Egilshöll
fimmtudagur 11. maí 2023  kl. 19:15
Lengjudeild karla
Aðstæður: Mjög eðlilegar
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 412
Maður leiksins: Sigurvin Reynisson
Fjölnir 3 - 3 Þróttur R.
1-0 Máni Austmann Hilmarsson ('1)
1-1 Kostiantyn Iaroshenko ('21)
2-1 Júlíus Mar Júlíusson ('67)
3-1 Hákon Ingi Jónsson ('70)
3-2 Hinrik Harðarson ('89)
3-3 Ágúst Karel Magnússon ('94)
Byrjunarlið:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
3. Reynir Haraldsson
4. Júlíus Mar Júlíusson
6. Sigurvin Reynisson ('82)
7. Máni Austmann Hilmarsson ('65)
8. Óliver Dagur Thorlacius
10. Axel Freyr Harðarson ('77)
11. Dofri Snorrason
23. Hákon Ingi Jónsson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson ('65)

Varamenn:
26. Halldór Snær Georgsson (m)
2. Samúel Már Kristinsson ('82)
7. Dagur Ingi Axelsson
9. Bjarni Gunnarsson ('65)
14. Daníel Ingvar Ingvarsson ('65)
20. Bjarni Þór Hafstein
37. Árni Steinn Sigursteinsson ('77)

Liðstjórn:
Gunnar Sigurðsson
Guðmundur Þór Júlíusson
Kári Arnórsson
Úlfur Arnar Jökulsson (Þ)
Einar Jóhannes Finnbogason
Einar Már Óskarsson
Erlendur Jóhann Guðmundsson

Gul spjöld:
Bjarni Gunnarsson ('87)

Rauð spjöld:
@Breiiiiiiiiiii Sölvi Haraldsson
94. mín Leik lokið!
ÞETTA ER BÚIÐ!
Hreint út sagt ótrúlegur leikur! Algjör dramatík undir lokin en Þróttarar voru búnir að hóta jöfnunarmarkinu undir lokin og þetta er eins og blaut tuska í andlitið á Fjölni.

Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
Eyða Breyta
94. mín MARK! Ágúst Karel Magnússon (Þróttur R.), Stoðsending: Stefán Þórður Stefánsson
ÞEIR JAFNAAAA!!!!!
Stefán keyrir upp vinstri kantinn og kemur með bolta á nær sem Ágúst skallar í netið. Sigurjón er mjög ósáttur með sjálfan sig, mér sýndist þetta fara beint á hann og hann hefði átt að gera betur að mínu mati.
Eyða Breyta
94. mín
Þróttarar liggja þessa stundina á Fjölni!
Eyða Breyta
93. mín
Pikul tekur innkastið sem er ekki nógu gott og Reynir setur hann aftur í Pikul og í innkast sem Fjölnir á
Eyða Breyta
92. mín
Þróttarar fylla teigin og ætla að koma með langt innkast!
Eyða Breyta
89. mín MARK! Hinrik Harðarson (Þróttur R.)
Nánast frá miðju!
Það kemur langur bolti fram sem Sigurjón ætlar að hreinsa. Hann er þá kominn langt út úr marki sínu og kemur með misheppnaða hreinsun. Boltinn fer á Hinrik sem er á miðjum vellinum og setur hann í autt mark.
Eyða Breyta
88. mín
Reynir vinnur boltann úti vinstra megin og kemur honum fyrir á Hákon sem stendur í d-boganum en skotið fer mjög hátt yfir.
Eyða Breyta
87. mín Gult spjald: Bjarni Gunnarsson (Fjölnir)
Leiktöf
Eyða Breyta
86. mín
Daníel í góðri stöðu!
Daníel fær boltann frá Reyni sem gerir frábærlega í undirbúningnum. Daníel tekur skotið í fyrsta en það fer rétt yfir markið!
Eyða Breyta
85. mín
Árni nálægt því!
Júlíus vinur boltann og sendir Árna einn í gegn. Hann missir hinsvegar boltann of langt frá sér og Sveinn kemur boltanum í burtu. Árni búinn að vera sprækur eftir að hann kom inn á!
Eyða Breyta
84. mín
Frekar lítið um færi þessar seinustu mínútur. Bæði lið að komast í góðar stöður en lítið um almennileg færi.
Eyða Breyta
82. mín Samúel Már Kristinsson (Fjölnir) Sigurvin Reynisson (Fjölnir)
Fer útaf meiddur
Eyða Breyta
81. mín Gult spjald: Kostiantyn Pikul (Þróttur R.)
Groddaraleg tækling á Sigurvin sem verðskuldar spjald að mínu mati.
Eyða Breyta
78. mín Ágúst Karel Magnússon (Þróttur R.) Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur R.)

Eyða Breyta
77. mín Gult spjald: Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur R.)
Árni Steinn nýkominn inn á og er dúndraður niður af Baldri fyrir utan vítateig Þróttara.
Eyða Breyta
77. mín Árni Steinn Sigursteinsson (Fjölnir) Axel Freyr Harðarson (Fjölnir)
Axel má vera stoltur. Hann var að ógna endalaust með hraða sínum og krafti.
Eyða Breyta
76. mín
Verð að gefa stuðningsmönnum Fjölnis hrós. Þeir hafa ekki hætt að syngja og tralla í kvöld!
Eyða Breyta
75. mín
Fjölnismenn betri
Þessi mörk gerðu mikið fyrir Fjölnismenn. Þeir eru með Þróttarana í köðlunum
Eyða Breyta
74. mín
Góð tilraun
Hinrik með ágætis skot fyrir utan teig sem fer framhjá.
Eyða Breyta
70. mín MARK! Hákon Ingi Jónsson (Fjölnir), Stoðsending: Óliver Dagur Thorlacius
Annað mark!
Þeir eru ekki lengi að bæta við öðru marki. Óliver gerir vel á boltanum rétt fyrir utan vítateig Þróttara og finnur Hákon í lappir sem stendur inn í d-boganum og tekur skotið sem endar í marki. Skotið fór í varnarmann og í netið. Sveinn mjög óheppinn
Eyða Breyta
67. mín MARK! Júlíus Mar Júlíusson (Fjölnir), Stoðsending: Hans Viktor Guðmundsson
Fjölnismenn eru komnir yfir!
Reynir tekur geggjaða hornspyrnu á fjær þar sem Hans er og hann skallar hann fyrir markið þar sem Júlíus bíður eins og refur og dúndrar þessu í markið. Boltinn fór sýndist mér í varnarmann og í netið en Júlíus á þetta mark 100%.
Eyða Breyta
67. mín
Axel og Dofri tengja vel saman úti hægra meginn og fiska hornspyrnu
Eyða Breyta
65. mín
Reynir tæpur!
Reynir með skotið í markmannshornið en það fer rétt framhjá. Sveinn er sigraður í markinu en inn vildi boltinn ekki.
Eyða Breyta
65. mín Daníel Ingvar Ingvarsson (Fjölnir) Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)

Eyða Breyta
65. mín Bjarni Gunnarsson (Fjölnir) Máni Austmann Hilmarsson (Fjölnir)

Eyða Breyta
64. mín
Aukaspyrna á stórættulegum stað sem Fjölnir á
Guðmundur vinnur boltann hátt á vellinum og keyrir á vörn Þróttara og fiskar aukaspyrnu við d-bogann.
Eyða Breyta
62. mín Stefán Þórður Stefánsson (Þróttur R.) Jorgen Pettersen (Þróttur R.)

Eyða Breyta
62. mín Njörður Þórhallsson (Þróttur R.) Emil Skúli Einarsson (Þróttur R.)

Eyða Breyta
61. mín Izaro Abella Sanchez (Þróttur R.) Ernest Slupski (Þróttur R.)

Eyða Breyta
59. mín
Sigurvin vinnur boltann rétt fyrir utan vítateig Þróttara og keyrir inn á teiginn. Hann tekur síðan skotið sem er laust og fer beint á Svein
Eyða Breyta
58. mín
Reynir tekur hornið á fjær þar sem Hans er en hann skallar boltann beint í hendurnar á Svenna
Eyða Breyta
57. mín
Fjölnir fær horn úti hægra megin
Eyða Breyta
56. mín
Sam Hewson með geggjaða fyrirgjöf frá vinstri á Aron en hann er einhverjum sentimetrum frá því að hitta boltann
Eyða Breyta
56. mín
Leikurinn er kominn í gang og Pikul haltrar inn á
Eyða Breyta
54. mín
Pikul liggur niðri. Hann og Hákon fara í skallabaráttu sem endar með því að Hákon hoppar ekki og setur bakið í Pikul sem lendir síðan illa og heldur utan um bakið. Þetta lýtur ekki vel út fyrir Þróttara...
Eyða Breyta
51. mín
Óliver með sendingu meðfram jörðinni í lappir á Hákon sem snýr baki í markið. Hann tekur geggjaðan snúning á Pikul en skotið fer rétt framhjá
Eyða Breyta
50. mín
Reynir minn...
Óliver er mættur inn í vítateig Þróttara og lyftir honum yfir allann pakkann og yfir á Reyni sem á hræðilegt skot í fyrsta framhjá. Hann bara hittir ekki boltann í loftinu
Eyða Breyta
49. mín
Hans skallar þetta í burtu og fer síðan fyrir skot.
Eyða Breyta
48. mín
Ernest er kominn í gegn úti vinstra megin og setur hann út á Hinrik sem á skot í varnarmann og aftur fyrir. Þróttur fær hér horn
Eyða Breyta
46. mín Leikur hafinn
Sam Hewson kemur okkur í gang aftur!

Eyða Breyta
45. mín
Þróttarar mættir til vallar en Fjölnismenn eitthvað seinir út. Vilhjálmur rekur á eftir þeim.
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Ágætis fyrri hálfleikur
Vilhjálmur flautar í hálfeik. Fjölnismenn byrjuðu sterkt en Máni Austmann kom þeim í forystu eftir 50 sekúndur. Þróttarar voru bara algjörlega sofandi og Fjölnismenn refsuðu. Síðan skoraði Iaroshenko sturlað mark beint úr horni! Ekki oft sem maður sér slík mörk en Iaroshenko hefur verið maður leiksins í fyrri hálfleik!

Sjáumst aftur eftir korter
Eyða Breyta
45. mín
Hákon fær boltann rétt fyrir utan D-bogann frá Guðmundi og tekur skotið en það fer hátt yfir.
Eyða Breyta
45. mín
Já sæll Júlíus!
Þróttarar komast í góða skyndisókn. Iarshenko sendir hann út á Hinrik sem er tæklaður af Júlíusi, boltinn fer á Jörgen sem er líka tæklaður af Júlíusi. Síðan stendur Júlíus upp og fer framhjá svona þremur leikmönnum. Þetta var rosalegt!
Eyða Breyta
44. mín
Jörgen fer í skallabaráttuna við Júlíus og brýtur á honum. Fjölnismenn fá aukaspyrnu.
Eyða Breyta
44. mín
Geggjuð skyndisókn hjá Þrótturum!
Sam Hewson keyrir með hann og sendir á Hinrik sem á skot sem fer af Hans og í slána. Þróttur fær horn!
Eyða Breyta
42. mín
Geggjaður Sigurjón!
Jörgen með langan fram á Aron. Geggjuð sending sem fer yfir Júlíus en Sigurjón er snöggur af línunni og hreinsar í innkast.
Eyða Breyta
41. mín
Iaroshenko fær boltann rétt fyrir utan teig. Hann reynir að chippa boltanum yfir varnarlínu Fjölnis á Jörgen sem fer í hlaupið en boltinn fer aftur fyrir í markspyrnu.
Eyða Breyta
39. mín
Pikul liggur eftir. Líklega árakstur við Hans Viktor en þeir skullu saman eftir fyrirgjöf Sigurjóns. Allt í góðu með Hans samt.
Eyða Breyta
38. mín
Sigurvin kemur með slæma fyrirgjöf sem Þróttarar hreinsa niður til Sigurjóns.
Eyða Breyta
37. mín
Jörgen brýtur á Axeli sem er kominn fram fyrir hann. Fjölnismenn vilja gult en fá ekkert fyrir sinn snúð. Góður staður fyrir fyrirgjöf
Eyða Breyta
34. mín
Þróttarar að taka við sér!
Þetta jöfnunarmark gaf Þrótturum klárlega mikið búst. Þeir hafa verið að ógna miklu meira eftir að þeir jöfnuðu.
Eyða Breyta
33. mín
Iaroshenko er að sleppa nokkrum sinnum einn í gegn úti hægra megin og er að koma með hættulega bolta sem Þróttarar eru að nýta illa.
Eyða Breyta
31. mín
Iaroshenko keyrir inn á völlinn og tekur skotið sem fer af hnakkanum á Júlíusi og aftur fyrir
Eyða Breyta
29. mín
Ekkert verður úr horninu. Sveinn gerir vel og kýlir þetta í burtu en Fjölnir halda samt áfram í sókn
Eyða Breyta
28. mín
Fjölnir fær horn
Endar í fyrirgjöf sem er hreinsuð í horn.
Eyða Breyta
26. mín
Fjölnismenn fá aukaspyrnu á miðjum velli milli miðjuboganns og D-bogans.
Eyða Breyta
25. mín
Innkast frá Dofra á Hákon sem liftir honum á Mána sem á laust skot beint á Svein. Varnarleikur Þróttara hefur ekki verið góður þessar fyrstu 25 mínútur.
Eyða Breyta
21. mín MARK! Kostiantyn Iaroshenko (Þróttur R.)
BEINT ÚR HORNI!
Iaroshenko setur hann bara beint úr horni! Hornið er tekið úti vinstra megin og hann setur hann yfir Sigurjón í markinu og í samskeytin fjær. Þetta sér maður ekki á hvejrum degi!
Eyða Breyta
21. mín
Þrottur fær horn
Þróttarar í langri sókn sem endar með langskoti frá Sam Hewson sem fer í Sigurvin og aftur fyrir. Þróttur á horn úti vinstra megin
Eyða Breyta
20. mín
Axel fær boltann úti hægra megin á miðjum velli frá Dofra og prjónar sig upp völlinn og tekur frekar lélegt skot beint á Svein.
Eyða Breyta
18. mín
Máni trítlar inn á völlinn og Fjölnismenn orðnir fullskipaðir aftur
Eyða Breyta
18. mín
Fjölnismenn 10 á móti 11 í smá stund þar sem Máni fékk högg í hnéð
Eyða Breyta
17. mín
Liðin skiptast á að halda í boltann þessa stundina. Þróttarar leyfa Fjölni að halda í boltann og bíða eftir mistökum. Frekar tíðindalítill leikur eftir markið góða hjá Mána
Eyða Breyta
14. mín
Sigurvin heppinn!
Sigurvin með lélega sendingu til baka á Hans sem er skyndilega kominn í kapphlaup við Iarshenko um knöttinn. Hans vinnur kappið og gerir mjög vel og setur hann til baka á Sigurjón.
Eyða Breyta
11. mín
Þróttarar eru að reyna að fara mikið upp hægri vænginn. Eiríkur og Aron að spila vel saman en Júlíus og Reynir eru að gera lífið þeirra erfitt
Eyða Breyta
8. mín
Tæpur!
Hákon með skot fyrir utan teig sem fer af varnarmanni og Sveinn er tæpur að missa hann en þetta reddaðist hjá honum.
Eyða Breyta
7. mín
Uppstillingin
Fjölnir
Sigurjón
Dofri- Júlíus- Hans - Reynir
Gummi - Sigurvinn- Oliver
Axel Freyr - Hakon Ingi - Máni

Þróttur
Sveinn
Eiríkur - Pikul - Baldur - Emil
Sam Hewson - Jörgen P - Yaroshenko
Aron- Hinrik - Ernest
Eyða Breyta
6. mín
Góð tilraun
Iarshenko fær boltann við D-bogann frá Hinrik og tekur skotið framhjá
Eyða Breyta
4. mín
Þeir taka stutt og enda á því að senda hann til baka á Svein
Eyða Breyta
3. mín
Þróttur fær horn eftir gott spil hjá Jörgen og Hinrik
Eyða Breyta
1. mín MARK! Máni Austmann Hilmarsson (Fjölnir), Stoðsending: Axel Freyr Harðarson
50 sek!
Þetta var ekki varnarleikur upp á marga fiska. Axel fær boltann úti hægra megin í vítateig Þróttara og setur hann á Mána sem er aleinn í miðjum vítateig Þróttara og fær allan tímann í heiminum til þess að skjóta. Geggjað slútt samt. Fjölnismenn komnir yfir!
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Þetta er komið í gang!
Fjölnismenn koma þessu í gang!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Jæja þá ganga liðin til vallar og klappa fyrir áhorfendunum
Eyða Breyta
Fyrir leik
Styttist í þetta!
Fólkið er byrjað að tínast inn í stúkuna og liðin ganga til búningsherbergja. Þetta er að fara í gang!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin!
Liðin eru klár og Fjölnismenn halda sig við sama byrjunarlið og vann Ægi í fyrstu umferð. Þróttarar gera eina breytingu frá tapleiknum gegn Leiknismönnum, Hinrik Harðarson kemur inn í liðið fyrir Guðmundur Axel.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Dómaratríóið
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson sér um flaututónleikana í kvöld en aðstoðarmenn hans eru Egill Guðvarður Guðlaugsson og Jakub Marcin Róg. Vilhjálmur er með mikla reynslu sem dómari. Hans fyrsti leikur í B deildinni sem hann dæmdi var árið 2010 en svona lítur út tölfræðin hans í B deildinni:

Leikir: 47
Gul spjöld: 204
Rauðspjöld: 19
Vítaspyrnur dæmdar: 23



Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrrum viðureignir Fjölnis og Þróttar
Fjölnir og Þróttur hafa spilað samtals 37 leiki innbyrðis á vegum KSÍ. Fjölnismenn hafa verið sigurstrangari í þeim viðureignum en þeir hafa unnið allt að tuttugu og tvo sigra gegn Þrótti á meðan Þróttur hefur unnið Fjölni 12 sinnum. Leikirnir milli þessara liða hafa sjaldan endað í jafnteflum eða þrisvar sinnum. Markatalan í þessum 37 leikjum er 94-61 Fjölni í vil.

Seinasti sigur Fjölnis gegn Þrótti kom í Lengjubikarnum í ár en þar fóru leikar 4-1 fyrir Fjölnismönnum.
Seinasta jafnteflið kom í B deildinni árið 2013, sá leikur fór 0-0. Í þeim leik byrjaði einmitt Guðmundur Karl sem er lykileikmaður Fjölnis í dag.
Seinasti Sigur Þróttara gegn Fjölnismönnum kom í Lengjubikarnum árið 2021. Þróttur vann þá 4-3 sigur í Laugardalnum.



Eyða Breyta
Fyrir leik
Fjölnismenn með 2-1 sigur?
Spámaður umferðarinnar er Aron Jóhannsson, miðjumaður Fram, en hann heldur að Fjölnismenn muni hafa betur í kvöld. Hann spáir því að Sam Hewson muni skora eina mark Þróttara í kvöld sem mun ekki duga til úrslita. Aron krossar einnig putta að það muni engin krossbandaslit eiga sér stað í Egilshöllinni í kvöld. En hafði þetta að segja um leikinn:

Fjölnir 2-1 Þróttur R.
„Gæðin í leiknum munu aukast töluvert eftir hann var færður í Egilshöllina og við skulum vona að það kosti ekki krossband þetta kvöldið. Sam Hewson skorar eftir geggjaðan undirbúning frá Aroni Snæ en það mun ekki duga fyrir Þróttara.“




Eyða Breyta
Fyrir leik
Brekka í fyrstu umferð
Þróttarar töpuðu fyrsta leiknum í deildinni gegn Leikni Reykjavík 3-1 á heimavelli. Leikurinn var kaflaskiptur en á endanum var það færanýting Þróttara sem veldur því að þeir tapa gegn Leikni. Þróttarar höfnuðu í öðru sæti í 2. deildinni í fyrra og koma upp með bara ágætis lið. Þeir hafa styrkt sig vel í vetur og eru með spennandi og skemmtilegt lið. Það verður mjög áhugavert að fylgjast með Þrótti í sumar en fólk sem heldur að þetta verður göngutúr í garðinum fyrir Fjölni hafa rangt fyrir sér. Þetta verður hörkuleikur.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Fjölnismenn byrja vel
Fjölnismenn sóttu þrjú stig í fyrstu umferð gegn Ægismönnum. Staðan var 0-0 í hálfleik en Fjölnismenn voru í miklu veseni í allan seinni hálfleik. Síðan fengu þeir vítaspyrnu á 95. mínútu sem Bjarni Gunnarsson tók og tryggði sigur Fjölnismanna. Sterk þrjú stig sem Fjölnismenn sóttu í fyrstu umferð en þeir eiga aftur leik gegn nýliðum í kvöld. Fjölnismenn hafa staðið sig vel í gegnum tíðina inni í Egilshöllinni en seinasti leikur þeirra þar var í bikarnum gegn Breiðablik. Þeir töpuðu 2-0 gegn Íslandsmeisturunum en fengu fullt af færum til þess að koma sér inn í leikinn. Fyrirliðar og þjálfarar spá Fjölnismönnum í 3. sæti í sumar sem kemur ekkert á óvart.



Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikurinn er sýndur beint á Youtube

Eyða Breyta
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Heil og Sæl!
Heil og sæl ágætu lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu úr Egilshöllinni þar sem Fjölnismenn bjóða Þrótturum í heimsókn. Önnur umferð Lengjudeildarinnar fer af stað í kvöld með tveimur leikjum. En það verður annar leikur í gangi á sama tíma í kvöld þar sem Njarðvík og Ægir mætast í Njarðvík.



Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Sveinn Óli Guðnason (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
5. Jorgen Pettersen ('62)
6. Sam Hewson (f)
8. Baldur Hannes Stefánsson ('78)
9. Hinrik Harðarson
10. Ernest Slupski ('61)
15. Aron Snær Ingason
26. Emil Skúli Einarsson ('62)
33. Kostiantyn Pikul
99. Kostiantyn Iaroshenko

Varamenn:
25. Óskar Sigþórsson (m)
3. Stefán Þórður Stefánsson ('62)
4. Njörður Þórhallsson ('62)
11. Ágúst Karel Magnússon ('78)
17. Izaro Abella Sanchez ('61)
19. Theodór Unnar Ragnarsson
28. Ólafur Fjalar Freysson

Liðstjórn:
Jóhann Gunnar Baldvinsson
Baldvin Már Baldvinsson
Ian David Jeffs (Þ)
Angelos Barmpas
Marek Golembowski
Ben Chapman
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir

Gul spjöld:
Baldur Hannes Stefánsson ('77)
Kostiantyn Pikul ('81)

Rauð spjöld: