Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
Lengjudeild karla
Fjölnir
LL 1
1
Dalvík/Reynir
Besta-deild kvenna
Breiðablik
LL 1
0
Fylkir
Besta-deild kvenna
Víkingur R.
LL 0
0
Þróttur R.
Stjarnan
3
2
FH
Andrea Mist Pálsdóttir '20 1-0
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir '55 2-0
Andrea Mist Pálsdóttir '62 3-0
Arna Dís Arnþórsdóttir '82 , sjálfsmark 3-1
3-2 Margrét Brynja Kristinsdóttir '94
31.08.2023  -  18:00
Samsungvöllurinn
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Aðstæður: Gola,skýjað og hiti um 12 gráður
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Áhorfendur: 103
Maður leiksins: Andrea Mist Pálsdóttir
Byrjunarlið:
83. Erin Katrina Mcleod (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
5. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('78)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
11. Betsy Doon Hassett ('78)
15. Hulda Hrund Arnarsdóttir ('18)
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir ('78)
24. Málfríður Erna Sigurðardóttir
26. Andrea Mist Pálsdóttir

Varamenn:
1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
2. Sóley Guðmundsdóttir
5. Eyrún Embla Hjartardóttir
17. María Sól Jakobsdóttir ('78)
18. Jasmín Erla Ingadóttir ('18)
19. Hrefna Jónsdóttir ('78)
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('78)

Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Andri Freyr Hafsteinsson
Rajko Stanisic
Hilmar Þór Hilmarsson
Benjamín Orri Hulduson
Hulda Björk Brynjarsdóttir
Perry John James Mclachlan

Gul spjöld:
Kristján Guðmundsson ('80)
Sædís Rún Heiðarsdóttir ('83)

Rauð spjöld:
Leik lokið!

Sigur Stjörnunnar staðreynd, tölurnar gefa til kynna nokkuð jafnan leik en Stjarnan var með þetta allt í teskeið nema í blálokin þegar gestirnir herjuðu á og uppskáru góð mörk.
94. mín MARK!
Margrét Brynja Kristinsdóttir (FH)
Stoðsending: Mackenzie Marie George

Mackenzie með boltann úti til hægri. Leikur upp að endamörkum og nær fínni fyrirgjöf beint á kollinn á Margréti sem skilar boltanum í netið.
90. mín
Uppbótartími er að minnsta kosti fimm mínútur.
89. mín
Harpa Helgadóttir með hörkuskot af löngu færi sem Erin á í basli með, sér þann kost vænstan að slá boltann í horn.

Upp úr horninu verður svo ekkert.
83. mín Gult spjald: Sædís Rún Heiðarsdóttir (Stjarnan)
Brýtur af sér úti við hliðarlínu hægra megin til móts við vítateig Stjörnunar.

Gestirnir með aukaspyrnu á prýðisstað til fyrirgjafar sem ekkert varð úr.
82. mín SJÁLFSMARK!
Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjarnan)

Fær boltann í sig í markteignum undir pressu eftir fyrirgjöf frá hægri frá Thelmu Karen, Slysalegt mark en lítið sem hún gat svo sem gert.
80. mín Gult spjald: Kristján Guðmundsson (Stjarnan)
Eitthvað ósáttur við að ekki hafi verið dæmt brot og lætur einhver orð falla.
78. mín
Inn:Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan) Út:Betsy Doon Hassett (Stjarnan)
78. mín
Inn:Hrefna Jónsdóttir (Stjarnan) Út:Heiða Ragney Viðarsdóttir (Stjarnan)
78. mín
Inn:María Sól Jakobsdóttir (Stjarnan) Út:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
77. mín
Inn:Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir (FH) Út:Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (FH)
76. mín
Thelma Karen með skot/fyrirgjöf úr teignum hægra megin. Finnur hvorki samherja né markið og markspyrna niðurstaðan.
73. mín Gult spjald: Margrét Brynja Kristinsdóttir (FH)
Professional foul. Tekur spjaldið á sig fyrir peysutog af augljósari gerðinni. Stöðvar þó skyndisókn.
71. mín
Málfríður Erna skóflar boltanum yfir af stuttu færi eftir hornspyrnu.

Stjörnukonur líklegar í hvert skipti sem þær nálgast mark FH.
68. mín
Inn:Thelma Karen Pálmadóttir (FH) Út:Elísa Lana Sigurjónsdóttir (FH)
68. mín
Inn:Andrea Marý Sigurjónsdóttir (FH) Út:Colleen Kennedy (FH)
68. mín
Inn:Harpa Helgadóttir (FH) Út:Rachel Avant (FH)
68. mín
Inn:Erla Sól Vigfúsdóttir (FH) Út:Esther Rós Arnarsdóttir (FH)
67. mín
Guðni og Hlynur eru að undirbúa fjórfalda skiptingu að mér sýnist.
65. mín
FH liðið hafði verið að reyna byggja upp sóknir mínúturnar á undan markinu og hafði þrýst liði sínu ofar á völlinn. Stjarnan nýtt sín tækifæri til að sækja hratt vel hér í síðari hálfleik.
62. mín MARK!
Andrea Mist Pálsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Betsy Doon Hassett
Geðveik afgreiðsla hjá Andreu
Hröð sókn Stjörnunar skilar marki. Boltinn berst til Betsy í teignum sem gerir virkilega vel að halda frá sér varnarmanni og leggja boltann á Andreu sem að snýr boltann glæsilega fram hjá Aldísi í markinu.
55. mín MARK!
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Andrea Mist Pálsdóttir
Skyndisókn eins og þær eiga að vera. Stjörnukonur losa pressuna og keyra upp völlinn. Andrea Mist með boltann úti til hægri þræðir boltann í hlaupaleiðina fyrir Gunnhildi sem gerir virkilega vel í að setja boltann með jörðinni yfir í hornið fjær, óverjandi fyrir Aldísi í marki FH:
53. mín
Elísa Lana með skot úr teignum en varnarmenn henda sér fyrir og verjast vel.

FH að þjarma að Stjörnunni þessa stundina en tekst ekki að komast í afgerandi færi,
49. mín
Darraðardans í teig Stjörnunar eftir hornið en heimakonur koma boltanum frá í horn.

Anna María liggur eftir seinna hornið og kennir sér meins. Fljót á fætur þó og virðist í lagi eftir smá aðhlynningu.
48. mín
FH sækir hornspyrnu.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Heimakonur sparkar þessu í gang.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér á Samsungvellinum. Heimakonur leiða eftir nokkuð jafnan leik. Kaffi og komum aftur að vörmu spori.
45. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma. Meiðsli Huldu sjá að mestu þar um.
44. mín
Margrét Brynja með alvöru neglu frá vinstra vítateigshorni sem stefnir efst í hornið nær. Erin vel á verði og slær boltann glæsilega yfir slánna.

Kýlir svo hornspyrnuna í kjölfarið frá.
42. mín
Gestirnir að vakna? Shaina með hættulegan bolta fyrir mark Stjörnunar sem Mackenzie er hársbreidd frá því að komast í.
41. mín
Mackenzie með skotið úr D-boganum en nær engum krafti í það og á Erin ekki í teljandi vandræðum með að handsama boltann.
35. mín
Litla varslan! Jasmín með hörkuskot sem fer af varnarmanni og er að snúast beint í vinkillinn fjær, Aldís gríðarlega vel á verði og ver með tilfþrifum.
30. mín
Mjög rólegt yfir þessu hér á Samsung. Boltinn mikið á miðjum vellinum,

Stjarnan þó heilt yfir líklegri frá mér séð,
24. mín
Colleen reynir skotið fyrir gestina af talsverðu færi en beint í fang Erin í markinu.
20. mín MARK!
Andrea Mist Pálsdóttir (Stjarnan)
Hrikaleg sending úr vörninni leiðir til marks.
Boltinn úr varnarlínu beint fyrir fætur Andreu sem er um 10 metra fyrir utan teig. Fær tíma til að færa sig að vítateigslínunni þaðan sem hún lætur vaða og boltinn smellur í slánni og inn.

Gjöf sem hún þáði með þökkum og gerði sitt virkilega vel.
18. mín
Inn:Jasmín Erla Ingadóttir (Stjarnan) Út:Hulda Hrund Arnarsdóttir (Stjarnan)
Hulda getur ekki haldið leik áfram. Jasmín kemur í hennar stað.
16. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er FH.

Spyrnan fyrir markið góð en skalli Örnu Eiríks hittir ekki markið.
15. mín
Margrét Brynja með lúmskan bolta fyrir mark Stjörnunar, en vantar meiri áræðni í liðsfélaga hennar í teignum til að ráðast á boltann.
12. mín
Hulda Hrund situr á vellinum og þarfnast aðhlynningar, tapaði boltanum í klafsi á miðvæðinu og hefur líklegast fengið eitthvað högg.

Reikna með að hún harki þetta af sér.
8. mín
Fyrsta markverða tilraun leiksins. Elísa Lana fær boltann við vinstra vítateigshorn, Leikur aðeins inn á völlinn og lætur vaða. Erin ekki í vandræðum með þetta í markinu.
4. mín
Stirðbusaleg byrjun á þessum leik og liðin í basli með að halda boltanum innan sinna raða.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér á Samsung vellinum. Það eru gestirnir sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Spákona umferðarinnar Helena Ólafsdóttir þáttarstýra í Bestu mörkunum spáði í umferðina fyrir Fótbolta.net

Stjarnan 2 - 1 FH
Tvö jöfn lið að mætast sem hefur báðum liðið vel undanfarið. Stjörnustelpur hafa verið að sækja vopn sín og fundið aftur sína styrkleika. FH er með nokkra leikmenn að láni frá Stjörnunni sem mun veikja þeirra lið. Ég spái því Stjörnunni sigri 2-1 og held að Andrea Mist byrji inná í þessum leik og skori allavega eitt mark.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fyrri viðureignir í ár. Sigur á haus er niðurstaða úr fyrri leikjum liðanna á þessu tímabili. Svo merkilegt sem það nú hafa leikirnir unnist á útivelli og ætti því sigurinn að fara til Hafnarfjarðar haldi sú formúla sér í kvöld.

12. júní síðastliðinn mættust liðin hér á Samsung og hafði FH þar 0-2 útisigur. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir og Esther Rós Arnarsdóttir gerðu þar mörk FH. Stjarnan fór svo í heimsókn í Kaplakrika fyrir tæpum hálfum mánuði og hafði þar 0-1 sigur en mark Stjörnunar skoraði Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Fyrir leik
Fyrsta sinn úrslitakeppni
Líkt og áður segir er þetta fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppni Bestu deildarinnar. Við þekkjum þetta format frá karladeildinni í fyrra og vonandi að á komandi árum muni það færa okkur spennu og skemmtilega leiki þar sem allt er undir.
Fyrir leik
Hvað er undir?
Valur virðist vera að stinga af og mun að öllum líkindum verja Íslandsmeistaratitil sinn. Fyrir liðin sem mætast hér í dag er þó að ýmsu að keppa. 15 stig eru í boði í pottinum og eiga bæði þessi lið raunhæfa möguleika á að tryggja sér annað sæti deildarinnar og þar með evrópusæti fyrir næsta tímablil.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Úrslitakeppni Bestu deildar kvenna fer af stað
Heil og sæl kæru lesendur og verið yelkomin i þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Stjörnunar og FH í Bestu deild kvenna.
Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
Shaina Faiena Ashouri
2. Lillý Rut Hlynsdóttir (f)
5. Arna Eiríksdóttir (f)
7. Rachel Avant ('68)
14. Mackenzie Marie George
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('68)
19. Esther Rós Arnarsdóttir ('68)
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('77)
33. Colleen Kennedy ('68)

Varamenn:
3. Erla Sól Vigfúsdóttir ('68)
11. Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir ('77)
22. Harpa Helgadóttir ('68)
23. Andrea Marý Sigurjónsdóttir ('68)
40. Vigdís Edda Friðriksdóttir
42. Thelma Karen Pálmadóttir ('68)

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Guðmundur Jón Viggósson
Birta Hafþórsdóttir

Gul spjöld:
Margrét Brynja Kristinsdóttir ('73)

Rauð spjöld: