríóið í dag og fjórði dómarinn eru allir frá Danmörku en Pólverjar sjá hinsvegar um VAR myndbandsdómgæsluna. Pawel Pskit er VAR dómari.
Fyrir leik
Velkomin á Rínarvöllinn

Ísland mætir Liechtenstein í undankeppni EM 2024 í Liechtenstein.

Leikurinn fer fram á Rínarvellinum í Vaduz, þjóðarleikvangi gestgjafanna í Liechtenstein.

Bæði Ísland og Liechtenstein töpuðu fyrsta leik sínum í undankeppninni, Ísland gegn Bosníu-Hersegóvínu 3-0 og Liechtenstein tapaði 4-0 gegn Portúgal.

Byrjunarlið:
1. Rúnar Alex Rúnarsson (m)
3. Davíð Kristján Ólafsson
4. Guðlaugur Victor Pálsson
7. Jóhann Berg Guðmundsson ('46)
10. Arnór Sigurðsson ('65)
10. Hákon Arnar Haraldsson
11. Alfreð Finnbogason ('65)
11. Jón Dagur Þorsteinsson
16. Stefán Teitur Þórðarson
17. Aron Einar Gunnarsson (f) ('75)
23. Hörður Björgvin Magnússon ('65)

Varamenn:
12. Patrik Gunnarsson (m)
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
2. Alfons Sampsted ('65)
3. Guðmundur Þórarinsson
10. Ísak Bergmann Jóhannesson ('75)
15. Aron Elís Þrándarson
18. Sævar Atli Magnússon
18. Mikael Anderson ('46)
20. Daníel Leó Grétarsson
21. Arnór Ingvi Traustason
22. Andri Lucas Guðjohnsen ('65)
23. Mikael Egill Ellertsson ('65)

Liðsstjórn:
Arnar Þór Viðarsson (Þ)

Gul spjöld:
Alfreð Finnbogason ('56)

Rauð spjöld: