Manchester United þarf að opna veskið, vangeveltum um framtíð Klopp vísað til föðurhúsanna og Liverpool hefur enn áhuga á brasilískum varnarmanni. Þetta og fleira í slúðurpakkanum. Góða helgi!
Manchester United hefur staðfest að það muni kosta félagið næstum 16 milljónir punda að hafa rekið Rúben Amorim. (BBC)
Oliver Mintzlaff formaður hjá Red Bull segir ekkert til í þeim fréttum og kallar það 'kjaftæði' að Jurgen Klopp muni hætta störfum sem yfirmaður fótboltamála hjá íþróttaarmi fyrirtækisins. (Sky Sports Þýskalandi)
Brasilíski varnarmaðurinn Murillo (23) hjá Nottingham Forest er enn í myndinni hjá Liverpool, þó Chelsea leiði enn baráttuna um leikmanninn. (Teamtalk)
Serbneski landsliðsmaðurinn Dusan Vlahovic (26) vill helst fara til Barcelona þegar samningur hans við Juventus rennur út í sumar. Tottenham og Chelsea hafa enn áhuga á að fá hann. (TeamTalk)
Arsenal og Manchester City eru að íhuga að gera 30 milljóna unda tilboð í Honest Ahanor (18), nígerískan vinstri bakvörð Atalanta. (Caught Offside)
Liverpool og Manchester United eru ekki að fara að borga 50 milljóna punda verðmiða Wolves á Mateus Mane (18) þar sem þau telja að leikmaðurinn sé of 'hrár'. (Football Insider)
Ivan Toney (29), fyrrum sóknarmaður Brentford, vill vinna til verðlaun með Al-Ahli í Sádi Arabíu en útilokar ekki endurkomu í ensku úrvalsdeildina. (TalkSport)
Framherjinn Nicolas Jackson (24) er á leið til baka til Chelsea þegar lánsdvöl hans hjá Bayern München lýkur næsta sumar. Þýskalandsmeistararnir ætla ekki að kaupa hann alfarið. (CFBayernInsider)
Newcastle United hefur áhuga á hollenska markverðinum Bart Verbruggen (23) hjá Brighotn og enska markverðinum James Trafford (23) hjá Manhester City. Newcastle skoðar langtímakosti til að taka við af Nick Pope (33). (The i Newspaper)
Newcastle United er einnig með augastað á Anan Khalaili (21), ísraelskum kantmanni Union Saint-Gilloise í Belgíu. Hann er með þrjú Meistaradeildarmörk á tímabilinu. (Mail+)
Norður-írski kantmaðurinn Trent Kone-Doherty (19) gæti farið til Molde í Noregi þrátt fyrir að fá tilboð um nýjan samning hjá Liverpool. (Football Insider)
Napoli setti ákvæði þegar það seldi nígeríska sóknarmanninn Victor Osimhen (27) til Galatasaray en tyrkneska félagið þarf að borga allt að 60 milljónir punda til Napoli ef það selur hann til félag á Ítaliu. (Gazzetta dello Sport)
Athugasemdir




