Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deild karla
Víkingsvöllur
Gult gras og haustveður
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 0
Valur
Valur
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Áhorfendur: 1023
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Slagsmálajafntefli í bullinu

Hvað réði úrslitum?

\"Þetta eru ekki einu sinni aðstæður heldur bull,\" sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir leikinn. Víkingsvöllur er varla boðlegur í Pepsi-deildina en þar er þó hægt að bjóða upp á slagsmál, háloftabolta, feilsendingar, tæklingar, spjaldaregn... Þetta var ekki fallegur fótbolti en menn voru búnir undir það.

Bestu leikmenn

1. Sölvi Ottesen - Víkingur

Gjörsamlega geggjaðu! Hann var að fíla sig suddalega vel í þessum leik. Fyrsti leikur hans í Pepsi-deildinni var nánast upp á 10.

2. Halldór Smári Sigurðsson - Víkingur

Maður leiksins í síðasta leik. Fer fantavel af stað á tímabilinu.

Atvikið

Með stuttu millibili vildu liðin fá vítaspyrnur. Fyrst Valsmenn þegar Tobias Thomsen féll í teignum og svo Alex hinumegin. Lykt af báðum atvikum!

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar, sem margir spáðu fallbaráttu, byrja mótið á fljúgandi starti. Fjögur stig. Valsmenn eru með sama stigafjölda.

Vondur dagur

Tobias Thomsen átti ekki sinn besta dag. Það var á brattann að sækja hjá danska sóknarmanninum í moldarbaráttunni.

Dómarinn - 4,5

Var of fljótur í vasann og setti línu sem var erfitt að halda. Ótrúlega erfiður leikur að dæma en Guðmundur hefði átt að hafa betri stjórn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.