SKÝRSLAN: Fyrstu stig Grindvíkinga staðreynd.
Hvað réði úrslitum?
Eftir daufan fyrrihálfleik komu Grindvíkingar mun sterkari til leiks í þeim síðari. Einar Orri gefur óþarfa aukaspyrnu á vítateigslínu og upp úr henn skora gestirnir sitt fyrra mark. Eftir það sáu Keflvíkingar vart til sólar og því fór sem fór.
Bestu leikmenn
1. Sam Hewson
Var sem kóngur í ríki sínu á miðjunni hjá Grindavík og kórónaði leik sinn með glæsilegu marki.
2. Aron Jóhannsson
Kom inn í liðið hjá Grindavík og gerði varnarmönnum Keflavíkur ítrekað lífið leitt.
Atvikið
Aukaspyrnan sem Einar Orri gefur í aðdraganda fyrra marksins gerði út um leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Grindvíkingar náðu í sín fyrstu stig á meðan Keflvíkingar náðu ekki að fylgja eftir sterku stigi á móti Stjörnunni í fyrsta leik.
Vondur dagur
Sóknarleikur Keflavíkur. Enginn broddur, Jeppe fékk úr engu að moða og taktleysið ríkjandi. Ljóst að þetta gæti orðið erfið endurkoma í deild þeirra bestu.
Dómarinn - 7
Komst þokkalega frá sínu hlutverki.



