
Þór/KA
2
0
FH

Sandra María Jessen
'74
1-0
Sandra Mayor
'78
2-0
28.09.2017 - 16:15
Þórsvöllur
Pepsi-deild kvenna
Dómari: Þorvaldur Árnason
Maður leiksins: Sandra Mayor
Þórsvöllur
Pepsi-deild kvenna
Dómari: Þorvaldur Árnason
Maður leiksins: Sandra Mayor
Byrjunarlið:
Lára Einarsdóttir
Natalia Gomez
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
4. Bianca Elissa
9. Sandra Mayor
10. Sandra María Jessen (f)
10. Anna Rakel Pétursdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
24. Hulda Björg Hannesdóttir (f)
- Meðalaldur 29 ár
Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
25. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (m)
2. Rut Matthíasdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir
19. Agnes Birta Stefánsdóttir
- Meðalaldur 27 ár
Liðsstjórn:
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Silvía Rán Sigurðardóttir
Ágústa Kristinsdóttir
Ragnhildur I. Aðalbjargardóttir
Saga Líf Sigurðardóttir
Margrét Árnadóttir
Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir
Hannes Bjarni Hannesson
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Virkilega verðskuldað, til hamingju Þór/KA! #fotboltinet pic.twitter.com/8XJZqqxsPp
— Aron Elvar Finnsson (@AronElvar97) September 28, 2017
Leik lokið!
ÞÓR/KA ERU ÍSLANDSMEISTARAR!
Óskum þeim innilega til hamingju. Viðtöl og skýrsla koma von bráðar.
Óskum þeim innilega til hamingju. Viðtöl og skýrsla koma von bráðar.
91. mín
Einni mínútu bætt við og stúkan er staðinn upp! Bikarinn fer á loft á Þórsvelli í dag, það er á hreinu!
87. mín
FH-ingar eru meira með boltann eftir þetta mark. Þór/KA liggja meira til baka og verja markið sitt.
78. mín
MARK!
MARK!Sandra Mayor (Þór/KA)
Besti leikmaður Pepsi deildar kvenna að skora alvöru mark!!!!
FH-ingar voru í sókn, Þór/KA hreinsa beint á Söndru sem er ein gegn tveimur varnarmönnum FH á miðjum vellinum. Hún setur bara undir sig hausinn og tekur þær báðar á, kemst ein gegn Lindsey og klárar vel.
FH-ingar voru í sókn, Þór/KA hreinsa beint á Söndru sem er ein gegn tveimur varnarmönnum FH á miðjum vellinum. Hún setur bara undir sig hausinn og tekur þær báðar á, kemst ein gegn Lindsey og klárar vel.
77. mín
Alda Ólafsdóttir nánast sloppin í gegn en Bianca Sierra bjargar með stórkostlegri tæklingu. Hefði þessi klikkað hefði hún verið fokin útaf.
Þór/KA er nú á toppnum! #fotboltinet pic.twitter.com/uFC3nruon2
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) September 28, 2017
74. mín
MARK!
MARK!Sandra María Jessen (Þór/KA)
Stoðsending: Anna Rakel Pétursdóttir
Stoðsending: Anna Rakel Pétursdóttir
ÞÓR/KA ER KOMIÐ YFIR!!!!!!!!
Anna Rakel með fyrirgjöf og Sandra María gerir frábærlega með því að kasta sér á hann og pota honum inn með vinstri stóru tánni!
Anna Rakel með fyrirgjöf og Sandra María gerir frábærlega með því að kasta sér á hann og pota honum inn með vinstri stóru tánni!
71. mín
Sandra María með skalla framhjá eftir horn. Heimastúlkur eru að verða örvæntingafullar.
66. mín
Þarna voru FH-ingar nálægt því!!
Megan Dunnigan með skalla rétt framhjá markinu eftir aukaspyrnu Guðnýjar. Bryndís Lára í skógarhlaupi og var sigruð.
Megan Dunnigan með skalla rétt framhjá markinu eftir aukaspyrnu Guðnýjar. Bryndís Lára í skógarhlaupi og var sigruð.
62. mín
Ekkert í gangi hérna á Þórsvelli. Hálftími eftir og heimakonur eru að verða pirraðar.
47. mín
Flottur sprettur hjá Huldu Ósk, setur boltann á Andreu sem er í fínni stöðu í teignum, en hún er allt, allt of lengi að athafna sig og nær ekki skotinu.
45. mín
Liðin komin aftur inná og nú fer seinni hálfleikur að hefjast. Spennan að magnast og tíminn að minnka!
45. mín
Hálfleikur
Skrýtinn hálfleikur að baki. Þór/KA betri aðilinn en hafa ekki skapað neina gríðarlega hættu.
44. mín
ÞVÍLÍKT DAUÐAFÆRI!!!!
Geggjuð fyrirgjöf frá Önnu Rakel beint á kollinn á Huldu Ósk sem skallar boltann einhvern veginn framhjá!
Geggjuð fyrirgjöf frá Önnu Rakel beint á kollinn á Huldu Ósk sem skallar boltann einhvern veginn framhjá!
40. mín
Spyrnan er laus, yfir vegginn og í stöngina og framhjá! Fín tilraun en staðan er ennþá 0-0.
39. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað!!! Brotið á Söndru Mayor og hún ætlar að taka spyrnuna sjálf.
34. mín
Blikar eru komnar yfir í Kópavogi og eru þær því komnar á toppinn á markatölu eins og er!
Breiðablik yfir og markalaust á Akureyri. Svona er staðan núna. HÁSPENNA! #fotboltinet pic.twitter.com/8PfACyepRk
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) September 28, 2017
32. mín
Caroline Murray hérna með gott skot utan teigs sem Bryndís ver! Fyrsta tilraun FH-inga í dag.
31. mín
Sandra Mayor með stórkostleg tilþrif. Gerði hálfpartinn lítið úr bæði Guðnýju og Melkorku en átti svo skot úr þröngu færi sem fer í innkast hinum megin. Sandra vikrar í stuði í dag!
28. mín
Þarna munaði litlu! Boltinn barst út eftir hornið, var svo settur aftur inn í teig á Söndru Maríu sem hamraði boltanum í stöngina!
27. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað, Anna Rakel sendir fyrir en FH-ingar skalla aftur fyrir. Hornspyrna.
23. mín
Hulda Björg á hér skot framhjá af löngu færi eftir undirbúning Söndru Maríu, frekar hættulítið.
13. mín
Sandra Mayor á hérna skalla rétt framhjá markinu! Natalia með aukaspyrnu inn í teiginn, Sandra skallar hann yfir Lindsey sem var í skógarhlaupi en boltinn rétt framhjá.
11. mín
Sandra Mayor á hér fyrsta skot leiksins. Laust skot beint á markið sem Lindsey Harris á ekki í vandræðum með.
10. mín
Þór/KA virðast vera aðeins að ná tökum á leiknum. Halda boltanum betur og hafa verið nálægt því að skapa eitthvað. Hafa ekki skapað hættu ennþá samt sem áður.
1. mín
Leikur hafinn
Veislan er hafin!
Þór/KA byrja með boltann og sækja á móti norðanáttinni.
Þór/KA byrja með boltann og sækja á móti norðanáttinni.
Fyrir leik
Stúkan er orðin nokkurn veginn full hérna á Þórsvelli og búið er að opna í grasbrekkuna! Gaman að sjá.
Fyrir leik
Leikmenn ganga hér til vallar! Sandra María og Erna Guðrún fyrirliðar fara fremstar.
Fyrir leik
Menn í blaðamannaherberginu hérna á Þórsvelli eru búnir að grafa það upp að þegar Þór/KA tryggðu sér síðast Íslandsmeistaratitil á Þórsvelli voru 1212 áhorfendur. Það var árið 2012 en þá voru Selfosskonur í heimsókn. Sá leikur endaði 9-0.
Fyrir leik
Nú eru 45 mínútur í leik og fyrstu áhorfendur eru mættir í stúkuna. Alvöru metnaður hjá þeim!
Fyrir leik
Orri Þórðarson gerir eina breytingu á liði sínu frá sigrinum á Val í síðustu umferð. Alda Ólafsdóttir kemur inn í byrjunarliðið í staðinn fyrir Helenu Ósk Hálfdánardóttur.
Fyrir leik
Donni stillir upp óbreyttu liði frá síðustu umferð, þrátt fyrir tap. Þetta er liðið sem Donni hefur haldið sig við í gegnum sumarið, fyrir utan Zanetu Wyne sem er farin í Sunderland á Englandi, og var því nokkurn veginn vitað hvernig hann myndi stilla upp.
Fyrir leik
Einhver umræða var á kreiki í bænum í morgun að reynt hafi verið að færa leikinn inn í Boga vegna veðurs. Af því verður þó ekki og leikurinn mun fara fram á Þórsvelli.
Fyrir leik
Þorvaldur Árnason verður með flautuna í dag en honum til halds og trausts verða þeir Kristján Már Ólafs og Ásgeir Þór Ásgeirsson. Bjarni Hrannar Héðinsson er varadómari og Grétar Guðmundsson eftirlitsmaður.
Fyrir leik
Bæði Donni þjálfari Þórs/KA og leikmenn liðsins hafa verið dugleg að hamra á því að fólk þurfi að mæta í stúkuna og styðja. Þau hafa meira að segja skorað á fyrirtæki bæjarins að hleypa starfsfólki sínu fyrr heim til þess að komast á völlinn. Fróðlegt verður að sjá hversu margir verða í stúkunni í dag en leiktími og veður er ekki beint að hjálpa.
Fyrir leik
Haustið er heldur betur farið að segja til sín hér fyrir norðan. Haustlitirnir eru allsráðandi og úrhelli hefur verið undanfarið.
Fyrir leik
FH konur hafa átt fínasta sumar. Þær sitja í 6.sætinu, svolítið á eftir efstu fimm liðunum en einnig svolítið á undan neðstu fjórum. Þær unnu gríðarlega sterkan sigur á Valskonum í síðustu umferð og koma því væntanlega fullar sjálfstrausts inn í þennan leik.
Fyrir leik
Lið Þórs/KA hefur verið á toppi deildarinnar frá fyrstu umferð en þær unnu fyrstu 9 leiki sína í deildinni og töpuðu ekki fyrr en í 15.umferð. Þær hefðu getað tryggt sér titilinn í síðustu umferð en töpuðu óvænt gegn Grindvíkingum. Þær fá því annan séns í dag, nú á heimavelli.
Fyrir leik
Vinni Breiðablik ekki Grindavík skiptir þessi leikur ekki máli. Breiðablik þarf sigur til að eiga einhvern möguleika á titlinum.
Fyrir leik
Jafntefli dugar þeim ekki nema að Breiðablik misstigi sig gegn Grindavík, en sá leikur fer fram á Kópavogsvelli á sama tíma og mun ég reyna að setja inn stöðuna þar um leið og hún breytist.
Fyrir leik
Leikurinn er að sjálfsögðu eins og flestir vita úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn fyrir Þór/KA en með sigri verða þær meistarar.
Byrjunarlið:
23. Lindsey Harris (m)
Erna Guðrún Magnúsdóttir
Bryndís Hrönn Kristinsdóttir
Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir
4. Guðný Árnadóttir
5. Victoria Frances Bruce
8. Megan Dunnigan
11. Rannveig Bjarnadóttir
15. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
17. Alda Ólafsdóttir
('81)
('81)
18. Caroline Murray
Varamenn:
25. Aníta Dögg Guðmundsdóttir (m)
11. Helena Ósk Hálfdánardóttir
('81)
('81)
16. Diljá Ýr Zomers
22. Nadía Atladóttir
Liðsstjórn:
Orri Þórðarson (Þ)
Maria Selma Haseta
Snædís Logadóttir
Silja Rós Theodórsdóttir
Hákon Atli Hallfreðsson
Gul spjöld:
Rauð spjöld: