Fotbolti.net
Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Pepsi-deild karla 2017
Norðurálsvöllurinn
Flottar aðstæður. 7 stiga hiti og smá gola.
ÍA
ÍA
2 - 4
Valur
Valur
0 - 121' Sigurður Egill Lárusson (víti)0 - 234' Guðjón Pétur LýðssonÞórður Þorsteinn Þórðarson 39'1 - 21 - 359' Haukur Páll SigurðssonRobert Jerzy Menzel 75'2 - 32 - 493' Nikolaj Andreas Hansen
Dómari: Þorvaldur Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

SKÝRSLAN: Sanngjarn Valssigur á Akranesi

Hvað réði úrslitum?

Spilamennska Vals. Mæta virkilega ferskir til leiks á þessu Íslandsmóti. Voru miklu betri í þessum leik. Flott spilamennska og góður sigur.

Bestu leikmenn

1. Guðjón Pétur Lýðsson

Virkilega góður í þessum leik og skoraði gott mark.

2. Dion Acoff

Mjög sprækur á kantinum. Hefði átt að skora í þessum leik.

Atvikið

Ætla að velja markið sem Þórður Þorsteinn skoraði. Skagamenn fengu aukaspyrnu útá vinstri kantinum og Þórður setti boltann í vinkillinn fjær. Spurning hvort þetta var skot eða fyrirgjöf en engu að síður geggjað mark.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn tylla sér topp deildarinnar með fullt hús stiga. Skagamenn aftur á móti komnir á hinn endann með 0 stig og búnir að fá á sig 8 mörk í fyrstu tveimur leikjunum.

Vondur dagur

Nokkrir leikmenn í Skaga liðinu sem koma til greina en ég ætla að velja Rashid Yussuff. Sást bara ekki í leiknum og var skipt útaf í hálfleik. Verður að rífa sig í gang.

Dómarinn - 8

Solid 8 á Þorvald og hans menn. Alltaf eitthvað sem menn geta kannsi sett útá en þetta var virkilega fínt í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.