Chelsea tilbúið að losa Mudryk - Zubimendi sér eftir því að hafa hafnað Liverpool
Valur
4
1
KR
Lúkas Logi Heimisson '14 1-0
Lúkas Logi Heimisson '22 2-0
2-1 Aron Sigurðarson '60
Patrick Pedersen '76 3-1
Tryggvi Hrafn Haraldsson '91 4-1
16.09.2024  -  19:15
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta-deild karla
Aðstæður: Rok og rigning
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Lúkas Logi Heimisson
Byrjunarlið:
31. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Hörður Ingi Gunnarsson
8. Jónatan Ingi Jónsson
9. Patrick Pedersen ('90)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson (f)
14. Albin Skoglund ('73)
17. Lúkas Logi Heimisson ('80)
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Jakob Franz Pálsson
23. Gylfi Þór Sigurðsson

Varamenn:
1. Frederik Schram
5. Emil Nönnu Sigurbjörnsson
11. Sigurður Egill Lárusson ('80)
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson ('73)
19. Orri Hrafn Kjartansson ('90)
27. Mattías Kjeld
33. Helber Josua Catano Catano

Liðsstjórn:
Srdjan Tufegdzic (Þ)
Haukur Páll Sigurðsson
Kjartan Sturluson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Örn Erlingsson
Viktor Unnar Illugason

Gul spjöld:
Lúkas Logi Heimisson ('28)
Kristinn Freyr Sigurðsson ('56)
Patrick Pedersen ('56)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sterkur sigur Valsara staðreynd.
Viðtöl og skýrsla innan skams.
95. mín
Gyrðir Hrafn með skot rétt yfir mark Valsara.
91. mín MARK!
Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
Stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson
Valsarar gefa ekkert eftir Orri Hrafn þræðir Tryggva í gegn sem klárar fagmannlega. Valsarar að setja síðasta naglann í kistuna.
91. mín
Fimm mínútum bætt við
90. mín
Birgir Steinn með skalla á markið sem Ögmundur ver örugglega.
90. mín
Inn:Orri Hrafn Kjartansson (Valur) Út:Patrick Pedersen (Valur)
85. mín
Inn:Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (KR) Út:Axel Óskar Andrésson (KR)
85. mín
Inn:Jón Arnar Sigurðsson (KR) Út:Aron Þórður Albertsson (KR)
84. mín
KR-ingar fá hornspyrnu.
80. mín
Inn:Sigurður Egill Lárusson (Valur) Út:Lúkas Logi Heimisson (Valur)
76. mín MARK!
Patrick Pedersen (Valur)
Klaufalegir KR-ingar KR-ingarnir Finnur Tómas og Birgir Steinn skella saman og hleypa Pedersen einum í gegn sem tekur skotið sem fer í Axel Óskar og í netið.

Þetta er eins klaufalegt og það gerist.

14. mark Pedersen á tímabilinu.
75. mín
Baulað hressilega á Ástbjörn úr stúkunni eftir tæklinguna á Gylfa fyrr í leiknum.
73. mín
Inn:Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur) Út:Albin Skoglund (Valur)
70. mín
Inn:Alex Þór Hauksson (KR) Út:Theodór Elmar Bjarnason (KR)
68. mín
KR-ingar ógna! Aron Sig klobbar Orra Sigurð og er kominn í góða stöðu í teig Valsara og vippar boltanum rétt yfir mark heimamanna.
Þarna munaði mjóu.
65. mín
Axel Óskar með skalla rétt framhjá eftir hornspyrnu.
64. mín
Mikill meðbyr með KR-ingum þessa stundina.
60. mín MARK!
Aron Sigurðarson (KR)
Stoðsending: Benoný Breki Andrésson
Við fáum leik! Aron Sig með skot úr þröngri stöðu sem endar í netinu, set spurningamerki við markvörsluna þarna.
Greinilegt að við fáum alvöru spennu hérna á Hlíðarenda!
59. mín
Ömmi stálheppinn Ögmundur hreinsar boltann frá marki en boltinn fer beint í Benóný sem pressar vel en boltinn dettur svo beint aftur í fangið á Ömma.
57. mín
Skoglund kominn í góða stöðu í teig KR en Birgir Steinn verst vel og kemur boltanum frá.
56. mín Gult spjald: Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
Spjaldaveisla hér á Hlíðarenda eftir tæklingu Ástbjarnar.
56. mín Gult spjald: Patrick Pedersen (Valur)
56. mín Gult spjald: Aron Sigurðarson (KR)
56. mín Gult spjald: Ástbjörn Þórðarson (KR)
Rétt að mínu mati að gefa Ástbirni bara gult, hefði verið full mikið að gefa rautt á tæklinguna á Gylfa.
54. mín
Hiti kominn í leikinn Ástbjörn þrumar Gylfa niður sem liggur óvígur eftir. Leikmenn Vals hópast að Ástbirni en Túfa, þjálfari Vals skýlir Ástbirni.
52. mín
KR-ingar halda betur í boltann en ógna lítið hér í upphafi seinni hálfleiks.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað Gestirnir byrja með boltann.
46. mín
Inn:Birgir Steinn Styrmisson (KR) Út:Atli Sigurjónsson (KR)
Óskar gerir breytingu í hálfleik.
Birgir kemur í hægri bakvörð og Jóhannes Kristinn fer upp á miðju.
45. mín
Hálfleikur
Jóhann Ingi flautar til hálfleiks, skemmtilegum fyrri hálfleik lokið þar sem Valsarar leiða sanngjarnt.
45. mín
Einni mínútu bætt við
44. mín
Skemmtileg tilraun! Pedersen með lúmskt skot langt fyrir utan teig og reynir að lyfta boltanum yfir Guy Smit sem gerir vel og ver boltann í horn.
Þetta hefði verið eitt af mörkum tímabilsins.
44. mín
Benóný Breki með skalla að marki sem Ögmundur ver örugglega.
42. mín
Ekki mikið að frétta síðustu mínútur.
33. mín
Lúkas Logi aftur í færi Fær boltann út í teiginn en á kraftlítið skot sem Smit ver örugglega.
32. mín Gult spjald: Luke Rae (KR)
28. mín Gult spjald: Lúkas Logi Heimisson (Valur)
Lúkas spjaldaður fyrir dýfu.
27. mín
23. mín
Albin Skoglund með fast skot á markið sem Smit ver vel.
22. mín MARK!
Lúkas Logi Heimisson (Valur)
Stoðsending: Jónatan Ingi Jónsson
Sama uppskrift Jónatan aftur með hælsendingu á Lúkas Loga sem neglir boltanum uppi í hornið fyrir utan teig, alvöru sleggja.
14. mín MARK!
Lúkas Logi Heimisson (Valur)
Stoðsending: Jónatan Ingi Jónsson
Alvöru mark! Lúkas og Jónatan spila frábærlega á milli sín. Jónatan hælar hann fyrir Lúkas sem neglir boltanum í fjærhornið fyrir utan teig, Guy Smit reynir ekki einu sinni við boltann!

6. mín
Benóný Breki með skot úr teignum sem fer í varnarmann, boltinn berst á Atla Sigurjóns sem tekur skotið en aftur fer boltinn í varnarmann.
6. mín
Birkir Már með skot fyrir utan teig sem Smit ver örugglega.
5. mín
Patrick Pedersen fellur við vítateigslínu og biður um vítaspyrnu, Jóhann Ingi dæmir ekkert.
4. mín
Valsarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Þetta er farið af stað! Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar, mætingin hefur verið betri en slæmt veður fælir fólk eflaust frá.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Túfa gerir fimm breytingar á liði sínu frá síðasta leik.
Inn í byrjunarliðið koma þeir Jakob Franz, Albin Skoglund, Hörður Ingi, Kristinn Freyr og Lúkas Logi.
Aron Jóhannson og Hólmar Örn eru báðir í leikbanni og eru því utan hóps.


KR mættu Víkingum síðastliðinn föstudag, leikurinn endaði með 0-3 tapi KR. Óskar Hrafn gerir 3 breytingar á liði sínu frá þeim leik.
Inn í liðið koma þeir Atli Sigurjónsson, Jóhannes Kristinn Bjarnason og Finnur Tómas Pálmason.
Fyrir leik
Gary Martin spáir í spilin Gary Martin fyrrverandi framherji beggja liða spáir jafntefli í hörkuleik.

Valur 2-2 KR

,,It won’t be like 2013 and 2019 when KR win the league at Valur but they put a serious dent in their chances with a a draw. The best squad in country is held to a draw by Atli Sig and his long golden hair with 2 screamers. The Danish goal machine Paddy P gets both goals for Valur."

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Graham Potter í stúkunni Fyrrverandi stjóri Chelsea, Graham Potter verður á Hlíðarenda í kvöld samkvæmt heimildum Vísis.

Potter hélt fyrirlestur á UEFA Pro þjálfaranámskeiði í höfuðstöðvum KSÍ nú á dögunum.


Mynd: EPA

Fyrir leik
Gylfi klár í kvöld Gylfi Þór Sigurðsson verður með Val gegn KR í Bestu deildinni í kvöld. Veikindin sem herjuðu á hann í landsliðsverkefninu hafa ekki haft frekari áhrif á hann.

„Hann er klár í slaginn og hefur æft alla daga með okkur síðan hann kom frá landsliðinu. Hann er alveg tilbúinn." Sagði Túfa, þjálfari Vals í hádegisfréttum Bylgjunnar.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Ólík verkefni Fjórtán stig skilja liðin að, Valsarar eru í baráttu um Evrópusæti en KR-ingar er þremur stigum frá fallsæti.

Í síðustu fimm leikjum hefur Valur fengið 7 stig, gengi FH er svipað en þeir hafa fengið 6 stig í síðustu fimm leikjum.

Óhætt er að segja að tímabil beggja liða hafi verið mikil vonbrigði, enda einu liðin sem hafa haft þjálfaraskipti.


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Fyrir leik
Reykjavíkurslagur! Heilir og sælir lesendur góðir og veriði velkomin í beina textalýsingu frá Hlíðarenda, þar sem Valur tekur á móti KR.
Leikurinn er liður í 22. umferð Bestu-deildar karla sem er síðasta umferð fyrir tvískiptingu.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
2. Ástbjörn Þórðarson
3. Axel Óskar Andrésson ('85)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Benoný Breki Andrésson
11. Aron Sigurðarson
16. Theodór Elmar Bjarnason (f) ('70)
17. Luke Rae
23. Atli Sigurjónsson ('46)
29. Aron Þórður Albertsson ('85)

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
5. Birgir Steinn Styrmisson ('46)
6. Alex Þór Hauksson ('70)
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('85)
19. Eyþór Aron Wöhler
25. Jón Arnar Sigurðsson ('85)
26. Alexander Rafn Pálmason

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Sigurður Jón Ásbergsson
Jamie Paul Brassington
Guðjón Örn Ingólfsson
Vigfús Arnar Jósefsson
Jón Birgir Kristjánsson
Guðmundur Óskar Pálsson

Gul spjöld:
Luke Rae ('32)
Ástbjörn Þórðarson ('56)
Aron Sigurðarson ('56)

Rauð spjöld: