Fotbolti.net
@mattimattMatthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Pepsi-deild karla 2017
Norðurálsvöllurinn
Flottar aðstæður á Norðurálsvellinum. Næstum logn og léttskýjað
ÍA
ÍA
2 - 4
FH
FH
0 - 115' Steven LennonTryggvi Hrafn Haraldsson 28'1 - 1Tryggvi Hrafn Haraldsson 33'2 - 12 - 235' Steven Lennon2 - 366' Kristján Flóki Finnbogason2 - 478' Steven Lennon
Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Þrennon - Steven Lennon skoraði þrjú á móti ÍA

Hvað réði úrslitum?

Leikkerfi FH 3-4-3 gerir það að verkum að það er unun að horfa á FH liðið spila. Þeir eru vel skipulagðir og vinna eins og smurð vél. Þrátt fyrir að hafa fengið tvö mörk á sig í dag að þá var upplifunin sú mestan hluta leiksins að FH myndi sigra í dag.

Bestu leikmenn

1. Steven Lennon

Maður sem skorar þrjú mörk og þar af eitt stórglæsilegt er óhjákvæmilega maður leiksins.

2. Tryggvi Hrafn Haraldsson

Tryggvi Hrafn skoraði tvö fyrir ÍA í dag. Hann spilaði 16 leiki sem framherji í fyrra og skoraði eitt mark. Vill gera betur á þessu ári og byrjar vel.

Atvikið

Steven Lennon skoraði sitt þriðja mark og fjórða mark FH eftir hreint geggjaða sókn. Frábær fyrsti leikur hjá Lennon og þetta þriðja mark slökkti endanlega vonir Skagamanna um að fá eitthvað út úr leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrsti leikur tímabilsins hefur kannski ekki mikið að segja nema það að gefa mönnum sjálfstraust og alltaf gott að byrja á sigri og það gerðu FH í dag. Skagamenn þurfa þó ekki að örvænta miðað við leikinn. Þeir stóðu á tímabili vel í hárinu á FH en gæði FH voru bara meiri.

Vondur dagur

Böddi löpp átti að fjúka útaf þegar hann rak tánna í höfuð Þórð Þorsteins Þórðarssonar. Hafði fengið gult skömmu áður. Var úthrópaður á twitter og Óskar Hrafn sérfræðingur Pepsi markanna sagði að Böddi væri að haga sér eins og fífl þegar Óskar var að lýsa leiknum á Stöð 2 Sport 2.

Dómarinn - 6

Þegar leikmaður sparkar/rekur löppina í höfuð liggjandi manns að þá gefur þú rautt spjald.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.