Fotbolti.net
Alexander Freyr Tamimi
Alexander Freyr Tamimi
Pepsi-deild karla 2017
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
1 - 2
Grindavík
Grindavík
Geoffrey Wynton Mandelano Castillion 25'1 - 01 - 167' Alexander Veigar Þórarinsson 1 - 290' Andri Rúnar Bjarnason
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

SKÝRSLAN: Ótrúlegur baráttusigur Grindavíkur

Hvað réði úrslitum?

Frábær barátta í Grindavík. Heimamenn í Víkingi geta sjálfum sér kennt að hafa ekki klárað leikinn. Fengu nokkur færi eftir að hafa komist í 1-0, voru miklu betri í fyrri hálfleik og höfðu ágætis tök á þeim síðari þar til þeir fengu skyndilega á sig jöfnunarmark upp úr skyndisókn. Grindvíkingar voru líflegir eftir að hafa jafnað metin og héldu áfram að pressa. Andri Rúnar skorar síðan sigurmarkið í blálokin á leiknum.

Bestu leikmenn

1. Kristijan Jajalo

Þrátt fyrir að hafa fengið á sig mark átti Jajalo frábæran leik í marki Grindavíkur. Hann varði stórglæsilega frá Castillion í stöðunni 1-0 og svo aftur frá Halldóri Smára. Þar fyrir utan var hann öruggur í öllum sínum aðgerðum og ég hef ekki tölu á því hversu marga bolta hann klófesti. Gegndi í raun lykilhlutverki í endurkomu gestanna.

2. Gunnar Þorsteinsson

Var með tvær baneitraðar stoðsendingar í leiknum sem skiluðu sér í mörkum.

Atvikið

Dramatískt sigurmark Grindavíkur. Andri Rúnar tryggir nýliðunum ótrúlegan sigur gegn gömlu félögunum með skallamarki í uppbótartíma. Betra gerist það ekki!

Hvað þýða úrslitin?

Heimamenn ná ekki að byggja ofan á frábæran útisigur gegn KR í fyrstu umferðinni og þurfa að sætta sig við ótrúlegt tap í fyrsta heimaleik. Grindavík nær hins vegar frábærum sigri eftir að hafa þurft að þola svekkjandi jafntefli í fyrstu umferð gegn Stjörnunni. Grindavík er með fjögur stig en Víkingur þrjú.

Vondur dagur

Ansi vondur dagur fyrir Milos Milojevic, sem er væntanlega brjálaður út í sína menn. Það datt allur botn úr þeirra leik eftir jöfnunarmark Grindavíkur og hann þarf að finna hvað fór úrskeiðis.

Dómarinn - 7

Vilhjálmur átti mjög fínan leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.