Fotbolti.net
@einarkarasonEinar Kristinn Kárason
Pepsi-deild karla 2017
Hásteinsvöllur
Ágætisveður. Blautt en vindur í sögulegu lágmarki. Völlur í flottu standi.
ÍBV
ÍBV
0 - 0
Fjölnir
Fjölnir
Hafsteinn Briem 14'
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: Bragðdauft jafntefli í Vestmannaeyjum

Hvað réði úrslitum?

Fjölnir sóttu mun meira allan leikinn manni fleiri og voru líklegri aðilinn til að ná öllum stigunum úr leiknum en allt kom fyrir ekki og niðurstaðan jafntefli.

Bestu leikmenn

1. Derby Carillo

Stóð vaktina í markinu mjög vel.

2. Birnir Snær Ingason

Kom inná í hálfleik og var virkilega sprækur þessar 45 mínútur. Skemmtilegur leikmaður þarna á ferð.

Atvikið

Rauða spjaldið á Hafstein Briem. Eftir mistök í vörninni braut Hafsteinn á Marcus Solberg og rændi hann upplögðu marktækifæri. Fékk fyrir það reisupassann.

Hvað þýða úrslitin?

Eitt stig á lið. Eyjamenn sennilega sáttari eftir leik miðað við hvernig hann spilaðist. Einum fleiri fengu Fjölnismenn helling af hornspyrnum og áttu miklu fleiri marktækifæri.

Vondur dagur

Hafsteinn Briem. Fauk af velli eftir korter í fyrsta leik og í banni í næsta leik. Grimmt. Honum refsað innilega fyrir mistök félaga sinna.

Dómarinn - 7

Rauða spjaldið sennilega réttur dómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.