SKÝRSLAN: KA kjaftshögg í Krikanum
Hvað réði úrslitum?
Ótrúleg lokasókn KA réði í raun úrslitum í kvöld. Þetta var mikill baráttuleikur, tæklingar og spjöld, og á heildina litið sanngjörn úrslit.
Bestu leikmenn
1. Hallgrímur Mar
Skoraði glæsilegt mark og átti geggjaða stoðsendingu í sigurmarkinu. Flottur leikur hjá Grímsa.
2. Callum Williams
Var öflugur í vörninni og átti líka hættulega marktilraun.
Atvikið
Jöfnunarmark KA hlýtur þessa nafnbót. Þvílík dramatík! Frábær fyrirgjöf frá Hallgrími Mar á Ásgeir Sig sem skallaði boltann í netið af stuttu færi. Hversu oft hafa FH lokað svona leikjum þar sem þeir eru yfir en fá á sig áhlaup í lokin? Virkilega öflugt hjá KA
Hvað þýða úrslitin?
KA er með fjögur stig eftir tvo útileiki. Það er virkilega öflugt hjá nýliðunum í deildinni. FH er einnig með fjögur stig og lítur væntanlega á það sem vonbrigði.
Vondur dagur
Bergsveinn var slakur í dag sem og Þórarinn Ingi. Verstan dag átti þó Steinþór Freyr sem kom inn á af bekknum en þurfti að fara út af aftur vegna meiðsla.
Dómarinn - 7,5
Hélt sinni línu vel og virðist hafa verið með stóru málin á hreinu. Smærri atriði stundum skrýtin en ágætur leikur hjá Pétri löggu.



