Fotbolti.net
@maggimarMagnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Pepsi-deild karla 2017
Valsvöllur
Gervigrasið blautt og logn. Topp aðstæður
Valur
Valur
2 - 0
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Dion Jeremy Acoff 65'1 - 0Nikolaj Andreas Hansen 80'2 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

SKÝRSLAN: Varnarveggur Víkings féll að lokum

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var einstefna frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu en það tók Valsara þó 65 mínútur að brjóta ísinn. Valsmenn gáfu tóninn strax á upphafsmínutunum og einungis döpur færanýting þeirra og stórleikur Cristian í markinu komu í veg fyrir að sigurinn yrði stærri.

Bestu leikmenn

1. Dion Acoff (Valur)

Ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti. Skoraði eitt mark og skapaði mikla hættu allan leikinn.

2. Cristian Martinez (Víkingur Ó.)

Það er ekki oft sem leikmaður í tapliði kemst á blað hér en Cristian hélt Ólsurum lengi á floti í leiknum.

Atvikið

Fyrra mark Valsara. Fögnuðurinn var mikill hjá Dion og liðsfélögum hans þegar þeir náðu loksins að brjóta ísinn um miðbik síðari hálfleiks. Erfið fæðing.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn byrja betur en undanfarin tvö ár þar sem þeir hafa tapað á heimavelli í fyrstu umferð. Ólsarar fá hins vegar ekki fljúgandi start eins og í fyrra.

Vondur dagur

Vinstri bakvörðurinn ungi Hörður Ingi Gunnarsson fékk það óöfundsverða hlutverk lengi vel að eiga við Dion og hann var í basli, sérstaklega í fyrri hálfleik.

Dómarinn - 8

Það sást lítið til Péturs og það er oftast merki um góðan dag hjá dómurum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.